Tíu þúsund fet bjóða nú upp á glæsilega ævintýraferð til Eþíópíu í Afríku. Í þessari ferð verður fetað í fótspor hins landsþekkta Hringfara en Eþíópía er uppáhalds landið hans og höfum við hjá Tíu þúsund fetum fengið hann til að halda léttan fyrirlestur um upplifun sína á landi og þjóð, áður en lagt verður af stað í þetta einstaka ævintýri.
Landið er ríkt af sögu og framandi menningu ásamt einstakri náttúrufegurð og heillandi matargerð. Frábær dagskrá alla daga og vönduð íslensk fararstjórn tveggja þaulreyndra fararstjóra Tíu þúsund feta.
Komdu með Tíu þúsund fetum í einstakt ferðalag, þar sem við förum saman á ævintýralegar slóðir ólíkra ættbálka í Eþíópíu og upplifum heillandi náttúruundur, merkilega sögu og einstakt dýralíf. Í þessari mögnuðu ferð, Tíu þúsund feta, verður lögð áhersla á framandi og viðburðaríka daga í Eþíópíu.
Ferðalagið byrjar í höfuðborginni Addis Ababa og farið í léttan göngutúr um miðborgina, þar sem fyrsti og jafnframt einn besti kaffibolli í heimi verður tekinn. Næstu dagar einkennast síðan af nýrri og viðburðaríkri upplifun, þar sem ferðalangar fá að kynnast siðum og hefðum ólíkra ættbálka í framandi þorpum. Þá verður farið á heimaslóðir krókódíla og flóðhesta ásamt því að upplifa einstakt fuglalíf svo fátt eitt sé nefnt. Í ferðinni verður einnig farið á heillandi landsvæði, þar sem náttúran skartar sínu fegursta, m.a. á háhitasvæði, sem er eitt það heitasta á jörðinni og litadýrðin einstök. Þá verður farið í margra alda gamlar kirkjur sem hafa verið höggnar í klettaberg og teknar göngur í óviðjafnanlegu fjalllendi Eþíópíu.
Þetta er einfaldlega ferð sem þú mátt ekki missa af – upplifun frá upphafi til enda!
Eþíópía heitir opinberlega, Sambandslýðveldið Eþíópía og er í Austur-Afríku. Það er 1.104.300 km² að stærð og er þar með tíunda stærsta land Afríku. Eþíópía er fjölmennasta landlukta land í heimi og næstfjölmennasta ríki í Afríku en íbúar landsins telja 123.379.924. Flestir búa í höfuðborginni Addis Ababa eða ríflega 5,2 milljónir manna. Þau lönd sem eiga landamæri að Eþíópíu er Eritrea, Djíbúti, Súdan, Suður-Súdan, Kenýa og Sómalía.
Eþíópía er talið vera eitt elsta ríki Afríku með eina lengstu þekktu sögu allra landa Afríku. Landið var eina ríki Afríku, sem náði að halda sjálfstæði sínu, þegar nýlenduríkin voru að berjast um yfirráð þeirra eða allt til ársins 1936, þegar Ítalir réðust inn í landið. Hersveitir Eþíópíu og Breta sigruðu svo Ítali árið 1941 og náði þjóðin aftur sjálfstæði sínu 1944.
Í Eþíópíu búa meira en 70 mismunandi þjóðflokkar og eru íbúarnir mjög ólíkir. Opinbert tungumál landsins er amharíska en þar eru einnig töluð mörg minna útbreidd tungumál.
Landið þykir skarta einstakri náttúrufegurð, þar sem fjölbreytni í landslagi er mikil með háum fjöllum, iðagrænum gróðri, ám og fjölskrúðugu dýralífi. Hæsta fjallið er Ras Dahen í 4.553 m hæð en í landinu eru líka mörg virk eldfjöll eins og Simien fjöllin og Danakil-háslétturnar, sem eru með heitustu stöðum jarðarinnar. Bláa-Níl, sem er önnur af tveimur meginkvíslum Nílar rennur úr hinu svokallaða Tanavatni og er ein mikilvægasta vatnsauðlind landsins bæði fyrir landbúnað og orku. Þá er að finna nokkra einstaka þjóðgarða, sem m.a. hafa verið settir á heimsminjaskrá UNESCO.
Eþíópía er ríkt af framandi menningu, þar sem tónlist, dans og aðrar listir eiga stóran þátt í hefðum heimamanna. Þá eru þeir þekktir fyrir ljúffenga matargerð og besta kaffi í heimi.
Veðurfar í Eþíópíu er fjölbreytt og fer eftir landslagi og svæðum. Rigningartímabilið er almennt frá júní og fram í september á meðan október og fram í maí telst til þurrkatíma. Hitastig er mjög breytilegt eftir landsvæðum, þar sem kaldara er upp til fjalla. Október er almennt mildur og þurr, þar sem meðalhitinn er frá 5 og upp í 35 gráðum eftir svæðum!
Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Eþíópíu
Dagur 1
Ferðadagur – Flug frá Keflavíkurflugvelli til Addis Ababa í Eþíópíu.
Göngutúr um miðborgina og komið við á einu besta kaffihúsi landsins.
Dagur 2
Dorze-þorpið – Arba Minch
Hefðir og siðir Dorze-ættbálksins.
Dagur 3 – Chamo-vatn – Konso-þorpið – Turmi
Bátsferð á krókódíla- og flóðhestaslóðum.
Heimsókn til Konso-þorpsins, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.
Dagur 4 – Karo-þorpið – Turmi
Menning Karo-þorpsins við Omo-ána, líkamsmálning, nautgripahopp og ástarathöfn.
Dagur 5 – Dassanech-ættbálkurinn – Jinka
Siðir og hefðir Dassanech-ættbálksins, Jinka-safn og Ari-þorpið.
Dagur 6 – Mursi-þorp – Jinka – Flug til Addis Ababa
Keyrt í gegnum Mursi-þjóðgarðinn og Mursi-þorpið heimsótt, þar sem varir kvenna eru prýddar með stórum leirplötum.
Flogið til Addis Ababa.
Dagur 7 – Flug til Semera – Erta Ale
Flogið til Semera.
Gönguferð í einstöku eldfjallalandslagi Erta Ale.
Dagur 8 – Erta Ale – Dallol
Einstök hverasvæði og saltvatnssléttur.
Dagur 9 – Dallol – Mekele
Dallol eldfjallið, saltvatnssléttur og heitir hverir. Keyrt til Mekele, höfuðstaðar Tigray héraðs.
Dagur 10 –Mekele – Gheralta-fjöll – Kirkjur í Abuna Yemata Guh og Abraha We Atsebha
Göngutúr í einstöku fjalllendi og fornar kirkjur í klettabjörgum.
Dagur 11 – Shimbreyti-þoprið – Gheralta-fjöll – Mariam Cherqos kirkjur – Flug frá Mekele-borg til höfuðborgarinnar Addis Ababa
Gönguferð til Edaga Arbi-þorpsins.
Fjallganga og heimsókn í Mariam Cherqos kirkjurnar.
Dagur 12 – Ferðadagur – flogið til Íslands frá Addis Ababa
ATHUGIÐ nánari dagskrá er að finna neðar á vefsíðunni.
Mikilvægt að vera heilsuhraustur. Í sumum skoðunarferðunum eru stuttar fjallgöngur, ef fólk treystir sér hins vegar ekki í göngur, er hægt að sleppa þeim og fá far með fararskjótum ferðarinnar á þann stað þar sem hópurinn er sóttur eftir göngu. Menning Eþíópíu er frábrugðin því sem við eigum að venjast, þar sem matur er m.a. framandi og sölumenn geta verið ágengir. Bílakostur í Eþíópíu er ekki 5*, m.a. keyrt í gömlum hertrukkum. Undir lok ferðar er gist utandyra á tjaldsvæði.
Eliana hótel í Addis Ababa 3 nætur
Paradise Lodge í Arba Minch 1 nótt
Paradise Lodge í Turmi. 2 nætur
hótel Nasa í Jinka 1 nótt
Erta Ale undir berum himni 1 nótt
Hamedela undir berum himni 1 nótt
Planet hóteli í Mekele 1 nótt
Shimbreyti Community Guest House 1 nótt
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í þessari ævintýraferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar, þau Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson. Þau hafa unnið sem fararstjórar víða um heim til 26 ára og hafa m.a. starfað sem fararstjórar í nokkrum löndum Afríku.
Kristján Gíslason er óvenjulegt eintak af manni. Árið 2014 umpólaði hann tilveru sinni og fór í heimsreisu, á mótorhjóli, sem tók tíu mánuði. Hann einnig þekktur sem Hringfarinn.
Kristján er íslenskur kerfisfræðingur og ævintýramaður sem hefur ferðast um heiminn á mótórhjóli sínu. Árið 2019 fór hann niður Afríku þar sem hann kynnist einstökum ættbálkasamfélögum og komst í kynni við einhver hættulegustu dýr heims.
Þá varð Kristján ástfanginn af Eþíópíu sem enn í dag er eitt af hans uppáhalds löndum í heiminum. Áður en við leggjum af stað í ferðina ætlar sjálfur Hringfarinn að hitta hópinn og halda fyrirlestur um menningu, land og þjóð.
Dagur 1
Ferðadagur – Flogið með Icelandair frá Keflavíkurflugvelli og lent Á Bole alþjóðaflugvellinum í Addis Ababa í Eþíópíu. Þar mun rúta bíða hópsins og keyra hann heim á hótel Eliana, sem er staðsett í Piasa, miðborginni. Þegar hópurinn hefur komið sér fyrir á hótelinu verður farið í miðborgarferð með viðkomu á Adwa-safninu en þar er m.a. sögð saga Eþíópíubúa sem unnu sigur á nýlenduveldunum. Þá verður tekinn léttur göngutúr og m.a. farið á Vinatorgið og í Kirkjustræti ásamt því að kynnast hinni frægu kaffimenningu Eþíópíu, þar sem við heimsækjum eitt besta kaffhús landsins, þar sem sjá má sögulegar ljósmyndir um uppruna kaffisins.
Dagur 2 – Dorze-þorpið
Eftir morgunverð kl. 8:05 verður lagt af stað frá Addis Ababa og keyrt upp til Gughe-fjalla, þar sem hið áhugaverða Dorze-þorp verður heimsótt. Þorpið einkennist af sérstökum byggingarstíl, þar sem húsin minna einna helst á býflugnabú, sem er einkennandi fyrir svæðið. Dorze-fólkið er þekkt fyrir fallegan vefnað og lifandi danshefð, sem farþegar fá að kynnast í heimsókninni. Eftir eftirminnilegan dag í þorpinu meða Dorze-fólksins, verður farið til Arba Minch, þar sem hópurinn snæðir síðbúinn hádegisverð og tekur síðan léttan göngutúr um skógarsvæðið.
Dagur 3 – Chamo-vatn – Konso-þorpið – Turmi
Eftir morgunverð verður farið í ævintýralega ferð, þar sem við byrjum á að kynnast mögnuðu dýralífi Chamo-vatns. Siglt verður að hinum svokallaða krókódílamarkaði, þar sem hópurinn fær að virða fyrir sér þessar mögnuðu skepnur, það fara sem sé engin kaup, né sala fram á þessum slóðum, heldur fær hópurinn að njóta þessa ótrúlega sjónarspils krókódíla úti í óspilltri náttúrunni. Á vatninu mun hópurinn einnig berja augum flóðhesta og fjölbreyttar tegundir fugla. Þegar bátsferðinni lýkur verður farið til Konso í hádegismat en eftir hann heimsækjum við eitt af níu þorpum Konso, sem hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO. Konso-fólkið er einna þekktast fyrir einstaka hefð, sem byggist á því að reisa svokallaða ,,kynslóðarstaura“, en þeir eru reistir á 18 ára fresti til að marka upphaf nýrrar kynslóðar. Þannig má ákvarða aldur þorpsins út frá fjölda stauranna. Að heimsókn lokinni verður keyrt í fallegu umhverfi til Turmi.
Dagur 4 – Karo-þorpið
Eftir morgunverð er keyrt til Karo-þorpsins, þar sem lítil ættkvísl Karo-ættbálksins býr meðfram árbökkum Omo-árinnar. Þorpin þeirra þykja einstaklega falleg og fólkið er þekkt fyrir að mála áberandi skreytingar á andlit og líkama barnanna í þorpinu. Því næst er farið tilbaka til Turmi, þar sem hópurinn borðar hádegisverð. Síðdegis, ef heppnin verður með hópnum, mun hópurinn verða vitni að einstakri athöfn sem kallast einfaldlega nautgripahopp. Í þessari athöfn sýnir drengur karlmennsku sína með því að ganga eða stökkva yfir röð af 5-13 nautgripum. Þennan sama dag fær hópurinn að kynnast frumstæðri hefð, þar sem konur tjá ást og hollustu sína við tilvonandi fjölskyldu brúðguma með því að leyfa hinum svokalla Maza manni að þeyta sér á priki og mega þær ekki sýna hræðslu á meðan þessari táknrænu ástarathöfn stendur. Í lok dags er farið aftur til Turmi.
Dagur 5 – Dassanech-ættbálkurinn – Jinka
Að loknum morgunverði verður ekið til landamæraborgarinnar Omorate, þar sem farið verður yfir Omo-ána og Dassanech-ættbálkurinn heimsóttur. Omorate-borg tilheyrir einnig Kenýa og því þarf hópurinn að fá stimpil í vegabréfið á landamærunum. Eftir heimsóknina í Dassanech-þorpinu er ekið aftur til Turmi, hádegisverður snæddur og farangur sóttur á hótel. Eftir hádegisverð er keyrt til Jinka. Síðla dags er frjáls tími til að fara annað hvort á Jinka-safnið eða í Ari-þorpið.
Dagur 6 – Mursi-þorp – Addis Ababa
Snemma dags, eftir morgunverð verður stefnan sett á ákaflega fallega akstursleið í gegnum Mago-þjóðgarðinn til að heimsækja Mursi-þorpið sem er staðsett í Neðri-Omo dalnum. Konur þessa ættbálks eru þekktar fyrir stórar leirplötur, sem þær prýða varir sínar með á meðan karlarnir eru þekktir fyrir flókin líkamsmálverk. Eftir ógleymanlega heimsókn í Mursi-þorpið verður farið aftur til Jinka í hádegismat. Hópurinn á síðan flug til Addis Ababa kl. 14:05 en áætluð lending er kl. 15:25
Dagur 7 – Flug til Semera og gönguferð við eldfjallið Erta Ale
Dagurinn verður tekinn snemma, þar sem hópurinn á flug kl. 6:45 til Semera en áætluð koma þangað er kl. 8:05. Þá tekur við um 5 tíma akstur til Erta Ale, þar sem farið verður í gönguferð um þorp, sem staðsett eru í einstöku eldfjallalandslagi en þar er að finna eitt af fáum virkum hveravötnum heims, þar sem litadýrðin er einstök.
Dagur 8 – Erta Ale – Dallol
Eftir morgunmat og léttan göngutúr um sjóðandi heitt hverasvæðið í morgunsárið, tekur við akstur til Dallol-hverasvæðisins en landslagið þar einkennist af eldgígum og rjúkandi hverum og perla svæðisins verður að teljast Karoum saltvatnsslétturnar en fegurð þeirra er ólýsanleg.
Dagur 9 – Hamedela – Mekele
Eftir morgunverð nýtur hópurinn þess að vera í hinu dásamlega umhverfi Dallol-eldfjallsins, þar sem einstök litadýrð og sérstakar jarðmyndanir einkenna landslagið innan um rjúkandi hveri. Eftir góða stund í Dallol verður keyrt til Mekele, höfuðstaðar Tigray-héraðsins, þar sem gist veður á Planet Hotel. Kvöldmatur snæddur á hefðbundnum veitingastað í Mekele.
Dagur 10 – Mekele – Gheralta – Abraha We Atsebha
Eftir morgunverð verður ekið í óviðjafnanlegu landslagi til hinna töfrandi Gheralta-fjalla. Þar verður gengið um það bil tvær klukkustundir að Abuna Yemata Guh, þar sem stórkostlega kirkju er að finna sem hefur verið höggvin inn í klettabergið. Leiðin upp að kirkjunni er heillandi, þar sem víðáttumikið útsýnið blasir til allra átta. Að göngu lokinni er farið í hádegisverð og síðan ekið í tæpa klukkustund, áður en hópurinn heldur í aðra gönguferð til fornar kirkju í Abraha We Atsebha, sem hefur einnig verið höggvin í klettaberg. Á þessari leið kynnist hópurinn lífi bænda og fær tækifæri til að heimsækja þá.
Dagur 11 – Shimbreyti – Mekele – Ferðadagur
Eftir morgunverð byrjum við daginn á að taka tveggja tíma göngu frá Shimbreyti til þorpsins Edaga Arbi. Síðan keyrum við til Gheralta-fjalla og tökum eins og hálftíma fjallgöngu, þar sem við heimsækjum hinar ótrúlegu Mariam Cherqos kirkjur, sem eru þekktar fyrir flókna byggingarlist, sem hefur verið höggvin í stein. Síðla dags verður keyrt til Mekele flugvallar, þar sem hópurinn á flug til Addis Ababa.
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Flug
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ