Fyrirtækja- og hópaferðir

Stórskemmtilegt og spennandi úrval ferða víða um heim!
 

Frábærar hópaferðir!

Við sérhæfum okkur í frábærum fræðslu- og fyrirtækjaferðum víða í veröldinni. Slíkar ferðir eru ógleymanleg upplifun. Á hverjum áfangastað bjóðast jafnframt vandaðar, fróðlegar og skemmtilegar skoðunarferðir og afþreyingarmöguleikar með vandaðri íslenskri leiðsögn.

Er fyrirtækið, íþróttafélagið, gönguhópurinn, kórinn, skíðahópurinn, saumaklúbburinn eða vinahópurinn að leita sér að frábærri ferð? Stærðin skiptir ekki máli! Við sérhæfum okkur í að bjóða hópum, litlum sem stórum, af ýmsum toga upp á vandaðar ferðir, persónulega þjónustu og flotta fararstjórn.

Algjör draumur

,,Að halda upp á 10 ára afmæli Sahara með árshátíðarferð til Sahara var fyrir okkur meira en bara ferð, þetta var draumur sem varð að veruleika. Upplifunin var einstök í alla staði og skipulagið frá Tíu þúsund fet ferðaskrifstofunni til fyrirmyndar. Skipulagið var skýrt, samskiptin góð og við fengum frábæran stuðning frá upphafi til enda. Ferðin sjálf gekk einstaklega vel, allt small saman og við gátum notið þess að vera saman sem teymi án þess að hafa áhyggjur af neinu. Við getum heilshugar mælt með Tíu þúsund fet fyrir fyrirtæki sem vilja setja upp vel heppnaða og eftirminnilega ferð.“

Sigurður Svansson, framkvæmdarstjóri Sahara – Marrakech 2026


 
 

Hvert langar þig?

Hér koma nokkur dæmi um hópaferðir og við getum jafnframt sérsniðið ferð fyrir hópinn þinn þangað sem ykkur langar. Við bjóðum upp á frábæra og fjölbreytta dagskrá og afþreyingu á staðnum ásamt vandaðri íslenskri fararstjórn. Þá getum við aðstoðað við árshátíðarkvöldið á flottum stöðum. Hvert langar þinn hóp?
 
 

Hvers vegna Tíu þúsund fet?

Eigendur Tíu þúsund feta, Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson, hafa starfað í 25 ár við margs konar ferðaþjónustu um víða veröld.

Endalaus afþreying

Það leiðist engum hjá okkur. Afþreyingarmöguleikarnir eru endalausir allan sólarhringinn, fyrir fólk á öllum aldri. Þá eru ávallt spennandi dagskrárliðir í boði.

Persónuleg þjónusta

Við erum fjölskyldufyrirtæki með reynslumikla fararstjóra sem hafa mikla þekkingu á öllu sem viðkemur ferðamennsku. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu.

Góður félagsskapur

Á ferðunum okkar er að finna úrval glæsilegra veitingastaða þar sem þú getur notið veitinga með þeim sem þér þykir vænt um.

Mikið fyrir peninginn

Í ferðunum færðu mikið fyrir aurinn þar sem allt er innifalið og endalaus afþreying í boði, svo sem einstakar skoðunarferðir, sýningar og kvöldskemmtanir.