Segðu alltaf JÁ við nýjum ævintýrum!

Erum við ekki að tala um 6 mánaða frí, tvisvar á ári? Hvert er þitt næsta ævintýri?

Áfangastaðir

Allir okkar áfangastaðir á einum stað

Ekki missa af þessum!

Ævintýri í allar áttir
 
 

Þetta færðu bara hjá okkur!

Tíu þúsund fet leggja áherslu á framandi ferðir á ævintýralegar slóðir þar sem það eru alltaf tveir reynslumiklir íslenskumælandi fararstjórar með í för, þau Rún og Trausti sem eru jafnframt eigendur ferðaskrifstofunnar. Þar að auki eru stundum fjölmiðlafólkið skemmtilega, þau Illugi Jökulsson eða Vera dóttir hans með okkur í för og það eru ekkert nema forréttindi að ferðast um með þeim feðginum sem fræða okkur um hitt og þetta sem jafnvel fáir vita.

Þá erum við líka stolt af því að bjóða upp á okkar eigin golfferðir undir vörumerkinu Gæðagolf, sem er sannkallað réttnefni því við bjóðum glæsilegar golfferðir á fyrsta flokks golfsvæði í Katalóníu ásamt golfskóla í hæsta gæðaflokki.

 
  • ,,Að halda upp á 10 ára afmæli Sahara með árshátíðarferð til Sahara var fyrir okkur meira en bara ferð, þetta var draumur sem varð að veruleika. Upplifunin var einstök í alla staði og skipulagið frá Tíuþúsund fet ferðaskrifstofunni til fyrirmyndar. Skipulagið var skýrt, samskiptin góð og við fengum frábæran stuðning frá upphafi til enda. Ferðin sjálf gekk einstaklega vel, allt small saman og við gátum notið þess að vera saman sem teymi án þess að hafa áhyggjur af neinu. Við getum heilshugar mælt með Tíuþúsund fet fyrir fyrirtæki sem vilja setja upp vel heppnaða og eftirminnilega ferð."

    Sigurður Svansson, framkvæmdarstjóri Sahara – Marrakech 2026
  • ,,Við í Oddfellow stúkunni Nirði í Reykjanesbæ fórum í afmælisferð til Kaupmannahafnar um mánaðarmótin apríl/maí s.l. Undirritaður hafði umsjón með ferðinni og til að gera mér þetta sem auðveldast hafði ég samband við 10000 fet. Verð að segja að þjónustan stóðst væntingar og rúmlega það. Bókanir í flug upp á tíu og val á hóteli upp á 100. Þegar ferð er ákveðin með tæplega árs fyrirvara þá verða alltaf einhverjar breytingar á bókunum og fjölda þeirra sem fara með í ferðina. Aldrei neitt vesen hjá þeim hjónum að bregðast við okkar óskum. Og ekki nóg með það, heldur var veðrið líka geggjað eins og þau lofuðu! Þannig að útgangspunkturinn er að 10000 fet fær meðmæli uppá 10000”

    Tryggvi Þór Bragason, Oddfellow-ferð Kaupmannahöfn 2026
  • ,,Ferðin til Japans var algjörlega ógleymanleg. Við skoðuðum tignarleg hof, hallir og helgidóma. Upplifðum hvernig ævafornar hefðir fléttast saman við nútímasamfélag þar sem agi og gagnkvæm virðing ráða ríkjum. Það var heillandi að kynnast nýjum menningarheimi, allt frá framandi matargerð til einstakra siða. Skipulag ferðarinnar var til fyrirmyndar og fararstjórarnir stóðu sig frábærlega.“

    Áslaug og Geir, ævintýraferð til Japan 2026
  • ,,Kærar þakkir fyrir vel skipulagða ferð og frábæra fararstjórn. Nutum þess í botn og erum enn að melta þessa frábæru ferð”

    Klara Valdís Þórhallsdóttir, Veröld Veru í Úsbekistan
  • ,,Þegar leiðin liggur til framandi menningarheima er ómissandi að fararstjórarnir séu starfi sínu vaxnir. Við fórum til Egyptalands í fyrra með Trausta og Rún. Þau stóðu sig óaðfinnanlega og leystu úr hvers manns vanda hratt og örugglega, enda fagfólk með áratuga reynslu. Við hlökkum til að ferðast með þeim í framtíðinni.”

    Elín Albertsdóttir og Ásgeir Tómasson, ferð til Egyptalands
  • ,,Við hjónin mælum heilshugar með fararstjórn Rúnar og Trausta. Við ferðuðumst um eyjuna m.a. í rútu, á bíl og fótgangandi og allt gekk eins og í sögu, vel ígrundað, skipulagt og skemmtilegt. Þau voru alltaf með vellíðan og öryggi okkar í huga og maður fann það sterkt. Það besta við ferðina með þeim var hversu fróð þau voru um staðhætti og sögu staðarins, sögðu skemmtilega frá og kynntu matsölustaði innfæddra, leyndar perlur eyjarinnar og náttúruna."

    Eva Rós og Jóhannes, endurmenntunarferð til Tenerife
  • „Takk fyrir frábæra ferð! Mæli svo sannarlega með 10.000 fetum – allt skipulag, þjónusta og upplifun til fyrirmyndar. Sérstakar þakkir fyrir að halda svona vel um hópinn – algjörlega ógleymanleg ferð.”

    Kolbrún Vídalín, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu
  • ,Þessi ferð var dásamleg, gleði og gaman út í eitt. Fullt af frábærum og skemmtilegum konum sem höfðu engar áhyggjur þó Play hætti rétt eftir að við komum út. Enda voru Rún og Trausti búin að redda okkur fari heim á núll einni. Mæli 100% með Tíu þúsund fetum. Væri svo til í að fara í aðra svona ferð”

    Ingibjörg Erla Björnsdóttir, Búbblur og bling með Siggu Kling
  • ,Innilegar þakkir fyrir okkur. Ferðin var æði og þið frábærir fararstjórar. Uppfull af fróðleik og skemmtilegheitum. Við eigum sko eftir að fara með ykkur í fleiri ferðir og mælum með ykkur við vini og vandamenn”

    Jóhanna Erla Birgisdóttir, Hringferð um Marokkó
  • ,,Allt upp á 10,5! Frábært skipulag í virkilega góðri æfingferð. Æfingasalurinn sá besti sem ég hef æft í. Við vorum mjög sátt, frábærar aðstæður og bærinn virkilega hentugur fyrir svona hópa. Þetta er líklega besta æfingaferð sem við höfum farið í, hún var algjörlega uppá tíu þúsund fet!”
    Einar Jónsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram
  • ,,Ferðin til austurstrandar Grænlands var í senn mjög svo áhugaverð og skemmtileg og skipuögð í þaula. Allt gekk eins og í sögu undir styrkri stjórn Rúnar og Trausta. Við gengum yfir og undir jökul, veiddum þorsk og fræddumst um lífið á Grænlandi, sem er allt annað en auðvelt. Ferð sem ekki má missa af. Frábær ferð, bæði áhugaverð og skemmtileg og þið eruð 100% meðetta”

    Pálmi V. Jónsson, Grænland 2024
  • ,,Frábær ferð. Hver dagur var nýtt ævintýri með ótrúlega skemmtilegum og jákvæðum farastjórum og göngugörpum. Farastjórarnir stóðu sig einstaklega vel og gerðu ferðina ógleymanlega með frábæri þekkingu, húmor og fagmennsku. Hlakka til næstu ferðar og tíu þúsund þakkir fyrir mig” 

    Andrea Vikarsdóttir, gönguferð á Tenerife 2025
  • ,,Ég sé ekki eftir því að hafa leitað til Rún og Trausta við skipulag árshátíðar okkar. Ég mæli hiklaust með Tíuþúsund fetum fyrir fyrirtæki og hópa sem vilja fá vandaða, áreiðanlega og persónulega þjónustu í ferðaplönum.

    Alda Þórunn Jónsdóttir, árshátíðarferð Kóða til Prag 2025
  • ,,Ferðin gekk mjög vel, nutum okkar í botn og skemmtum okkur frábærlega. Fararstjórarnir okkar Rún og Trausti stóðu sig frábærlega og leystu af ljúfmennsku hvers manns vanda og sýndu snilli sína í mannlegum samskiptum. Sérstakar þakkir fyrir frábæra þjónustu og vonandi eigum við eftir að njóta leiðsagnar þeirra aftur á framandi slóðum.”

    Guðmundur Haukur, ferð eldri borgara til Marokkó
 

Hvers vegna Tíu þúsund fet?

Áratugareynsla

Eigendur Tíu þúsund feta, Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson, hafa starfað í 25 ár við margs konar ferðaþjónustu um víða veröld.

Við styðjum heimamenn

Við leggjum mikla áherslu á jákvæð samskipti við heimafólk og viljum tryggja að það fái líka sem mest út úr ferðunum okkar.

Persónuleg þjónusta

Við erum fjölskyldufyrirtæki með reynslumikla fararstjóra sem hafa mikla þekkingu á öllu sem viðkemur ferðamennsku. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu.

Í nafni náttúrunnar

Þegar þú bókar ferð með Tíu þúsund fetum rennur hluti af verði ferðarinnar til skógræktar á Íslandi.

Í þessu erum við best!

Tíu þúsund fet leggja áherslu á framandi ferðir á ævintýralegar slóðir, vandaðar árshátiðar- og hópaferðir fyrir fyrirtæki og hópa af ýmsum toga, fyrsta flokks æfingaferðir fyrir íþróttafélög og glæsilegar golfferðir. Í þessu erum við best en við erum líka góð í ýmsum öðrum ferðum þannig að þú skalt endilega senda okkur línu ef þú ert í ferðahugleiðingum.

 

Stærðin skiptir ekki máli!

Er fyrirtækið, íþróttafélagið, gönguhópurinn, kórinn, skíðahópurinn, saumaklúbburinn eða vinahópurinn að leita sér að frábærri ferð? Við sérhæfum okkur í að bjóða hópum, litlum sem stórum, af ýmsum toga upp á vandaðar ferðir, persónulega þjónustu og flotta fararstjórn.

Tíu þúsund fet leggja áherslu á ferðaöryggi, ótrúlega upplifun, sveigjanleika í ferðatilhögun og ferðafrelsi til að kanna og njóta hverrar ferðar til hins ítrasta. Í framandi ferðum reynum við líka að hafa hópana ekki stóra til að byggja upp betri tengsl á milli farþega okkar.