Langar þig til að upplifa stórkostlega menningu og fegurð Úsbekistan þar sem Vera Illugadóttir segir óborganlegar skemmtilegar sögur? Sendu okkur þá línu á [email protected]
Tíu þúsund fet bjóða upp á sannkallaða ævintýraferð til Úsbekistan með fræði- og útvarpskonunni, Veru Illugadóttur. Úsbekistan er rík af sögu og heillandi menningu, með iðandi mannlífi og ljúfri matargerð. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði og vönduð íslensk fararstjórn tveggja þaulreyndra fararstjóra Tíu þúsund feta.
Tíu þúsund fet kynna meiriháttar ævintýri í Úsbekistan, þar sem sagan drýpur af hverju strái og alls staðar er eitthvað nýtt og framandi til að upplifa, silkileiðin, mósaíkskreyttar moskur, líflegir markaðir, kryddilmur í lofti, gestrisnir heimamenn stórbrotið landslag og sólsetur gerir þessa ferð til Úsbekistan að ógleymanlegu ferðalagi.
Flogið er til Úsbekistan þar sem við tekur ævintýralegt ferðalag, þar sem heillandi borgir verða heimsóttar og farið í fræðandi skoðunarferðir undir leiðsögn hinnar þekktu útvarpskonu, Veru Illugadóttur ásamt heimsóknum á ýmsar áhugaverðar vinnustofur, m.a. keramiksmiðju, silkipappírsgerð, brúðugerðarstofu, tréskurðarsmiðju að ógleymdum vinnustofum þar sem unnið er með dýr textílefni á við silki, bómul og ull. Þá verður farið á ýmsar sýningar, bæði leik- og tískusýningar. Gist verður á glæsilegum hótelum og borðað á velvöldum veitingastöðum þeirra heimamanna.
Þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar halda utan um hópinn ásamt því að útvarpskonan Vera Illugadóttir veitir fræðslu um framandi menningu og siði þjóðarinnar ásamt því að segja sögur af fólkinu í Úsbekistan. Ferðin er full af flottri dagskrá og einstakri matarmenningu í fallegu umhverfi.
Hér er frábært tækifæri til að njóta einstakrar fræðslu Veru um framandi menningu á fallegum slóðum Mið-Asíu þar sem sagan drýpur af hverju strái.
Úsbekistan er heillandi land í Mið-Asíu en það er tvílandlukt land og á landamæri að Kasakstan, Kirgistan, Tadsíkistan, Afganistan og Túrkmenistan. Landið telur 448.978 ferkílómetra og þar búa ríflega 35,5 milljónir manna. Taskent er höfuðborg Úsbekistan og þar búa ríflega 3,1 milljón manna sem gerir hana að stærstu borg Mið-Asíu. Í landinu er úsbekíska opinbert tungumál.
Landið býr við mikla þurrka og þær ár sem renna í landinu renna ekki til sjávar. Innan við tíu prósent landsvæða eru nýtt til ræktunar en meirihluti landsins er eyðimörk og fjalllendi, þar sem hæsta fjall landsins, Hazrat Sulton, trónir í 4.643 m yfir sjávarmáli.
Landið á sér gríðarlega langa sögu keisaravelda og rússneskrar og sovéskrar stjórnar eða þar til landið öðlaðist sjálfstæði í lok 20. aldar. Staðsetning landsins gerði nokkrar borgir þess að trúarlegum og viðskiptalegum miðstöðvum.
Um landið liggur hinn margrómaði og heimsfrægi 6.400 km langi Silkivegur um fornfrægar borgir eins og Samarkand, Bukhara og Khiva, sem eiga sér ríka verslunarsögu, þar sem skipst var á ýmsum varningi eins silki, kryddi, te, skrautmunum og eðalsteinum.
Matarmenningin einkennist af hollum og bragðmiklum kjötréttum, sem á sér rótgróna sögu Silkivegarins, þar sem tyrkneskra, persneskra og rússneskra áhrifa gætir mikið í matargerðinni. Áhersla er lögð á ferskt hráefni, þar sem hinar ýmsu kryddtegundir eru notaðar til að bragðbæta máltíðir. Þá er ferskt brauð og ávextir stór hluti af matarmenningunni og auðvitað er lykilatriði að borða í góðum félagsskap.
Í Úsbekistan ríkir þurrt meginlandsloftslag, þar sem meðahiti á sumrin er nálægt 40°C og meðalhiti á veturna er í kringum -25°C. Það þykir gott að ferðast til Usbekistan í október, þá er sólríkt og hitinn í kringum 15-25°C. Kólnar á kvöldin en afar litlar líkur á rigningu.
Tashkent á sér um 2000 ára langa sögu og hefur á þeim tíma þróast frá litlu þorpi í eina helstu stórborg Mið-Asíu. Í dag er borgin mikilvæg iðnaðar-, fjármála- og menningarmiðstöð bæði í Úsbekistan og víðar í Mið-Asíu.
Samarkand hefur orðið fyrir miklum umbyltingum í gegnum aldirnar en hún var hertekin af Alexander mikla, Arabum, Genghis Khan og síðar Timur. Menning borgarinnar er því sambland af íranskri, indverskri og mongólskri arfleifð.
Byggingararfleifð Bukhara er mjög rík, þar sem finna má m.a. forna viðkomustaði á hinni heimsfrægu Silkileið, verslunarhallir, almennings baðlaugar, virkisveggi, borgarhlið, klaustur og grafhýsi, moskur og trúarlegar menntastofnanir. Byggingarlistin þykir einstök og ákaflega flókin, þar sem skreytingar, glæsileg hönnun og frumlegar hugmyndir arkitekta eru áberandi.
Khiva er líklega þekktust fyrir að vera fornborg en einnig fyrir dapra sögu, þar sem þrælaviðskipti fóru fram í stórum stíl í gegnum Silkileiðina. Í dag einkennist borgin af stórglæsilegum byggingum skreyttum flóknum, bláleitum mósaíkflísum.
Ef þú ert í leit að framandi ferð, þá er þetta rétta ferðin fyrir þig!
Í þessa ævintýralegu ferð okkar um Úsbekistan kemur Vera Illugadóttir með okkur þar sem útvarpskonan skemmtilega fræðir okkur á sinn einstaka hátt um sögu og siði lands og þjóðar.
Vera er íslensk útvarpskona og rithöfundur. Hún vinnur sem dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu og hefur frá árinu 2016 verið framleiðandi og þulur útvarps- og hlaðvarpsþáttarins Í ljósi sögunnar á Rás 1.
Vera er dóttir blaðamannsins Illuga Jökulssonar og leikkonunnar Guðrúnar S. Gísladóttur.
Í Tashkent verður gist á 4* hótelinu Crowne Plaza í þrjár nætur með hálfu fæði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með innisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði og heilsulind til að fara í snyrtimeðferðir og nudd ásamt góðum veitingastöðum sem bjóða upp á úrval af Austur-evrópskum, asískum og alþjóðlegum sérréttum.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárblásari.
Hótelið er vel staðsett í göngufæri við miðborgina.
Í Samarkand er gist á 4* hótelinu Meridian Plaza í tvær nætur.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með útisundlaug, líkamsræktarstöð og heilsulind ásamt góðum veitingastað.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárblásari.
Hótelið er staðsett í miðborginni og er stutt í allar áttir.
Í Bukhara er gist á 4* hótelinu Sahid Sarafshon í tvær nætur.
Fallegt hótel í hjarta miðborgarinnar. Þar má meðal annars finna tvær sundlaugar og heilsulind með úrvali af nudd- og snyrtimeðferðum.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárþurrka.
Í Khiva er gist á 5* hótelinu Farovon Hotel í tvær nætur.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með heilsulind og vellíðunaraðstöðu með útisundlaug, líkamsræktarstöð og gufubaði ásamt veitingastað og bar.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárþurrka.
Hótelið er staðsett í rólegu umhverfi.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða. Athugið einnig að gististaðir geta breyst en þá er ávallt boðið upp á sambærilega gististaði eða betri. Athugið einnig að innskráning á hótelin er ávallt eftir klukkan tvö við komuna og því þarf í sumum tilfellum að geyma farangur á hóteli og skrá sig inn eftir skoðunarferðir.
Í framandi ferðum Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðina. Rún og Trausti hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld. Þau munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð um Úsbekistan, þar sem skipulag, fræðsla og umfram allt skemmtileg upplifun verður sett í forgang.
Ef þú ert að spá í fararstjórninni, þá eru hér nokkur meðmæli úr síðustu ferð, sem hjálpa þér vonandi við að taka ákvörðun um að koma með í þessa ævintýraferð á framandi slóðir:
,,Tíu þúsund þakkir fyrir dásamlega og vel skipulagða ferð til Istanbúl og Úsbekistan. Ég kem örugglega aftur með ykkur Veru út!“
Yvette Lau, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Mikið þakka ég ykkur fyrir dásamlega og efitrminnilega ferð til Úsbekistan. Núna er ég að melta allar upplifanir úr þessum heimi sem við vorum í og fer það mjög vel í mig.“
Jóhanna Jónasdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Kærar þakkir fyrir vel skipulagða ferð og frábæra fararstjórn. Nutum þess í botn og erum enn að melta þessa frábæru ferð“
Klara Valdís Þórhallsdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Dagskrá
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
Flogið frá Keflavíkurflugvelli með Icelandair kl. 7:40 og lent í Kaupmannahöfn kl. 12:55.
Flogið frá Kaupmannahöfn með Turkish Airlines kl. 15:00 og lent í Istanbúl kl. 19:15.
Fararstjórar taka á móti hópnum á flugvellinum og fara með honum í rútu heim á hótel í Istanbúl.
Farþegar verða sóttir við hótelið eftir morgunverð og farið í létta skoðunarferð um gamla bæjarhluta Istanbúl. Farið verður m.a. í hina ægifögru Bláu mosku, sem er eitt þekktasta kennileiti Istanbúl með sínu tilkomumikla hvolfþaki og sex mínorettuturnum. Rétt við moskuna skoðum við síðan fornan kappakstursleikvang, sem á sér merka sögu. Þá verður rölt um hinn litríka markað, Grand Bazar, en þar er aldeilis hægt að byrja að gera góð kaup á alls kyns varningi eins og kryddi, tei, leðurvörum, skartgripum, textíl og keramikvörum svo fátt eitt sé nefnt.
Á frjálsum degi er hægt að njóta alls þess besta sem þessi fallega borg hefur upp á að bjóða. Fyrir þá sem vilja njóta slökunar og góðs matar áður en lagt er af stað til Úsbekistan geta t.d. farið í rólega kvöldverðarsiglingu á Bosborusundi eða prófað hin víðfrægu tyrknesku böð – hammam – með tilheyrandi dekri og nuddi.
Þá er hægt að bæta við heimsóknum í fallegar og sögulegar byggingar eins og Topkapi-höllina, sem var heimili tyrkneskra soldána Ottómanaveldisins en höllin er ríkulega skreytt og stendur á fallegum útsýnisstað yfir Bosborusundið. Þá ætti enginn að fara frá Istanbúl án þess að skoða Hagia Sophia moskuna því hún er eitt merkasta og þekktasta mannvirki Istanbúl en hún á sér um 1.500 gamla sögu og hefur gegnt mikilvægu hlutverki í bæði kristinni og íslamskri sögu og einkennist af stórbrotnum hvelfingum, mósaíkverkum og einstökum arkitektúr. Fyrir þá sem vilja svo fara neðanjarðar geta upplifað magnaða sögu neðanjarðarvatnsgeyma borgarinnar!
Einnig er hægt að fara á ýmiskonar námskeið eins og að læra ilmvatnsgerð eða skella sér á þjóðlegar sýningar t.d. hina svokölluðu „Whirling Dervishes“ danssýningu, þar sem hringhreyfingar, tónlist og kyrrð skapa sérstaka stemningu.
Ef einhverjir eiga sér gamlan draum um að fara til Pamukkale bómullarborgarinnar eða til hinnar fornu borgar Efesusar, þá er þessi dagur tilvalinn í slíkt ferðalag!
Hér vantar alla vega ekki hugmyndir að góðum degi!
Flogið er með Turkish Airlines frá Istanbúl kl. 7:15 og er áætluð lending í Tashkent kl. 13:55.
Fararstjórar taka á móti farþegum á komusvæði flugvallarins og þaðan er ekið beint heim á hótel í Tashkent.
Farþegar koma sér fyrir á hótelinu og hvílast eftir langt ferðalag.
Frjálst síðdegis og kvöld í Tashkent.
Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð um borgina, þar sem farið verður inn í hinn heilaga hluta miðborgarinnar á Khast Imam-torgið, þar sem borgin hefur orðið minnst fyrir sovéskum áhrifum. Þar er að sjá moskur, grafhýsi og önnur söguleg mannvirki eins og gríðarstóra styttu til heiðurs þeirra sem reistu borgina eftir sterkan jarðskjálfta árið 1966, sem eyðilagði meirihluta borgarinnar.
Sjálfstæðistorgið stendur táknrænt í hjarta Tashkent en þar eru víðáttumikil græn svæði með gosbrunnum og minnisvörðum um sögulegar breytingar landsins,
Leikhústorgið með sínum skuggsælu kastaníutrjágöngum, vel snyrtu blómabeðum og gosbrunnum einkennir torgið og á því miðju má sjá óperu- og ballettleikhús borgarinnar.
Þá verður farið á Amir Temur-torgið, þar sem sjá má stóra styttu af hinum eina sanna Amir Temur en torgið einkennist einnig af risastórum gróðursælum garði með notalegri og góðri stemningu innan borgarinnar.
Að endingu verður kíkt inn í flottustu neðanjarðarlestarstöð borgarinnar áður en farið verður í heimsókn á keramikvinnustofu, Usto-Shogird, sem var stofnuð af heimsfrægum leirkerasmiðum, feðgunum Akbar Rakhimov og syni hans, Alisher Rakhimov.
Lagt verður af stað snemma dags með rútu frá hóteli til að ná háhraðalestinni frá Tashkent kl. 8:30. Áætlaður komutími til Samarkand er rétt fyrir klukkan ellefu. Við komuna verða farþegar sóttir á rútu og farið í skoðunarferð um þessa merku borg, sem hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO.
Byrjað verður á að heimsækja fornleifasvæðið Afrosiab og safn um stofnun borgarinnar, þar sem m.a. er að finna ótrúlegt vegglistaverk frá 7. öld.
Því næst verður farið að grafhýsi spámannsins Daníels, sem er einstakur staður í heiminum þar sem múslimar, kristnir og gyðingar koma til bæna.
Þá verður farið í Stjörnustöð Ulugbek, sem var reist á árunum 1428-29. En Ulugbek var barnabarn Timur hins tyrknesk-mongólska landvinningamanns sem álitinn er þjóðhetja í Úsbekistan, þar sem hann var m.a. verndari lista og vísinda.
Eftir heimsókn í stjörnustöðina verður farið í hið stórkostlega Gur-Emir grafhýsi, þar sem Timur og afkomendur hans hvíla.
Að lokinni skoðunarferð um borgina verður farið í heimsókn í silkipappírsgerð, Meros, þar sem forn silkipappírsgerð verður kynnt fyrir hópnum.
Eftir skoðunarferðina verður farið saman í kvöldmat á velvöldum veitingastað.
Eftir morgunmat verður hópurinn sóttur og farið í skoðunarferð. Byrjað verður á að fara á Registan-torgið, sem í beinni þýðingu merkir ,,sandstaðurinn“ en þar var miðpunktur Samarkand á tímum Timur hins mikla. Torgið er umkringt menntastofnunum islamstrúarinnar, Ulugbek-madrassunni, Sher-Dor-madrassunni og Tilla-Kori-madrassunni.
Þá verður hin stórkostlega Bibi-Khanum moskan skoðuð en hún er vinsæll áfangastaður á hinni frægu Silkileið og var reist til heiðurs Timur og uppáhalds eiginkonunni hans.
Eftir heimsókn í moskuna verður farið á litríkan bændamarkað, þar sem einnig fást ýmsir fallegir handverksmunir. Markaðurinn, sem er í reisulegri byggingu með hvolfþaki, er sá stærsti og fjölsóttasti í borginni.
Þá verður farið að Shakhi-Zinda grafreitum og grafhýsum frá 11. – 19. öld. Til eru þjóðsögur sem segja að þarna hafi verið reist grafhýsi fyrir gröf Kussams, sonar Abbas og frænda Múhameð.
Í lok dags verður farið í útsýnistúr um gamla rússneska hluta Samarkand-borgar, þar sem finna má hina heilögu Alexey rússnesku réttrúnaðarkirkjuna, kirkju Jóhannesar skírara og armeníska postulakirkju.
Að loknum skoðunarferðum verður snæddur kvöldverður á velvöldum veitingastað. Farið verður á sýningu í El-Merosi leikhúsinu, þar sem boðið verður upp á sýningu með þjóðlegum fatnaði.
Að endingu verður farið á Registan-torgið, sem er ljósum prýtt á kvöldin og þar leikin falleg tónlist.
Að loknum morgunverði verður farið til Bukhara-borgar. Tekin verður háhraðalest kl. 10:30 og komið til Kagan-lestarstöðvarinnar um hádegisbil.
Skoðunarferð dagsins hefst síðan í kjölfarið og verður byrjað á að fara á hið sögufræga torg, Lyabi-Khauz, sem er að finna í miðborg Bukhara en það er einkum frægt fyrir stóra og forna tjörn frá 16. öld og frægar byggingar sem umkringja hana m.a. Nodir-Divan-Beghi, Kukeldash og Khonako.
Í framhaldi af því verður farið í heimsókn til frægs leikbrúðumeistara, sem býður upp á leikbrúðusýningu upp úr þekktum bukhariskum þjóð- og skemmtisögum eftir Nasriddin Effendi.
Þá verður farið í hina sögufrægu Magoki-Attari mosku, sem er sú elsta innan borgarinnar og kíkt á gamlan markað, sem hefur verið endurreistur en þar áttu sér stað blómleg viðskipti á 14. – 17. öld. Þar er m.a. að sjá skartgripa- og hattagerð ásamt gjaldmiðlaskiptimarkaði.
Því næst verður Poi-Kalyan, trúarlegt mannvirki, barið augum en það er eitt af kennileitum borgarinnar, þar sem fágætar skreytingar einkenna byggingarnar. Við torg moskunnar er að finna baðstaði og markað sem tengist mínórettu hennar.
Þá verður hin trúarlega menntastofnun Ulugbek skoðuð, en hún er sú elsta sinnar tegundar í Mið-Asíu og er minnismerki um blómaskeið byggingarlistar á þeim slóðum en hún þykir búa yfir fágætum skreytingum, sem hafa verið notaðar sem fyrirmyndir í skreytingum annarra borga Mið-Asíu.
Þá er ekki hægt að fara til Bukhara án þess að skoða líka Abdulaziz-Khan, sem er einnig trúarleg menntastofnun frá miðri 17. öld, en hún er bæði stærri og litríkari en sú elsta, Ulugbek menntastofnunin, og hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO. Hún stendur þétt við frægan skartgripamarkað.
Skoðunarferðinni um borgina lýkur síðan á textílmarkaði, þar sem hægt er að versla vandaðan textíl, stundum kallaður ,,dýri textílmarkaðurinn“. Þar fáum við einnig að sjá vinnustofu, þar sem unnið er með náttúrulegt silki, sjáum hvernig efni er framleitt með hefðbundnum aðferðum úr silkiþráðum, ull og bómul.
Kvöldverður verður snæddur á velvöldum veitingastað.
Dagurinn hefst á morgunverði á hóteli og eftir það verður farið í skoðunarferð um borgina.
Byrjað verður á að fara að Chor Minor turnunum, fjórum mínórettu turnum, þar sem áður var bókasafn nemenda í hinum sögulega miðbæ Bukhara, sem hefur verið settur á heimsminjaskrá UNESCO.
Því næst verður farið að sumarhöll síðasta borgarstjóra Bukhara, Sitorai Mokhi-Khosa, sem hýsir í dag skrautmuna- og listasafn.
Þá verður farið að Bahauddin Nakshbandi grafreitnum, sem er álitinn afar heilagur í íslamskri trú en hann laðar til sín pílagríma alls staðar að úr heiminum.
Í skoðunarferðinni verður einnig farið að Ark-virkinu, aðalvirki borgarstjórnar Bukhara, skoðum Bolo-Khauz moskuna, sjáum Chashma-Ayub grafhýsið, sem er þekkt fyrir lækningavatn sitt og að endingu skoðum við Samaníd-grafhýsið, sem er eitt af meistaraverkum Mið-asísks arkitektúrs.
Snætt verður að velvöldum veitingastað og farið á þjóðlega tískusýningu í Nodir Divan Begi stofnuninni, þar sem saga tískunnar í Úsbekistan er kynnt ásamt dansi.
Valfrjáls dagskrá:
Eftir morgunverð á hótelinu, taka farþegar farangur sinn áður en lagt verður af stað í háhraðalestarferð í gegnum hina ótrúlegu Kyzylkum eyðimörk og til Khiva. Við komuna til Khiva innrita farþegar sig á hótelið.
Frjálst síðdegi í borginni.
Kvöldverður verður tekinn á velvöldum veitingastað.
Eftir morgunverð á hóteli verður farið í göngutúr um hina fornu borg, Ichan-Kala, sem hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO en þar er að finna yfir sextíu sögufrægar byggingar og minnisvarða.
Farið verður að nokkrum velvöldum og þekktum byggingum eins og Muhammed-Amin-Khan og Alla Kuli Khan menntastofnunum, Kalta Minor mínórettunni, Kunya-Ark virkinu, Djuma moskunni, Tash-Khauli höllinni, Khodja menntastofnuninni og mínórettunni auk hinna frægu grafreita Mausóleum Seyid Allauddin og Mausóleum Pakhlavan Mahmoud.
Að lokinni skoðunarferð verður fylgst með tréútskurði, þar sem hefðbundin tréskurðarlist verður kynnt.
Kvöldverður á velvöldum veitingastað.
Um morguninn verður ekið til flugvallarins í Urgench og flogið til Tashkent. Við komuna til Tashkent verður keyrt með rútu á hótel þar sem farþegar skrá sig inn á hótel.
Eftir hádegi verður farið á hinn stóra og skemmtilega Chorsu-markað, þar sem sala á matvælum, handverki og fatnaði fer fram.
Þá verður farið á handverkssafn frá seinnihluta 19. aldar þar sem að finna ýmsar tegundir handverks og að því loknu farið í heimsókn á útsaumsvinnustofuna Suzani Kasimbaeva, sem var stofnuð af Madina Kasimbaeva en hún er þekkt fyrir að hafa varðveitt hefðbundinn útsaum þjóðarinnar í rúm 24 ár og hefur henni hlotist sá heiður að sýna verk sín um allan heim, m.a. á British Museum.
Kvöldverður á velvöldum veitingastað.
Flogið með Turkish Airlines frá Tashkent kl. 6:05 og lent í Istanbúl kl. 9:30. Frá Istanbúl er flogið með Turkish Airlines kl. 11:50 og lent í Kaupmannahöfn kl. 14:05. Frá Kaupmannahöfn verður síðan flogið kl. 16:55 til Íslands, þar sem áætluð lending á Keflavíkurflugvelli er kl. 18:10.
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda, til dæmis með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Mikilvægt að vera heilsuhraustur, þar sem margir göngutúrar eru teknir á áfangastöðum. Þá þurfa farþegar að þola heitt loftslag, þar sem hiti getur farið um og yfir 30°C. Farþegar þurfa einnig að hafa þann hæfileika að geta aðlagast vel framandi menningarheimi og mæta tilfæringum í dagskrá með opnum huga.
Athugið að listinn er ekki tæmandi og aðeins til viðmiðunar.












