Ef ferðalög væru ókeypis... BÆ BÆ!

Hér má sjá hvað farþegum finnst um okkur

,,Þegar leiðin liggur til framandi menningarheima er ómissandi að fararstjórarnir séu starfi sínu vaxnir. Við fórum til Egyptalands í fyrra með Trausta og Rún. Þau stóðu sig óaðfinnanlega og leystu úr hvers manns vanda hratt og örugglega, enda fagfólk með áratuga reynslu. Við hlökkum til að ferðast með þeim í framtíðinni.”

Elín Albertsdóttir og Ásgeir Tómasson, ferð til Egyptalands í mars 2023

,,Ferðin gekk mjög vel, nutum okkar í botn og skemmtum okkur frábærlega. Fararstjórarnir okkar Rún og Trausti stóðu sig frábærlega og leystu af ljúfmennsku hvers manns vanda og sýndu snilli sína í mannlegum samskiptum. Sérstakar þakkir fyrir frábæra þjónustu og vonandi eigum við eftir að njóta leiðsagnar þeirra aftur á framandi slóðum.”  

Guðmundur Haukur, ferð eldri borgara til Marokkó í nóvember 2023

„Við hjónin mælum heilshugar með fararstjórn Rúnar og Trausta. Síðasta sumar ferðuðumst víða um eyjuna Tenerife á þeirra vegum og fórum um eyjuna m.a. í rútu, á bíl og fótgangandi og allt gekk eins og í sögu, vel ígrundað, skipulagt og skemmtilegt. Þau voru alltaf með vellíðan og öryggi okkar í huga og maður fann það sterkt. Það besta við ferðina með þeim var hversu fróð þau voru um staðhætti og sögu staðarins, sögðu skemmtilega frá og kynntu fyrir manni matsölustaði innfæddra, leyndar perlur eyjarinnar og náttúruna.“

Eva Rós og Jóhannes, kennaraferð til Tenerife júní 2023

,,Ég fór í ferð til Egyptalands í fyrra, þar sem Trausti og Rún voru fararstjórar í ferðinni. Ég mæli heilshugar með þeim. Traust, skemmtileg og hlý eru lýsingarorð sem koma til mín þegar ég hugsa til þeirra.”

Martha Ernstdóttir, ferð til Egyptalands í mars 2023

,,Takk, takk elsku Rún og Trausti, þið stóðuð ykkur frábærlega! Ég hef nokkrum sinnum komið til Tenerife en aldrei kynnst eyjunni eins og ég gerði í þessari ferð með ykkur. Ég fór í frábærar ferðir, þar sem allt skipulag var til fyrirmyndar og á meðan ekið var um eyjuna fengum við allskonar skemmtilegan fróðleik, sem notalegt var að hlusta á. Takk kærlega fyrir mig, pottþéttir fararstjórar sem ég mæli með. Hlakka til að fara með ykkur aftur í ferð! “

Magnea Guðný Hjálmarsdóttir, kennaraferð til Tenerife í júní 2023.

,,Við hjónin viljum þakka Rún & Trausta fyrir leiðsögnina um hinar forn-egypsku slóðir með miklum glæsibrag. Á þessum tíma brutust út átök á milli Hamas og Ísrael og var mikil öryggisgæsla, sem krafðist mikils af fararstjórum okkar m.a. í ýmsum samskiptum við löggæslu og staðarleiðsögumenn, sem þau leystu af lipurð. Þau eiga þakkir skilið fyrir hve vel þau héldu utan um hópinn og gerðu alla upplifun af ferðinni ánægjulegri. En þar sem þetta er ekki fyrsta ferð okkar, þar sem þau Rún og Trausti eru við fararstjórn, kom það okkur ekki á óvart hversu ágætir fararstjórar þau eru. Takk fyrir okkur.”

Óli og Sigrún, ferð til Egyptalands í október 2023

,,Vorið 2023  fór ég í námsferð til Tenerife ásamt hópi fólks.  Ferðin var mjög vel skipulögð og allar áætlanir stóðust eins og kostur var. Fararstjórnin einkenndist af léttu andrúmslofti, mikilli þekkingu á staðháttum, gleði, öryggi og góðri þjónustulund. Kærar þakkir fyrir mig.”

Svava Aðalbjörg Kristjánsdóttir, kennaraferð til Tenerife í júní 2023.

,,Vá, þetta var dásamleg ferð og mikil upplifun! Takk fyrir okkur.”

Kristín, ummæli af samfélagsmiðlum.

,,Þið eruð bestu fararstjórar sem við höfum haft, hugsaði oft hve örugg þið voruð, það toppar ykkur enginn.”

Þóra og Sigurjón Ari, ummæli af samfélagsmiðlum. 

,,Við þökkum kærlega fyrir okkur, góðan félagsskap og frábæra leiðsögn á áberandi fallegu máli.”

Ingibjörg, ummæli af samfélagsmiðlum.

,,Þið eruð frábær.”

Skúli, ummæli af samfélagsmiðlum.

,,Þið eruð einfaldlega best. Tenerife verður ekki eins án ykkar.”

Rósa, ummæli af samfélagsmiðlum.

,,Takk fyrir okkur, ég mun sannarlega koma aftur, þið stóðuð ykkur með mikilli prýði”

Margrét, ummæli af samfélagsmiðlum.

,Stórkostleg ferð”

Sigrún Brynja, ummæli af samfélagsmiðlum.

,,Virkilega skemmtileg ferð. Takk fyrir okkur.”

Guðbjörg Elín, ummæli af samfélagsmiðlum.

,,Einstaklega skemmtileg og fjölbreytt ferð í frábærri fararstjórn Trausta! Mæli eindregið með!”

Lilja, ummæli af samfélagsmiðlum. 

,,Fórum 13 manna vinahópur í þessa skemmtilegu og fróðlegu ferð í dag. Rún var frábær fararstjóri og allir hæstánægðir með daginn. Takk fyrir okkur.”

Steinunn, ummæli af samfélagsmiðlum.

„Einstaklega góð blanda af fræðslu, slökun, skemmtun og mat.” 

Sigríður, ummæli af samfélagsmiðlum.

„Frábær fararstjórn, húrra fyrir Rún og Trausta.”

Róbert, ummæli af samfélagsmiðlum.

,,Takk fyrir frábæra frammistöðu. Það er dýrmætt að vera vel upplýstur. Vonandi sjáumst við sem fyrst.”

Helga, ummæli af samfélagsmiðlum.