Hefur þú áhuga á því að koma með okkur í stórkostlega og ógleymanlega gönguferð í Kyrgistan? Sendu okkur þá línu á [email protected]
Tíu þúsund fet bjóða upp á sannkallaða ævintýraferð til Kirgistan, þar sem áhersla verður lögð á gönguferðir í stórbrotnu hálendi en einnig á hefðbundnar skoðunarferðir á sögulegum slóðum. Frábær ferð fyrir göngufólk sem hefur gaman af að kynnast ósnortinni náttúru á framandi slóðum, í landi sem er ríkt af sögu og heillandi menningu, með iðandi mannlífi og framandi matargerð.
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði og vönduð íslensk fararstjórn tveggja þaulreyndra fararstjóra Tíu þúsund feta.
Tíu þúsund fet kynna meiriháttar gönguævintýri í Kirgistan, þar sem fjallafegurðin er engri lík. Ferðin er ævintýri líkust, alls staðar er eitthvað nýtt og framandi til að sjá og upplifa.
Kirgistan er hin svokallaða falda perla í Mið-Asíu, þar sem himinháir tindar, jökulvötn og hirðingjamenning mætast. Meirihluti landsins er í yfir 1.500 metrum yfir sjávarmáli, sem gerir landið að einum allra besta og óspilltasta áfangastað í heimi fyrir áhugasamar fjallageitur.
Gengið er um gljúfur og dali í dásamlegu fjalllendi, þar sem er engu líkara en að tíminn hafi staðið í stað. Ólíkt mörgum gönguleiðum víða í veröldinni, þá upplifa ferðamenn sig ennþá eins og þeir séu landkönnuðir á svæðinu, þar sem hægt er að njóta vel friðsællar náttúru.
Flogið er til Kirgistan með millilendingu í Kaupmannahöfn og Istanbúl en svo tekur við ævintýralegt ferðalag, þar sem gengið verður í heillandi landslagi, fjallaþorp og borgir heimsóttar, farið í fræðandi skoðunarferðir og gist á framandi slóðum, m.a. hirðingjatjöldum í fjalllendi sem á sér fá lík í heiminum. Þá fá göngugarpar að bragða á framandi mat í óviðjafnanlegu umhverfi.
Þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar halda utan um hópinn, en þeir hafa gengið á fjöll um víða veröld og munu sjá til þess að veita fræðslu um framandi menningu og siði þjóðarinnar ásamt því að leiða hópinn um heillandi landslag Kirgistan. Ferðin einkennist af viðburðaríkri dagskrá og einstakri matarmenningu í fallegu umhverfi.
Sannkölluð póstkortaferð!
Kirgistan er heillandi landlukt land í Mið-Asíu, sem á landamæri að Kína, Tadsíkistan og Úsbekistan. Landið telur 199.951 ferkílómetra og þar búa ríflega 6 milljónir manna. Bishkek er höfuðborg Kirgistan og þar búa ríflega 3,1 milljón manna sem gerir hana að stærstu borg landsins. Í landinu er kirgíska opinbert tungumál.
Kirgistan er fjalllent en fjallahéraðið Tian Shan nær yfir 80% af öllu landinu og því er það stundum kallað ,,Sviss Asíu“, þar sem hæsti tindur er Jengish Chokusu í 7.439 metra hæð, en það er einnig nyrsta fjall í heimi. Landið liggur lengra frá sjó en nokkurt annað land í veröldinni og renna allar ár inn í lokuð vatnasvið, sem tengjast ekki úthöfum. Stöðuvatnið Issyk-Kul er annað stærsta fjallavatn heims á eftir Titikaka í Perú og Bólivíu.
Landið er mjög fjalllent þá er einungis 8% þess nýtt til ræktunar, mest á láglendi á norðurhluta þess.
Landið á sér gríðarlega langa sögu keisaravelda og rússneskrar og sovéskrar stjórnar eða þar til landið öðlaðist sjálfstæði í lok 20. aldar. Í dag er landið það annað fátækasta í Asíu og reiðir efnahagur landsins sig á jarðgas og olíu ásamt vinnslu á gulli, úran og steinkolum.
Um landið liggur hinn margrómaði og heimsfrægi 6.400 km langi Silkivegur um, þar sem hirðingjar og kaupmenn lögðu til dýrmætar vörur eins og hesta, loðskinn, ull og kálfakjöt í skiptum við silki, leirker, te, krydd og pappír.
Matarmenningin einkennist af bragðmiklum kjötréttum, mjólkurvörum, handteygðum þykkum hveitinúðlum og fersku brauði, sem eiga sér rótgróna sögu Silkivegarins, þar sem hirðingjar þurftu að geta tekið matinn með sér á ferðalögum sínum. Áhersla er lögð á ferskt hráefni, þar sem hinar ýmsu kryddtegundir eru notaðar til að bragðbæta máltíðir. Lykilatriðið er síðan að borða í góðum félagsskap.
Í Kirgistan ríkir meginlandsloftslag, með heitum sumrum á láglendi og í dölum, þar sem hiti getur farið um og yfir 40°C. Veturnir eru mjög kaldir, sérstaklega í fjallsdölum, þar sem kuldinn getur farið niður í -30°C. Loftslagið breytist hratt eftir því sem hærra er farið upp til fjalla, þá getur verið hlýtt í dölum en frost og snjór allt árið um kring á hæstu tindum landsins. Landið er frekar þurrt og eru einkum líkur á rigningu á vorin og snemmsumars. Meðalhiti á því svæði sem heimsótt verður er á bilinu 19 – 22°C. Á nóttunni getur hitinn farið niður í 4-8°C.
Ef þú ert í leit að framandi ferð, þá er þetta rétta ferðin fyrir þig!
Í Istanbúl verður gist á 4* hóteli í eina nótt með morgunverði.
Hótel hefur ekki verið staðfest.
Í Bishkek verður gist á 4* hótelinu Ambassador hotel fyrstu tvær næturnar og síðustu tvær næturnar er gist á 4* hótelinu London hotel.
Ambassador hótelið er fallegt fjögurra stjörnu hótel í hjarta Bishkek. Hótelið er með verönd og bar uppi á þaki, þar sem fallegt útsýni blasir yfir borgina og snæviþakta fjallstinda. Á hótelinu er gufubað, nuddmeðferðir og líkamsræktarstöð ásamt veitingastað sem býður upp á bæði upp matseðil heimamanna og evrópska matargerð.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárblásari.
Hótelið er vel staðsett í göngufæri við miðborgina.
London hótelið, sem gist verður á í lok ferðar í Bishkek er fallegt fjögurra stjörnu hótel í hjarta Bishkek. Hótelið er með verönd og fallegum garði, líkamsræktarstöð og veitingastað sem býður upp á asískan og alþjóðlegan mat.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárblásari.
Hótelið er vel staðsett í göngufæri við miðborgina.
Í Chon-Kemin er gist á Kemin Mountain Lodge eða Ashu Guesthouse í eina nótt.
Gistiheimilið Kemin Mountain Lodge, sem er þriggja stjörnu, er staðsett í hinum fallega Chon-Kemin-dal við rætur Tian Shan-fjallgarðsins. Gistiheimilið er úr timbri og minnir einna helst á svissneskan skíðaskála, þar sem andrúmsloftið einkennist af hlýleika og rólegheitum. Hér er hefð fyrir því að fara úr skóm áður en stigið er inn á gististaðinn og fá gestir þess afhenda inniskó. Á gistiheimilinu er verönd og garður, þar sem hægt er að sóla sig. Á veitingastað gististaðarins er boðið upp á kirgiska og asíska matargerð.
Herbergin eru snyrtileg og með góðum rúmum og í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling. Frí Wi-Fi tenging er á sameiginlegu svæði.
Hótelið er staðsett í miðborginni og er stutt í allar áttir.
Á norðurströnd Issyk-Kul er gist á 3* hótelunum Silence hotel eða Karven hotel í eina nótt.
Silence hotel er fallegt þriggja stjörnu hótel með útsýni að strönd Issyk-Kul-vatns. Þar er sameiginleg setustofa, verönd og veitingastaður.
Herbergin eru snyrtileg og snúa ýmist til fjalla eða yfir vatnið og eru öll herbergin með svalir. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling og frí Wi-Fi tenging.
Í Karakol er gist á 4* hótelinu Reina Kench hotel í þrjár nætur.
Hótelið, er vistvæn bændagisting staðsett í um 15 km fjarlægð frá borginni Karakol í friðsælu sveitaumhverfi nálægt þorpinu Tepke við bakka Jyrgalan-ár. Þar er stórbrotið útsýni yfir Tien Shan-fjöllin. Boðið er upp á lífrænt fæði, mat sem kemur beint frá býli, þar á meðal hunang, sultur og borsook-brauð. Svæðið er einna þekktast fyrir hrossarækt og hestaferðir. Þá er að finna við hótelið heillandi garðsvæði.
Herbergin eru snyrtileg og með þægilegum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárþurrka.
Á suðurströnd Issyk-Kul er gist í hirðingjatjöldum Yurt Camp Nomad Lodge eða Oimo Tash í tvær nætur.
Hirðingjatjöldin eru staðsett á friðsælum og ósnortnum stað við suðurströnd Issyk-Kul-vatnsins, nálægt þorpinu Tamga. Hvert tjald gerir ráð fyrir allt að fjórum persónum. Tjöldin eru skreytt með handverki heimamanna, gólfin eru klædd viði og teppum og hituð með rafmagni. Hverju tjaldi fylgir sér baðherbergi með salerni og sturtu með heitu vatni.
Í tjaldbúðunum er sameiginlegt stórt veitingatjald, þar sem boðið er upp á hefðbundna rétti frá heimamönnum og oft flytja heimamenn tónlist fyrir gesti.
Athugið að wifi-tenging er ekki til staðar í tjaldbúðunum og einungis er boðið upp á að hlaða síma og myndavélar á ákveðnum tímum sólarhringsins, oftast á milli klukkan 18 og 23. Þrátt fyrir þetta er tjaldsvæðið með neyðarsamband allan sólarhringinn. Ólíklegt er að eSIM kort virki á þessu svæði.
Í Kochkor er gist á gistiheimilinu Nomads Logde guest house eða Guesthouse D&D í eina nótt.
Gistiheimilið Nomads Logde guest house er snyrtilegt fjölskyldurekið gistihús með fallegum garði, þar sem notalegt er að taka spjall undir epla- og apríkósutrjám. Veitingastaður býður upp á asískan mat og grænmetisrétti.
Herbergin eru snyrtileg og með fínum rúmum ásamt hárþurrku en ekki er boðið upp á Wi-Fi tengingu. Hótelið er staðsett í rólegu umhverfi. Sum herbergin eru með sameiginlega baðherbergisaðstöðu.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða. Athugið einnig að gististaðir geta breyst en þá er ávallt boðið upp á sambærilega gististaði eða betri. Athugið einnig að innskráning á hótelin er ávallt eftir klukkan tvö við komuna og því þarf í sumum tilfellum að geyma farangur á hóteli og skrá sig inn eftir skoðunarferðir.
Í framandi ferðum Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðina. Rún og Trausti hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í rúman aldarfjórðung ásamt því að ferðast um víða veröld. Þau munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð um Kirgistan, þar sem gott skipulag, fræðsla og umfram allt skemmtileg upplifun verður sett í forgang.
Ef þú ert að spá í fararstjórninni, þá eru hér nokkur meðmæli sem hjálpa þér vonandi við að taka ákvörðun um að koma með í þessa ævintýraferð á framandi slóðir:
,,Tíu þúsund þakkir fyrir dásamlega og vel skipulagða ferð til Istanbúl og Úsbekistan. Ég kem örugglega aftur með ykkur Veru út!“
Yvette Lau, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Mikið þakka ég ykkur fyrir dásamlega og efitrminnilega ferð til Úsbekistan. Núna er ég að melta allar upplifanir úr þessum heimi sem við vorum í og fer það mjög vel í mig.“
Jóhanna Jónasdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Kærar þakkir fyrir vel skipulagða ferð og frábæra fararstjórn. Nutum þess í botn og erum enn að melta þessa frábæru ferð“
Klara Valdís Þórhallsdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Takk kærlega fyrir okkur. Þessi ferð var frábær og við hlökkum til að ferðast með ykkur aftur.“
Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir, gönguferð á Madeira 2026
,,Takk fyrir, kæru hjón, að gera þessa göngu ógleymanlega. Vel skipulögð í alla staði. Er enn í sæluvímu. Tíu þúsund þakkir.“
Margrét Sverrisdóttir, gönguferð á Tenerife 2026
,,Kærar þakkir fyrir frábæra daga á Tenerife. Þessi ferð fær toppeinkunn frá mér.“
Helgi Guðmundsson, gönguferð á Tenerife 2026
,,Frábær ferð í alla staði og mikil fagmennska í öllu. Engin vandamál bara lausnir. Þakkir skulu þið hafa fyrir. Mæli 10.000% með.“
Guðrún Ásdís Eysteinsdóttir, gönguferð á Madeira 2025
,,Stórkostleg ferð í alla staði og frábærar gönguleiðir sem komu svo sannarlega á óvart. Yndislegir fararstjórar sem kunna sitt fag og halda vel utanum hópinn. Takk kærlega fyrir mig.“
Sigurlaug Margrét Bragadóttir, gönguferð á Tenerife 2025
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Dagskrá
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
Flogið frá Keflavíkurflugvelli með Icelandair kl. 7:40 og lent í Kaupmannahöfn kl. 12:55.
Flogið frá Kaupmannahöfn með Turkish Airlines kl. 15:00 og lent í Istanbúl kl. 19:15.
Fararstjórar taka á móti hópnum á flugvellinum og fara með honum í rútu heim á hótel í Istanbúl.
Flogið frá Istanbúl með Turkish Airlines kl. 17:00 og lent á Manas alþjóðaflugvellinum í Kirgistan kl. 0:55 þann 5. sept..
Fararstjórar taka á móti hópnum á flugvellinum og fara með honum í rútu heim á hótel í Bishkek.
Um hádegisbil verður farið í skoðunarferð um Bishkek, höfuðborg og jafnframt stærstu borg Kirgistan. Byrjað verður á að fara á aðaltorgið, Ala-Too-torgið í hjarta Bishkek, en það er einn mikilvægasti samkomustaður landsins og endurspeglar sögu þess frá tímum Sovétlýðveldisins til sjálfstæðis landsins. Ala-Too merkir ,,litríku fjöllin“, sem vísar til fjallgarðsins sem gnæfir tignarlega í bakgrunni borgarinnar og því táknræn byrjun á gönguferðinni! Frá torginu verður síðan gengið í Oak-garðinn, þar sem við virðum fyrir okkur höggmyndir, sem borginni hefur verið fært að gjöf frá hinum ýmsu listamönnum, en verkin telja yfir 200 talsins.
Í kjölfarið verður farið á markað þeirra heimamanna, sem einkennist af iðandi mannlífi og litríkum varningi en þar má m.a. finna litríkan fatnað, ullarskó, handsaumaða dúka og púðaver, handofin teppi, ullarhatta, þurrkaða ávexti, flatbrauð, kaplamjólk, hrossakjöt og minjagripi!
Síðla dags verður farið heim á hótel, þar sem farþegar geta hvílst fram að kvöldverði, sem fer fram á velvöldum veitingastað í borginni.
Eftir morgunverð hefst ferð hópsins upp í sveit og keyrt í þjóðgarðinn Chon-Kemin, sem þekur um 50 ferkílómetra landssvæði. Þjóðgarðurinn var stofnaður árið 1997 og hefur hann að geyma einstakar tegundir plantna og dýra ásamt ótrúlegu vatnasviði sem er að mestu ósnortið.
Við komuna í þjóðgarðinn snæðir hópurinn hádegisverð, en síðan verður gefinn tími til hvíldar á gististaðnum áður en haldið verður í gönguferð síðla dags að útsýnisstað með glæsilegu útsýni yfir Chon-Kemin-dalinn. Gönguferðin tekur um tvær og hálfa klukkustund og liggur meðfram landamærum við Kasakstan. Þarna einkennist náttúran af skógivöxnum dal, blómum prýddum ökrum, jökulám og vötnum.
Að loknum göngutúr verður farið að gististað, þar sem boðið verður upp á kvöldmat áður en gengið verður til hvílu.
Valfrjáls dagskrárliður – kostar aukalega
Reiðtúr um hinn ævintýralega dal, en ferðin er aðlöguð að getu reiðmanna, þ.e. bæði lengd og hraði.
Að loknum morgunverði verður keyrt í átt að hinu ískalda Issyk-Kul-vatni, sem aldrei frýs, sökum seltu, en á þessum slóðum verður mjög kalt yfir vetrartímann. Vatnið sem er áttunda stærsta vatn veraldar er gríðarstórt, um 182 km á lengd, 60 km á breidd og 660 m djúpt. Svæðið í kringum vatnið var mikilvægur áningastaður á Silkileiðinni og hefur það verið sett undir náttúruvernd. Haldið verður áfram eftir norðurströnd vatnsins til Kyrchyn-gljúfursins, sem er þekkt fyrir ótrúlega náttúrufegurð í stórbrotnu fjalllendi og þar mun hópurinn hefja gönguna. Gengið verður í fögru fjallalandslagi að hinu smaragðagræna Suttu-Bulak-vatni, sem er í um 2.600 m hæð yfir sjávarmáli. Vatnið myndaðist við upphaf 20. aldar í kjölfar öflugs jarðskjálfta, sem varð til þess að skriða bjó til farveg Ak-Suu-árinnar og til varð þetta fallega vatn. Þarna má sjá aldagamla trjáboli standa upp úr vatnsyfirborðinu, þar sem grenitré fóru undir vatn í hamförunum. Tekinn verður góður tími til slökunar við vatnið og nesti borðað áður en lagt verður af stað til Cholpon-Ata-svæðisins, þar sem hópurinn skráir sig inn á hótel við Issyk-Kul-vatnið.
Eftir morgunverð verður keyrð ægifögur leið til austurs meðfram norðurströnd Issyk-Kul-vatns, en leiðin einkennist af heillandi útsýni yfir vatnið, sem er umlukt Kungey Ala-Too og Terskey Ala-Too fjöllum. Á leiðinni verður komið við á safni til minningar Nikolay Przhevalsky, sem var frægur rússneskur landkönnuður, sem fór fjömarga leiðangra yfir Mið-Asíu á 19. öld. Ferðin endar síðan í fjórðu stærstu borg Kirgistan, Karakol, sem er þekkt fyrir einstaka blöndu af sögu, menningu og stórbrotinni náttúru. Við komuna til borgarinn verður byrjað á að fara í hádegisverð.
Að hádegisverði loknum verður farið í skoðunarferð um Karakol, þar sem byrjað verður á að skoða Dungan moskuna, sem var reist í byrjun 20. aldar fyrir samfélag múslima í Dungan en litrík trébyggingin þykir sameina einkar vel kínverskan byggingarstíl og hefðir islamstrúarinnar. Þá verður rétttrúnaðarkirkja Heilagrar þrenningar skoðuð en um er að ræða fallega trékirkju eitt helsta sögulega kennileiti Karakol.
Að lokinni skoðunarferð verður farið heim á hótel og smá tími gefinn til hvíldar áður en farið verður í heimsókn til úígúrískrar fjölskyldu, þar sem hópnum verður boðið til kvöldverðar; heimagerðar núðlur bornar fram með kjöti og grænmeti.
Eftir morgunverð verður keyrt austur fyrir Karakol-borg í Jergalan-dalinn, þar sem ganga dagsins hefst í átt að Turnaly-Kol vatni, sem er þekkt fyrir farfugla, sem þar dvelja frá vori til hausts. Leiðin liggur upp og í gegnum alpaengi og fjallahaga, þar sem gríðarlega fallegt útsýni blasir við yfir Jergalan-dal umkringdan háum fjallstindum. Gengið verður upp í 2.860 m hæð yfir sjávarmáli og nesti snætt á toppnum í friðsælli fjallafegurðunni. Sama leið verður síðan gengin tilbaka til Jergalan þaðan sem keyrt verður aftur heim á hótel í Karakol.
Kvöldverður verður snæddur á velvöldum veitingastað.
Eftir morgunverð verður keyrt að upphafi gönguleiðar hjá Ak-Suu heitavatnsuppsprettum. Um er að ræða heilsdagsgöngu, í fallegu fjallalandslagi í áttina að Kara-Beltek, þar sem hæst verður gengið upp í 2.606 m. Gengið er í gegnum skóglendi og alpaengi, sem eru umvafin stórfenglegu fjalllendi og dölum. Nesti tekið á leiðinni á velvöldum stað úti í náttúrunni. Eftir hádegishlé verður farið yfir fjallsskarðið og gengið á leiðarenda, þar sem bílstjórinn tekur á móti hópnum. Á bakaleiðinni verður þeim sem vilja, boðið upp á að fara í heitar laugar í Ak-Suu og láta þreytuna í fótunum líða úr sér. Eftir það verður ekið aftur heim á hótel í Karakol.
Um kvöldið verður farið á velvalinn veitingastað.
Að loknum morgunverði verður hópnum ekið til Polyana-gljúfurs, þar sem ganga dagsins hefst. Gengið verður áfram í fallegu fjalllendi yfir Kok-Jaiyk-fjallsskarðið og í átt til Jeti-Oguz dalssvæðis, sem einkennist af rauðbrúnum sandsteinsmynduðum klettadröngum umkringdum iðagrænum gróðri. Klettarnir hafa stundum verið kallaðir ,,Hinir sjö uxar“. Gengið er í gegnum skóglendi, alpaengi og fjallasali með fallegu útsýni Terskey Ala-Too fjöllunum. Nesti verður borðað á miðri leið. Að lokinni göngu verður keyrt að hirðingja-tjaldbúðum við suðurströnd Issyk-Kul-vatnið, þar sem boðið verður til kvöldverðar.
Eftir morgunverð í tjaldbúðunum, verður keyrt til Barskoon-gljúfurs sunnan við Issyk-Kul-vatnið. Barskoon er þekkt fyrir heillandi fjallafegurð, iðagræna barrskóga og fossa. Gengin verður stutt leið að fossunum sem eru umkringdir fjöllunum. Síðan er ekið hærra og upp til Arabel-hásléttanna, afskekkts svæðis í mikill hæð en það er einkum þekkt fyrir víðáttumikið landslag, vötn, fossa og fjallstinda. Stutt ganga verður tekin við eitt af vötnunum og friðsældar notið í dásamlegu umhverfi fjallanna. Þá verður tekið nesti og síðan haldið tilbaka að Issyk-Kul-vatninu, þar sem tími gefst til slökunar og hvíldar við vatnið.
Valfrjáls dagskrárliður – kostar aukalega
Matreiðslunámskeið, þar sem kennt verður að matreiða gufusoðnar ,,dumplings“.
Kvöldverður snæddur í tjaldbúðunum.
Eftir morgunverð í hirðingjabúðunum verður suðurströnd Issyk-Kul-vatnsins yfirgefin og ekið til Skazka-gljúfurs, sem er betur þekkt undir nafninu Ævintýragljúfrið en það er frægast fyrir litríkt sandsteinaform eftir bæði vinda og vatnsrofi. Tekin verður stutt ganga um þetta óvenjulega landslag, þar sem hægt er að dást að ólíkri lögun sandsteinanna og njóta dásamlegs útsýnis. Því næst er haldið til Shatyly, þar sem óviðjafnanlegt útsýni blasir við yfir Issyk-Kul-vatnið og nærliggjandi fjallgarða. Þar verða teknir stuttir göngutúrar.
Hádegisverður verður tekinn á veitingastað þeirra heimamanna.
Eftir hádegismatinn verður farið á hefðbundna arnarveiðisýningu, þar sem heimamenn sýna fornar hefðir í að fanga og þjálfa upp gullerni.
Valfrjáls dagskrárliður – kostar aukalega
Heimsókn í Kyzyl-Tuu þorpið, þar sem fylgst er með jurtagerð.
Eftir morgunverð heimsækjum við kvenfélagið Altyn Kol í Kochkor, þar sem heimakonur fylgja fornum hefðum í teppagerð, sem hafa verið settar á heimsminjaskrá UNESCO. Teppin eru það sem kallast þæfð teppi og skiptast einkum í tvær gerðir, Shyrdak og Ala-kiyiz og fær hópurinn sýnikennslu í því hvernig sauðaullin er þæfð og búin til litrík munstur í teppagerðinni. Síðan verður ekið í átt að Boom-gljúfri og tekin gönguferð sem endar við Konorchek-gljúfur, sem er þekkt fyrir óvenjulegt landslag með rauðum sandsteinsmyndunum, turnháum klettum og þröngri gönguleið. Nesti tekið á gönguleiðinni.
Eftir gönguferðina verður farið að Burana-turninum nálægt Tokmok. Turninn er frá 11. öld og var hluti af Balasagun, mikilvægri borg í Karakhanid-héraði við hina frægu Silkileið. Þar mun hópurinn einnig heimsækja lítið safn með safni hinna svokölluðu balbals, fornra tyrkneskra steinfígúra. Eftir þessa heimsókn verður ekið til höfuðborgarinnar, Bishkek í gegnum Chuy-dalinn.
Í borginni skráir hópurinn sig inn á hótel nýtur þess að slaka á fram að kvöldmat á velvöldum veitingastað.
Eftir morgunverð verður keyrt í Ala-Archa þjóðgarðinn, sem er staðsettur í um 40 km sunnan við höfuðborgina, Bishkek. Þjóðgarðurinn er sá vinsælasti í Kirgistan en hann er staðsettur í Kyrgyz Ala-Too fjallgarðinum. Nafnið Ala-Archa vísar til einiberja sem finna má víða í þjóðgarðinum. Farið verður í stutta gönguferð meðfram fallegri á í óviðjafnanlegu umhverfi nærliggjandi hlíða og snæviþaktra fjallstinda.
Fyrir áhugasama er hægt að fara með kláfi á útsýnisstaðnum. Um hádegisbil verður aftur ekið til Bishkek og farið á veitingastað.
Frjálst síðdegi.
Valfrjáls dagskrárliður – kostar aukalega
Heimsókn í Sumbul Banya & Spa, þar sem hægt er að láta ferðaþreytuna líða úr sér í heilsulindinni.
Lokakvöldverður verður á velvöldu veitingahúsi, þar sem boðið verður upp á þjóðlega skemmtun að hætti heimamanna.
Eftir morgunverð er hópurinn keyrður út á alþjóðaflugvöllinn Manas þaðan sem flogið er með Turkish Airlines kl. 6:05 og lent í Istanbúl kl. 9:30. Frá Istanbúl er flogið með Turkish Airlines kl. 11:50 og lent í Kaupmannahöfn kl. 14:05. Frá Kaupmannahöfn verður síðan flogið kl. 16:55 til Íslands, þar sem áætluð lending á Keflavíkurflugvelli er kl. 18:10.
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda, til dæmis með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Ferðin flokkast undir það sem kallast meðalerfið en inn á milli eru einnig léttar göngur og hefðbundnar skoðunarferðir. Mikilvægt er að göngufólk sé heilsuhraust
og geti gengið allt að 13 km í hálendi og þar sem gengið er í 1.500 – 2.900 m yfir sjávarmáli (það má í raun bera þetta saman við skíðasvæði, þeir sem þola að skíða í þessari hæð, ættu ekki að hafa áhyggjur af þessu). Þá er vert að benda á að í einni skoðunarferðinni er hæst keyrt upp í um 3.800 m hæð yfir sjávarmáli. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir þunnu fjallalofti ættu að gera viðeigandi ráðstafanir.
Þá þurfa farþegar að hafa þann hæfileika að geta aðlagast vel framandi menningarheimi og mæta tilfæringum í dagskrá með opnum huga, þar sem að veður upp til fjalla getur tekið breytingum. Þess ber þó að geta að september þykir mjög góður mánuður til fjallganga í Kirgistan. Litlar sem engar líkur á rigningu en getur verið svalt, sérstaklega á kvöldin og nóttunni.
Gistingin er á köflum framandi, m.a. gist í skálum og tjaldbúðum hirðingja og því er þar ekki um íburð að ræða, heldur frábæra upplifun.
Farþegar eru hvattir til að ferðast létt.
Mikilvægt er að láta ferðaskrifstofu vita með góðum fyrirvara ef einhver í hópnum er grænmetisæta eða vegan. Eins ef um mataróþol eða ofnæmi er að ræða.
Athugið að listinn er ekki tæmandi og aðeins til viðmiðunar.




