Í mars 2026 kvöddum við góða farþega, sem voru búnir að ferðast með okkur vítt og breitt um Senegal og Gambíu. Ný ævintýri á hverjum degi, þar sem m.a. var farið á átakanlegar slóðir þrælasölunnar, heilsað upp á apa og krókódíla, gengið með ljónum og farið í dýrasafarí, pálmavín þeirra heimamanna smakkað, glaðleg skólabörn heimsótt, góðar gjafir gefnar til skólans en Vífill Sigurðsson gaf m.a. tölvu sem mun heldur betur koma sér vel í starfi skólans. Þá var farið inn í innsta kjarna atvinnustarfsemi heimamanna og farið á grænmetis-, fiski- og handverksmarkaði. Einnig fengum við hlýlegar og góðar móttökur við óvæntri heimsókn okkar til Wolof-ættbálks í litlu sveitaþorpi og náðum þar að gleðja krakkahóp með nýjum fótbolta. Síðan var gengið út í manngerða skeljaeyju og skeljakirkjugarður barinn augum. Sigling á fenjasvæði, þar sem búsvæði yfir 600 fuglategunda er að finna og svo auðvitað eftirminnileg sigling á ferjudalli yfir Gambíufljót. Þetta er aðeins brot af viðburðaríkri dagskrá, sem farþegar okkar nutu í ferðinni. Tíu þúsund þakkir fyrir ánægjulega samveru og fyrir að velja að ferðast með Tíu þúsund fetum.
