Tíu þúsund fet bjóða upp á sannkallaða ævintýraferð til fimm Stanlanda; Kirgistan, Kasakstan, Tadsíkistan, Túrkmenistan og Úsbekistan með fræði- og útvarpskonunni, Veru Illugadóttur. Löndin er rík af sögu og heillandi menningu, með iðandi mannlífi og ljúfri matargerð. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði og vönduð íslensk fararstjórn tveggja þaulreyndra fararstjóra Tíu þúsund feta.
Tíu þúsund fet kynna meiriháttar ævintýri í Kirgistan, Kasakstan, Tadsíkistan, Túrkmenistan og Úsbekistan, þar sem sagan drýpur af hverju strái og alls staðar er eitthvað nýtt og framandi til að upplifa, silkileiðin, mósaíkskreyttar moskur, líflegir markaðir, kryddilmur í lofti, gestrisnir heimamenn stórbrotið landslag og sólsetur gerir þessa ferð til fimm helstu Stanlandanna að ógleymanlegu ferðalagi.
Flogið er til Kirgistan en svo tekur við ævintýralegt ferðalag um fjögur önnur Stanlönd, um framandi landslag og þar sem heillandi borgir verða heimsóttar og farið í fræðandi skoðunarferðir undir leiðsögn hinnar þekktu útvarpskonu, Veru Illugadóttur.
Gist verður á framandi stöðum allt frá hirðingjatjöldum til glæsilegra 5* hótela og borðað á velvöldum veitingastöðum þeirra heimamanna.
Þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar halda utan um hópinn ásamt því að útvarpskonan Vera Illugadóttir veitir fræðslu um framandi menningu og siði þjóðarinnar ásamt því að segja sögur af fólkinu á þessum slóðum. Ferðin er full af flottri dagskrá og einstakri matarmenningu í fallegu umhverfi.
Hér er frábært tækifæri til að njóta einstakrar fræðslu Veru um framandi menningu á fallegum slóðum Mið-Asíu þar sem sagan drýpur af hverju strái.
Kirgistan er heillandi landlukt land í Mið-Asíu, sem á landamæri að Kína, Tadsíkistan og Úsbekistan. Landið telur 199.951 ferkílómetra og þar búa ríflega 6 milljónir manna. Bishkek er höfuðborg Kirgistan og þar búa ríflega 3,1 milljón manna sem gerir hana að stærstu borg landsins. Í landinu er kirgíska opinbert tungumál.
Kirgistan er fjalllent en fjallahéraðið Tian Shan nær yfir 80% af öllu landinu og því er það stundum kallað ,,Sviss Asíu“, þar sem hæsti tindur er Jengish Chokusu í 7.439 metra hæð, en það er einnig nyrsta fjall í heimi. Landið liggur lengra frá sjó en nokkurt annað land í veröldinni og renna allar ár inn í lokuð vatnasvið, sem tengjast ekki úthöfum. Stöðuvatnið Issyk-Kul er annað stærsta fjallavatn heims á eftir Titikaka í Perú og Bólivíu.
Landið er mjög fjalllent þá er einungis 8% þess nýtt til ræktunar, mest á láglendi á norðurhluta þess.
Landið á sér gríðarlega langa sögu keisaravelda og rússneskrar og sovéskrar stjórnar eða þar til landið öðlaðist sjálfstæði í lok 20. aldar. Í dag er landið það annað fátækasta í Asíu og reiðir efnahagur landsins sig á jarðgas og olíu ásamt vinnslu á gulli, úran og steinkolum.
Um landið liggur hinn margrómaði og heimsfrægi 6.400 km langi Silkivegur um, þar sem hirðingjar og kaupmenn lögðu til dýrmætar vörur eins og hesta, loðskinn, ull og kálfakjöt í skiptum við silki, leirker, te, krydd og pappír.
Matarmenningin einkennist af bragðmiklum kjötréttum, mjólkurvörum, handteygðum þykkum hveitinúðlum og fersku brauði, sem eiga sér rótgróna sögu Silkivegarins, þar sem hirðingjar þurftu að geta tekið matinn með sér á ferðalögum sínum. Áhersla er lögð á ferskt hráefni, þar sem hinar ýmsu kryddtegundir eru notaðar til að bragðbæta máltíðir. Lykilatriðið er síðan að borða í góðum félagsskap.
Í Kirgistan ríkir meginlandsloftslag, með heitum sumrum á láglendi og í dölum, þar sem hiti getur farið um og yfir 40°C. Veturnir eru mjög kaldir, sérstaklega í fjallsdölum, þar sem kuldinn getur farið niður í -30°C. Loftslagið breytist hratt eftir því sem hærra er farið upp til fjalla, þá getur verið hlýtt í dölum en frost og snjór allt árið um kring á hæstu tindum landsins. Landið er frekar þurrt og eru einkum líkur á rigningu á vorin og snemmsumars. Meðalhiti á því svæði sem heimsótt verður er á bilinu 19 – 22°C. Á nóttunni getur hitinn farið niður í 4-8°C.
Kasakstan er heillandi landlukt land í Mið-Asíu og á landamæri að Rússlandi, Kína, Kirgistan, Úsbekistan og Túrkmenistan. Landið telur rúmar 2,7 milljónir ferkílómetra, sem gerir landið að níunda stærsta landi í heim og það stærsta í veröldinni sem liggur ekki að sjó. Þar búa ríflega 21 milljón manna. Astana er höfuðborg Kasakstan og þar búa ríflega 1,6 milljón manna. Stærsta borgin er Almaty með tæplega 2,4 milljónir manna og er sú borg helsta viðskiptaborg landsins. Í landinu er hið opinbera tungumál kasakska en rússneska er mikið töluð í stjórnsýslu og daglegu lífi.
Landslag Kasakstan einkennist að mestu leyti af gríðarstórum eyðimörkum og hásléttum. Hins vegar rísa hrikalegir fjallgarðar eins og Altai og Tan Shan með fram suður- og austurhluta landsins, þar sem hæsti tindurinn er Khan Tengri í tæplega 7.000 m hæð yfir sjávarmáli. Þar sem að landið er landlukt renna margar helstu ár þess inn í lokuð vatnasvið, svo sem að Kaspíahafi eða að hinu minnkandi Aralvatni. Þess má geta að Balkasvatn í Kasakstan er sérstætt fyrir þær sakir að vesturhluti þess er ferskt vatn en austurhluti saltur.
Landbúnaður er einkum stundaður á frjósömum svæðum á norðlægum svæðum landsins, þar sem ræktun á hveiti er mikil.
Landið á sér ríka sögu hirðingja, keisaravelda og síðar rússneskrar og sovéskrar stjórnar en landið öðlaðist sjálfstæði árið 1991 við hrun Sovétríkjanna. Ólíkt mörgum nágrannalöndum sínum hefur Kasakstan sterkan og vaxandi efnahag, sem drifinn er áfram af gríðarlegum náttúruauðlindum, einkum stórum olíu- og gasauðlindum ásamt því að vera stærsti framleiðandi úrans í heiminum.
Í gegnum Kasakstan lágu mikilvægar leiðir hins forna Silkivegar, þar sem kaupmenn og hirðingjar skiptust á dýrmætum vörum á borð við silki, dýrahúðir, krydd og te. Þessi menningararfur hirðingjanna setur enn stóran svip sinn á þjóðina.
Matarmenningin byggir mikið á rótum hirðingjanna, þar sem lögð er áhersla á kjötrétti, einkum hrossa- og lambakjöt og fjölbreyttar mjólkurvörur. Þjóðarrétturinn samanstendur af soðnu kjöti á breðum núðlum og er jafnan borðaður með höndunum. Gestrisni er einkennandi fyrir heimamenn og þykir þeim mikilvægt að deila máltíðum og tei með góðum vinum og fjölskyldu.
Í Kasakstan ríkir dæmigert meginlandsloftslag. Sumrin geta verið heit, sérstaklega í dölum og eyðimörkum í suðri, þar sem hiti fer stundum yfir 40°C. Veturnir eru hins vegar langir og mjög kaldir, sérstaklega á norðlægari slóðum, þar sem frostið getur farið niður í -30°C og jafnvel -40°C. Á þeim árstíma sem við ferðumst til landsins er hitastigið öllu jafna mjög þægilegt, 20-25 °C. Getur kólnað upp til fjalla og kvölds og morgna.
Tadsíkistan er heillandi land í Mið-Asíu, tvílandlukt og á landamæri að Úsbekistan, Kirgistan, Kína og Afgangistan.Landið telur 143.100 ferkílómetra og þar búa ríflega 10,8 milljónir manna. Dushanbe er höfuðborg Tadsíkistan og þar búa um 1 milljón manna. Í landinu er tadsíkíska hið opinbera tungumál.
Landið einkennist af gríðarlegu fjalllendi þar sem um 93% landsvæðisins eru þakin fjöllum, einkum Pamír-fjallgarðinum, sem oft er kallaður „þak heimsins“. Hæsta fjall landsins, Ismoili Somoni, trónir í 7.495 metra hæð yfir sjávarmáli. Þrátt fyrir að lítið landsvæði sé nýtt til ræktunar á jörðu niðri býr landið yfir miklu vatni, jöklum og jökulám.
Landið á sér langa og ríka sögu sem nær aftur til Forn-Persíu og Samanídaríkisins á miðöldum, áður en það varð hluti af rússneska veldinu og síðar Sovétríkjunum. Tadsíkistan öðlaðist sjálfstæði árið 1991 í kjölfar upplausnar Sovétríkjanna.
Um hluta landsins lágu leiðir Silkivegarins um fjöll og firnindi, þar á meðal um sögulegar borgir eins og Khujand og Penjikent, þar sem verslað var með silki, steina og handverk.
Úsbekistan er heillandi land í Mið-Asíu en það er tvílandlukt land og á landamæri að Kasakstan, Kirgistan, Tadsíkistan, Afganistan og Túrkmenistan. Landið telur 448.978 ferkílómetra og þar búa ríflega 34,5 milljónir manna. Taskent er höfuðborg Úsbekistan og þar búa ríflega 3,1 milljón manna sem gerir hana að stærstu borg Mið-Asíu. Í landinu er úsbekíska opinbert tungumál.
Landið býr við mikla þurrka og þær ár sem renna í landinu renna ekki til sjávar. Innan við tíu prósent landsvæða eru nýtt til ræktunar en meirihluti landsins er eyðimörk og fjalllendi, þar sem hæsta fjall landsins, Hazrat Sulton, trónir í 4.643 m yfir sjávarmáli.
Landið á sér gríðarlega langa sögu keisaravelda og rússneskrar og sovéskrar stjórnar eða þar til landið öðlaðist sjálfstæði í lok 20. aldar. Staðsetning landsins gerði nokkrar borgir þess að trúarlegum og viðskiptalegum miðstöðvum.
Um landið liggur hinn margrómaði og heimsfrægi 6.400 km langi Silkivegur um fornfrægar borgir eins og Samarkand, Bukhara og Khiva, sem eiga sér ríka verslunarsögu, þar sem skipst var á ýmsum varningi eins silki, kryddi, te, skrautmunum og eðalsteinum.
Matarmenningin einkennist af hollum og bragðmiklum kjötréttum, sem á sér rótgróna sögu Silkivegarins, þar sem tyrkneskra, persneskra og rússneskra áhrifa gætir mikið í matargerðinni. Áhersla er lögð á ferskt hráefni, þar sem hinar ýmsu kryddtegundir eru notaðar til að bragðbæta máltíðir. Þá er ferskt brauð og ávextir stór hluti af matarmenningunni og auðvitað er lykilatriði að borða í góðum félagsskap.
Í Úsbekistan ríkir þurrt meginlandsloftslag, þar sem meðahiti á sumrin er nálægt 40°C og meðalhiti á veturna er í kringum -25°C. Það þykir gott að ferðast til Usbekistan í október, þá er sólríkt og hitinn í kringum 15-25°C. Kólnar á kvöldin en afar litlar líkur á rigningu.
Túrkmenistan er heillandi land í Mið-Asíu en það er landlukt land og á strönd að Kaspíahafi og landamæri að Kasakstan, Úsbekistan, Afganistan og Íran. Landið telur 488.100 ferkílómetra og þar búa ríflega 7 milljónir manna. Ašgabat er höfuðborg Túrkmenistan og þar býr stór hluti þjóðarinnar, en hún er þekkt fyrir sína sérstöku hvítu marmaraborg. Í landinu er túrkmenska opinbert tungumál.
Landið einkennist af miklum þurrkum og yfir 80% af landsvæðinu er þakin Karakum-eyðimörkinni. Helstu ár landsins, eins og Amu Darya, renna á mörkum þess og landbúnaður reiðir sig mjög á áveituskurði. Í suðurhluta landsins rísa Kopet Dag-fjöllin, þar sem hæsta fjall landsins, Ayrybaba (Aýrybaba), teygir sig í 3.137 metra hæð yfir sjávarmáli.
Landið á sér langa sögu undir áhrifum ýmissa keisaravelda, Persa, Araba, Mongóla og að lokum rússneskrar og sovéskrar stjórnar, þar til landið öðlaðist sjálfstæði árið 1991. Staðsetning landsins gerði það að mikilvægum hlekk á hinum forna Silkivegi, þar sem borgir eins og Merv voru stórar og voldugar miðstöðvar vísinda, verslunar og menningar, þar sem skipst var á silki, kryddi og öðrum varningi.
Matarmenning Túrkmenistan á rætur að rekja til hirðingja- og bústofnsmenningar þar sem aðaláherslan er á kjöt, sérstaklega lambakjöt og sauðfjárafurðir. Klassískir réttir á borð við plov, hrísgrjónaréttur með kjöti, shorba eða soð og hina sérstöku dograma, blanda af elduðu lambakjöti, lauk og flatbrauði sem borðuð er við hátíðleg tækifæri eru stór hluti af matarvenjum. Ferskt brauð eða chörek, mjólkurdrykkir eins og kameldýramjólk og dásamlegar melónur eru einnig einkennandi fyrir matargerð landsins. Gestrisnin er heldur ekkert frábrugðin hinum löndunum, þar sem tedrykkjan er upphaf hverrar máltíðar í góðra vinahópi.
Í þessa ævintýralegu ferð okkar kemur Vera Illugadóttir með okkur þar sem útvarpskonan skemmtilega fræðir okkur á sinn einstaka hátt um sögu og siði landann fimm.
Vera er íslensk útvarpskona og rithöfundur. Hún vinnur sem dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu og hefur frá árinu 2016 verið framleiðandi og þulur útvarps- og hlaðvarpsþáttarins Í ljósi sögunnar á Rás 1.
Vera er dóttir blaðamannsins Illuga Jökulssonar og leikkonunnar Guðrúnar S. Gísladóttur.
Flogið frá Keflavíkurflugvelli með Icelandair kl. 7:35 og lent í Brussel kl. 12:55.
Flogið frá Brussel með Turkish Airlines kl. 14:30 og lent í Istanbúl kl. 18:55.
Flogið frá Istanbúl með Turkish Airlines kl. 20:30 og lent í Bishkek kl. 04:40, þann 4. október.
Fararstjórar taka á móti hópnum á flugvellinum og fer með honum í rútu heim á hótel.
Athugið: Um tengiflug er að ræða og því þurfa farþegar ekki að sækja farangur og skrá sig aftur inn.
Frjáls dagur fram til síðdegis í Bishkek til að hvílast eftir ferðalagið.
Síðdegis verður farið í skoðunarferð um höfuðborgina. Kíkt m.a. á aðaltorg borgarinnar, Ala Too-torgið, þar sem má m.a. sjá minnisvarða af þjóðhetjunni Manas og farið í almenningsgarð borgarinnar, Oak-garðinn, sem er sá elsti í borginni með fallegum trjágróðri, plöntum og skreyttum 90 listaverkum.
Eftir morgunverð byrjar dagurinn á þjóðlegum nótum, þar sem farið verður á Þjóðminjasafn Kirgistan í Bishkek, sem hefur að geyma yfir 90.000 safngripi frá fornöld og hirðingjamenningu landins og til tíma yfirráða Sovétríkjanna og til sjálfstæði landsins.
Að lokinni heimsókn á safnið verður lagt af stað til Chon Kemin-dalsins og einkennist leiðin þangað af einstaklega fallegu fjalllendi Kirgistan. Á leiðinni verða gerð nokkur stop til þess að dást og njóta fegurðarinnar, en einnig verður farið að Burana-turninum í Tokmok, 25 metra hár múrsteinsturn, sem tilheyrði hinni sögufrægu borg Balasagun frá 11. öld en þar var mikilvægur áfangastaður silkileiðarinnar.
Við komuna í hinn græna Chon Kemin-dal, skrá farþegar sig inn á gistiheimili og njóta sveitasælunnar í rólegu og fallegu umhverfi, þar sem hægt er að taka göngutúr og jafnvel fara á hestbak.
Kvöldverður á fjölskyldureknu gistiheimili.
Eftir morgunverð tekur við notalegur dagur í þjóðgarðinum Chon-Kemin, sem þekur um 50 ferkílómetra landssvæði. Þjóðgarðurinn var stofnaður árið 1997 og hefur hann að geyma einstakar tegundir plantna og dýra ásamt ótrúlegu vatnasviði sem er að mestu ósnortið.
Farið verður í gönguferð um grösugan og skógivaxinn dalinn með blómum prýddum ökrum ásamt jökulám og vötnum m.a. að útsýnisstað með glæsilegu útsýni yfir Chon-Kemin-dalinn, sem liggur meðfram landamærum við Kasakstan.
Áhugasamir geta einnig farið á hestbak (valfrjálst og kostar aukalega)
Kvöldverður á fjölskyldureknu gistiheimili.
Eftir morgunverð, verður keyrt í átt til Karakol, fjórðu stærstu borg Kirgistan, en hún er þekkt fyrir einstaka blöndu af sögu, menningu og stórbrotinni náttúru. Á leiðinni verður keyrt eftir ægifagurri aksturleið meðfram norðurströnd hins ískalda Issyk-Kul-vatns, sem aldrei frýs, sökum seltu, en á þessum slóðum verður mjög kalt yfir vetrartímann. Vatnið sem er áttunda stærsta vatn veraldar er gríðarstórt, um 182 km á lengd, 60 km á breidd og 660 m djúpt. Svæðið í kringum vatnið var mikilvægur áningastaður á Silkileiðinni og hefur það verið sett undir náttúruvernd. Komið verður við á nokkrum velvöldum útsýnisstöðum, þar sem gefst tækifæri til að njóta dásamlegs útsýnis yfir vatnið umvafið tignarlegum fjallgörðum.
Við komuna til Karakol skrá farþegar sig inn á gistiheimili og snæða kvöldverð.
Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð að Jeti-Oguz dalssvæðinu, sem einkennist af rauðbrúnum sandsteinsmynduðum klettadröngum umkringdum iðagrænum gróðri. Klettarnir hafa stundum verið kallaðir ,,Hinir sjö uxar“. Þar er einnig hið stórkostlega Kok Djayik gljúfur. Þarna fær hópurinn tækifæri til að rölta um og njóta hinnar heillandi náttúruperlu.
Þá verður aftur ekið til Karakol, þar sem tekin verður létt skoðunarferð um borgina, en hún hefur m.a. að geyma sérstaka litríka mosku, sem þykir sameina vel bæði kínverskan og hefðbundinn stíl islamstrúarinnar. Í borginni er einnig að sjá fallega trékirkju, rétttrúnaðarkirkju heilagrar þrenningar, sem er eitt helsta sögulega kennileiti borgarinnar.
Kvöldverður snæddur í Karakol.
Eftir morgunverð verður Karakol-borg kvödd og ekið yfir landamæri Kirgistan og Kasakstan. Þegar til Kasakstan verður komið verður keyrt að hinu óviðjafnanlega Charyn-gljúfri, sem er eitt vinsælasta og stórfenglegasta náttúruperla Kasakstan. Gljúfrið hefur stundum verið kallað ,,litli bróðir“ Miklagljúfurs í Bandaríkjunum. Gljúfrið er um 154 km langt og þykir fegurð þess og friðsæld einstök. Gljúfrið hefur auk þess að geyma leyndardóma sem tengjast þjóðsögum um nornir, rauða úlfa og veginn til helvítis!
Frá gljúfrinu er ekin falleg akstursleið til Almaty-borgar, þar sem hópurinn snæðir kvöldverð.
Eftir morgunverð á hótelinu, verður byrjað á að fara á Græna markaðinn, Zelyony Bazar, sem er litrík matarkista, sem býður upp á ferska ávexti, krydd og sérrétti þeirra heimamanna. Kíkt verður í Rakhat-súkkulaðibúðina, þar sem hægt er að kaupa ekta bragðgott kasakst súkkulaði. Gengið verður um Panfilov-garðinn, þar sem eina merkustu timburbyggingu heims er að finna, Zenkov-dómkirkjuna. Þjóðminjasafn hljóðfæra verður heimsótt, þar sem ótrúlegt úrval þjóðlegra hljóðfæra er að finna. Þá verður kíkt á Mið-Asíu safnið, sem leiðir hópinn í gegnum ríka sögu Kasakstan, allt frá fornri sögu hirðingjatímans til nútímans en á safninum má sjá einstaka gripi, sem hafa varðveist í tímanna rás. Að lokum verður farið upp á Kok Tobe-hæðina, þar sem hinn 372 metra hái sjónvarpsturn stendur. Þar er frábær útsýnispallur sem býður upp á útsýni yfir Almaty-borg en auk þess er þar að finna, ótrúlegt en satt, minnisvarða tileinkaðan Bítlunum!
Að loknum morgunverði verður farið í skoðunarferð stutt frá borginni. Byrjað verður að fara í Medeo-gljúfrið, þar sem staldrað verður við hina risastóru Medeo-stíflu en hún verndar borgina gegn aurflóðum og grjóthruni úr fjöllunum. Hún þykir mikið verkfræðilegt afrek og einnig heimsþekkt fyrir risastóra skautahöll.
Því næst verður boðið upp á ferð með kláfi á skíðasvæði Shymbulak, sem er staðsett í dásamlegum dal Zailiyskiy Alatau-fjallgarðsins í 2.260 m yfir sjávarmáli og þaðan býðst magnað útsýni yfir snæviþakta tinda Tien Shan-fjallanna.
Skoðunarferðinni lýkur síðan í borginni, þar sem farið verður á nýlistasafn, þar sem sýning á verkum eftir bæði kasakska og alþjóðlega listamenn er að finna í glæsilegri byggingu.
Í lok dags verður svo gengið um Arbat og Panfilov stræti, sem einkennast af líflegri menningu með götulistamönnum, tónlist, kaffihúsum, verslunum og fallegum gróðri sem umvefur gamlar byggingar. Þá verður farið í neðanjarðarlestarstöðina, sem þykir minna á neðanjarðarhöll en hún er með þeim fallegustu í heimi, skreytt marmara, mósaíkverkum og stórum fallegum ljósakrónum.
Að loknum morgunverði verður haldið yfir til nýs lands og flogið til Dushanbe, höfuðborgar og jafnframt stærstu borgar Tadsíkistan. Fararstjórar taka á móti farþegum á flugvellinum og farið beint heim á hótel, þar sem farþegar geta hvílst og notið frjáls tíma það sem eftir lifir dags. Þess má geta að hótelið er staðsett í miðborginni og er aðeins um kortersgangur að mörgum af helstu kennileitum borgarinnar, torgum, söfnum, görðum, verslunum og veitingastöðum.
Eftir morgunverð verður farið á Þjóðminjasafn Tadsíkistan, þar sem einn stærsta og mikilvægasta fornleifafund Mið-Asíu er að finna, hina 13 metra háu Búdda-styttu af honum liggjandi. Því næst verður tekinn göngutúr um ákaflega fallegan grasagarð, sem er í miklu uppáhaldi hjá heimamönnum. Þá verður komið við á litríkum markaði sem iðar af mannlífi og framandi varningi. Að lokum verður ekið að Hissar-virkinu, sem er staðsett rétt utan við borgina, þar var m.a. mikilvæg miðstöð Silkivegarins og aðsetur héraðshöfðingja. Við hlið þess er að sjá tvo látlausa kóranskóla, madrassah, annan frá 18. öld og hinn frá 19. öld og handan þeirra er svo að sjá grafhýsi frá 16. öld, byggingar sem sýna ríka sögu islam á svæðinu.
Að lokinni skoðunarferð verður keyrt heim á hótel í Dushanbe.
Eftir morgunverð liggur leiðin upp á hálendi, þar sem ekið verður upp í 2.255 m hæð yfir sjávarmáli að Iskandarkul-vatni, sem er staðsett í Fann-fjöllunum, sem er að margra mati einn fegursti staður Mið-Asíu. Nafn vatnsins er tilkomið frá Alexander mikla, sem kallaður er Iskander í Austurlöndum en til eru áhugaverðar þjóðsögur um hann tengjast þessu svæði. Vatnið sjálf þykir einstakt, m.a. vegna síbreytilegs litar, sem er ýmist djúpblátt og grænblátt eftir birtu og árstíðum. Það hefur laðað að sér fjallgöngufólk, sem hefur dálæti af að ganga í stórbrotnu landslagi Fann-fjallanna, frá öllum heimshornum. Nálægt vatninu er öflugur foss, sem oft er kallaður Niagara-foss Fann-fjallanna, þar sem áin úr vatninu steypist niður þröng gljúfur. Gefið verður gott tækifæri til að ganga meðfram strönd vatnsins og njóta fegurðarinnar ásamt því að ganga í um 40 mínútur að hinum tilkomumikla fossi.
Tadsíkistan er geymir mestu vatnsforðabúr Mið-Asíu með yfir 1.000 ár, 2.000 vötn og 8.000 jökla!
Eftir að hafa notið lífsins í þessari náttúruperlu, verður ekið til Khujand, þar sem dvalið verður á hóteli.
Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð um Khujand, sem er ein elsta borg Mið-Asíu, stofnuð af Alexander mikla en hún hefur að geyma yfir 2.500 ára gamla sögu. Þar var mikilvæg miðstöð og áfangastaður hins sögulega Silkivegar.
Byrjað verður á að fara á Museum of Archeology and Fortification, safn sem fannst innan virkisveggja upphaflega frá 7. og 8. öld í miðjum norðurhluta borgarinnar. Virkið sem umkringdi borgina hefur margoft verið eyðilagt í innrásum en ávallt endurbyggt, síðast á 18. öld.
Farið verður að mosku og grafhýsi Sheikh Muslihiddin, sem var valdamikill emír en jafnframt m.a. guðfræðingur, dulspekingur, kennari og skáld. Því næst veður kíkt á Payshanba-markaðinn, sem er einn stærsti markaður Mið-Asíu og þar gefast heldur betur tækifæri til að gleðja öll skilningarvitin.
Þá verður ekið að landamærum Tadsíkistan og Úbekistan, Oibek og um 1.000 metra leið gengin yfir þau, svæði sem telst vera hlutlaust svæði. Í Úsbekistan taka nýir staðarleiðsögumenn á móti hópnum og verður ekið til höfuðborgar Úsbekistan á hótel þar í borg.
Farþegar fá morgunverðarbox áður en lagt verður af stað í flug frá Tashkent til Urgench, þaðan sem keyrt verður á hótel í Khiva.
Þegar farþegar hafa skráð sig inn á hóteli verður hist í gestamóttöku og lagt af stað í skoðunarferð um gamla borgarhlutann innan virkisins, en hann hefur verið settur á heimsminjaskrá UNESCO, þar sem finna má um og yfir sextíu fornar byggingar, hallir, moskur, mínórettur, trúarskóla og grafhýsi. Eftir að hafa heimsótt nokkrar af helstu byggingum hinnar fornu borgar verður fylgst með tréskurðarhandverksmanni að störfum.
Að loknum morgunverði er verður ekið að landamærum Úsbekistan og Túrkmenistan. Þar þurfa farþegar að fara með litlum rútu yfir hlutlaust 1 km langt landssvæði og þaðan er síðan farið í gegnum vegabréfseftirlit og er mikilvægt að vera með vegabréfsáritun. Þá þarf hver farþegi að greiða 2 bandaríska dollara (mikilvægt að vera með þá tilbúna í seðlum). Þegar allir hafa skilað sér yfir landamærin er farið til Tashauz og borðaður hádegisverður, síðan er ekið í Karakum-eyðimörkinni til Darvaza eða ,,Hliðinu til heljar“ en um er að ræða einn sérstakasta stað veraldar, ,,logandi gasgíg“ þar sem eldur hefur logað óslitið í ríflega 50 ár.
Hópurinn nýtur sólarlags í eyðimörkinni og gistir í hirðingjatjöldum.
Að loknum morgunverði í tjaldbúðunum verður ekið til Ashgabat-borgar, en á leiðinni munu m.a. hverir af ýmsu tagi bera fyrir augu.
Við komuna til Ashgabat skrá farþegar sig inn á hótel og koma sér fyrir.
Síðla dags verður farið í útsýnistúr, þar sem komið verður m.a. við hjá minnisvarða um fórnarlömb jarðskjálftanna 1948, þá verður farið að Ertugrul Gazi-moskunni, sem er ein fegursta moska borgarinnar, en henni hefur stundum verið líkt við Bláu moskuna í Istanbúl og þykir hún vera tákn um vináttu Tyrkja og Túrkmenista. Að lokum verður farið á Gulistan-markaðinn, sem einnig er þekktur undir nafninu Rússneski markaðurinn en hann er einn elsti og líflegasti markaður borgarinnar, þar sem kjörið tækifæri gefst til að kaupa síðustu minjagripina í ferðinni, handverk, teppi, skartgripi o.s.frv.
Að loknum morgunverði verður ekið til Old Nisa, hinnar fornu höfuðborgar Parþaveldisins, sem var stofnuð á 3. öld fyrir Krist. Borgin hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO.
Því næst verður farið á svæði, sem er þekkt fyrir hina fágætu Akhal-teke hesta, sem eru þekktir fyrir glansandi feld og gríðarlegt úthald en þeir eru ein elsta kynslóð hesta í heimi um 5.000 ára gömul. Hópurinn fær tækifæri til að heimsækja Ashir, túrmenskan hrossaræktanda.
Á leiðinni aftur til borgarinnar, Ashgabat, verður komið við í Gypjak, þorpinu, þar sem við skoðum Turkmenbashi-andlegu moskuna. Moskan er sú stærsta í landinu og var reist af forsta landsins Saparmurat Niyazov og hýsir grafhýsi hans.
Við komuna til Ashgabat, verður farið í útsýnistúr um borgina, þar sem skoðaðir verða merkir minnisvarðar og opinberir staðir, sem endurspegla nýlega sögu landsins og byggingarlist. Farið verður m.a. í Sjálfstæðisgarðinn, sem er stærsti almenningsgarður höfuðborgarinnar, þar sem m.a. má sjá um 118 metra háan turn reistan til að minnast sjálfstæðis frá Sovétríkjunum, farið verður á hið glæsilega Hallartorg, sem er umkringt marmarklæddum byggingum með gullnum hvolfþökum en mitt torgið er prýtt stórum gosbrunni, einnig verður minnisvarði hlutleysisins skoðaður, en um er að ræða 95 metra háan útsýnisturn, sem var reistur sem tákn um einingu og hlutleysi landsins. Á toppi turnsins má sjá 12 metra háa gullstyttu af fyrsta forseta landsins, Saparmurat Niyazov. Þá verður einnig farið að hinni 9 metra háu bókastyttu, Rukhnama svo fátt sé upp talið.
Að lokinni skoðunarferð, verður ekið heim á hótel.
Að loknum morgunverði verður frjáls tími, þar til farþegar verða sóttir heim á hótel og keyrðir út á flugvöll, þaðan sem flogið verður til Íslands. Áætlað flug er með Turkish Airlines frá Ashgabat í Túrkmekistan kl. 8:15 og er áætluð lending í Istanbúl kl. 10:25. Frá Istanbúl er áætlað flug með Turkish Airlines kl. 11:50 og lending í Kaupmannahöfn kl. 14:05. Heimflugið frá Kaupmannahöfn er síðan áætlað kl. 16:55 og koma til Keflavíkurflugvallar kl. 18:15.
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda, til dæmis með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Í Bishkek verður gist á 5* hótelinu Novotel í eina nótt með morgunverði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með innisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði og heilsulind, þar sem hægt er að fara í nudd og snyrtimeðferðir. Á hótelinu er veitingastaður sem býður upp á blöndu af alþjóðlegum og asískum réttum.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging, hárblásari og aðstaða til að laga kaffi eða te.
Hótelið er vel staðsett á Manas-breiðgötunni í göngufæri við miðborgina.
Í Chon Kemin verður gist á gistiheimili Kemin í 2 nætur með morgunverði.
Um er að ræða notalegt fjölskyldurekið gistiheimili við rætur tignarlegra fjalla Chon Kemin-dalsins. Þar er veitingastaður sem býður upp á heimatilbúna rétti. Fallegt garðsvæði til útivistar.
Herbergin eru einföld en snyrtileg og með þægilegum rúmum.
Frí Wi-Fi tenging er á sameiginlegu svæði.
Gististaðurinn er á friðsælum og fallegum stað uppi í sveit og stutt í alla útivist, gönguferðir og hestaferðir.
Í Karakol verður gist á gistiheimili Green Yard í 2 nætur með morgunverði.
Huggulegur heimilislegur gististaður í fallegu umhverfi. Á staðnum er veitingastaður, sem býður upp á fjölbreytt úrval af bæði innlendum og alþjóðlegum réttum. Þar er einnig hægt að fara í nuddmeðferðir. Við gististaðinn er fallegur garður, þar sem hægt er að hafa það notalegt yfir kaffibolla.
Herbergin eru snyrtileg, rúmgóð og björt. Í þeim eru öll helstu þægindi, frí Wi-Fi tenging og hárblásari.
Gististaðurinn er staðsettur í um 30 mínútna göngufjarlægð frá miðborg Karakol.
Í Almaty verður gist á 4* hótelinu Kazzhol Park í 3 nætur með morgunverði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta, með fallegum garði, innisundlaug, líkamsræktarstöð og heilsulind. Á hótelinu er einnig veitingastaður með ljúffengum réttum, sem allir eru eldaðir úr lífrænum hráefnum.
Herbergin eru rúmgóð, snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi, loftkæling, frí Wi-Fi tenging, aðstaða til að laga kaffi og hárþurrka.
Hótelið er staðsett í fallegu hverfi nálægt áhugaverðum stöðum í miðborginni.
Í Dushanbe verður gist á 5* hótelinu Rumi í tvær nætur með morgunverði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta en þar er innisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubað og heilsulind, þar sem hægt er að njóta slakandi nuddmeðferðar. Á veitingastað hótelsins er boðið upp á úrval alþjóðlegra rétta.
Herbergin eru nútímaleg og snyrtileg með þægilegum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi, loftkæling, frí Wi-Fi tenging, hárblásari og og aðstaða til að hita kaffi og te.
Hótelið er mjög vel staðsett í hjarta borgarinnar og í göngufæri við öll helstu kennileiti miðborgarinnar og Rudaki-garðinn.
Í Khujand verður gist á 5* hótelinu Parliament Palace hotel í eina nótt með morgunverði.
Fallegt hótel við bakka Syr-Darya-fljótið. Þar er útisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubað og heilsulind, þar sem boðið er upp á tyrkneskt bað (hammam) og nuddmeðferðir. Á hótelinu er veitingastaður, sem býður upp á alþjóðlega rétti.
Herbergin eru rúmgóð og með svölum sem bjóða upp á útsýni yfir fjöll eða fljótið. Öll helstu þægindi er að finna inn á herbergjunum, loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárblásari.
Hótelið er í stuttri göngufjarlægð frá miðbænum.
Í Tashkent verður gist á 4* hótelinu Crowne Plaza í þrjár nætur með hálfu fæði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með innisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði og heilsulind til að fara í snyrtimeðferðir og nudd ásamt góðum veitingastöðum sem bjóða upp á úrval af Austur-evrópskum, asískum og alþjóðlegum sérréttum.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárblásari.
Hótelið er vel staðsett í göngufæri við miðborgina.
Í Khiva verður gist á 4* hótelinu Mercure Khiva í eina nótt með morgunverði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með innisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði og heilsulind, þar sem hægt er að fara í nudd og snyrtimeðferðir. Á hótelinu er veitingastaður sem býður upp á blöndu af alþjóðlegum og asískum réttum m.a. hinn vinsæla plov-rétt. Á hótelinu er þakverönd með útsýni yfir gamla bæinn í borginni.
Herbergin eru snyrtileg og með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging og hárblásari.
Hótelið er mjög vel staðsett í stuttri göngufjarlægð frá hinum forna bæjarhluta borgarinnar.
Í Darvaza verður gist í hirðingjatjöldum í eina nótt með morgunverði.
Í Karakum-eyðimörkinni verður gist í hefðbundnum hirðingjatjöldum, en þau eru skreytt með fallegum túrkmenískum teppum og vefnaði. Hvert tjald er útbúið þægilegum rúmum og hreinum sængurfatnaði ásamt teppum. Möguleiki á að fá aukateppi og hitara fyrir þá kulsæknu.
Í tjaldbúðunum er sameiginlegt stórt veitingatjald, þar sem boðið er upp á heita og ferska rétti, grillmat, salöt og nýbakað brauð og auðvitað te! Athugið að salernisaðstaða er miðuð við frumstæðar aðstæður og er með einföldum hætti.
Tjaldbúðirnar eru staðsettar í stuttri göngufjarlægð frá hinum heimsfræga logandi gasgíg, hliðinu til heljar!
Í Ashgabat verður gist á 5* hótelinu Yyldyz í tvær nætur með morgunverði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með innisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði og heilsulind, þar sem hægt er að fara í nudd og snyrtimeðferðir. Á hótelinu er veitingastaður sem býður upp á blöndu af alþjóðlegum og asískum réttum.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg með góðum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging, hárblásari og aðstaða til að laga kaffi eða te.
Hótelið er vel staðsett í fínu hverfi við rætur Kopet Dag-fjallanna með útsýni yfir borgina.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða. Athugið einnig að gististaðir geta breyst en þá er ávallt boðið upp á sambærilega gististaði eða betri. Athugið einnig að innskráning á hótelin er ávallt eftir klukkan tvö við komuna og því þarf í sumum tilfellum að geyma farangur á hóteli og skrá sig inn eftir skoðunarferðir.
Í framandi ferðum Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðina. Rún og Trausti hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld. Þau munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð um Stanlöndin fimm, þar sem gott skipulag, fræðsla og umfram allt skemmtileg upplifun verður sett í forgang.
Ef þú ert að spá í fararstjórninni, þá eru hér nokkur meðmæli sem hjálpa þér vonandi við að taka ákvörðun um að koma með í þessa ævintýraferð á framandi slóðir:
,,Tíu þúsund þakkir fyrir dásamlega og vel skipulagða ferð til Istanbúl og Úsbekistan. Ég kem örugglega aftur með ykkur Veru út!“
Yvette Lau, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Kærar þakkir fyrir vel skipulagða ferð og frábæra fararstjórn. Nutum þess í botn og erum enn að melta þessa frábæru ferð“
Klara Valdís Þórhallsdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Bestu þakkir fyrir alveg frábæra ferð með dásamlegum farastjórum. Draumaferð mín stóðst allar mína væntingar. Tíuþúsund þakkir.“
Sigríður Jóhannsdóttir, Japan 2026
,,Ferðin til Japans var algjörlega ógleymanleg. Við skoðuðum tignarleg hof, hallir og helgidóma. Upplifðum hvernig ævafornar hefðir fléttast saman við nútímasamfélag þar sem agi og gagnkvæm virðing ráða ríkjum. Það var heillandi að kynnast nýjum menningarheimi, allt frá framandi matargerð til einstakra siða. Skipulag ferðarinnar var til fyrirmyndar og fararstjórarnir stóðu sig frábærlega.“
Áslaug og Geir, Japan 2026
,,Mögnuð ferð. Takk fyrir okkur.“
Vífill Sigurðsson, Senegal og Gambía 2026
,,Takk fyrir okkur. Skemmtileg og fræðandi ferð“
Helen Sif Halldórsdóttir, Senegal og Gambía 2026
,,Innilegar þakkir fyrir okkur. Ferðin var æði og þið frábærir fararstjórar. Uppfull af fróðleik og skemmtilegheitum. Við eigum sko eftir að fara með ykkur í fleiri ferðir og mælum með ykkur við vini og vandamenn“
Jóhanna Erla Birgisdóttir, Hringferð um Marokkó 2025
,,Hjartans þakkir fyrir frábæra ferð. Við fengum að sjá svo marga stórkostlega staði og fræðast um fólk og atburði löngu liðanna tíma. Ógleymanlegt ferðalag. Takk Rún, Trausti og Illugi.Við Styrmir mælum svo sannarlega með Tíu þúsund fetum.“
Helga María Jónsdóttir, Sagan öll með Illuga Jökuls á Suður-Ítalíu 2025
,,Takk fyrir þessa ferð til Grænlands þvílík upplifun og fróðleikur um menningu og sõgu. Mikill kærleikur hjá fararstjórum og fólkið sem var með mér í ferðinni var svo yndislegt“
Ragnar Guðjónsson, Grænland 2025
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Dagskrá
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
Þessi framandi ferð til fimm Stanlanda er fyrir ferðavant fólk, sem setur það ekki fyrir sig að ferðast á milli staða í rútu og með flugi og skipta reglulega um gististaði.
Mikilvægt að vera heilsuhraustur, þar sem margir göngutúrar eru teknir á áfangastöðum.
Farþegar þurfa einnig að hafa þann hæfileika að geta aðlagast vel framandi menningarheimi og mæta tilfæringum í dagskrá með opnum huga.
Gist er á ýmist hótelum, á gistiheimilum eða í hirðingjatjöldum og er íburður mismikill, allt frá hefðbundnum sveitagistingum til glæsihótela.
Hitastig á þessum árstíma er venjulega í kringum 20 – 25 gráður en getur kólnað á milli kvölds og morgna.
Athugið að listinn er ekki tæmandi og aðeins til viðmiðunar.


























