Langar þig til að upplifa stórkostlega menningu og fegurð Kína og Tíbet með Rún og Trausta?Sendu okkur þá línu á [email protected]
Sannkölluð ævintýraferð á framandi slóðir Kína og Tíbet. Farið verður á slóðir þar sem náttúran gerist vart fallegri í öllum heiminum og heimsækjum við einstaka bæi og þorp og kynnumst framandi menningu þeirra. Heimsfrægar söguslóðir og villt dýralíf verður líka stór hluti af upplifuninni í þessari stórmögnuðu ferð, þar sem engu verður til sparað. Hér er einfaldlega á ferðinni draumaferð sem ekkert ævintýrafólk ætti að missa af, þar sem góður félagsskapur, náttúra, menning, saga, matur og drykkir leika stórt hlutverk.
Tíu þúsund fet kynna meiriháttar ævintýraferð um Kína og Tíbet, þar sem hver sögu- og náttúruperlan rekur hver aðra. Dvalið er á huggulegum hótelum, þar sem vel fer um farþega.
Þetta magnaða ferðalag byrjar á flugi til Peking í Kína, þar sem gefst tími til að skoða merka staði borgarinnar eins og hlið hins himneska friðar og heimsókn til hinnar forboðnu borgar, sem á sér fimmhundruð ára sögu allt frá því að hún var keisarahöll með aðeins 999,5 herbergjum! Þá verður að sjálfsögðu tekinn göngutúr á Kínamúrnum, sem er einn af sjö undrum veraldar!
Frá Peking verður flogið til Chengdu, borgar risapöndunnar, þar sem keyrt verður í einstöku umhverfi borgarinnar, þar sem framandi byggingarstíll ber fyrir augum og kínversk tehús á hverju horni. Rúsínan í pylsuendanum verður svo án efa fjallaferð, þar sem við heilsum upp á risapöndur. Í grenndinni eru þægilegar gönguleiðir innan um falleg fjöll, dali og falleg þorp Tíbet sem einkennast af hofum með gylltum þökum og hvítlitum húsum Tíbeta.
Þetta er einfaldlega heimshluti sem er stórkostlegt að heimsækja!
Sannkölluð póstkortaferð!
Kína
Kína, sem einnig ber nafnið Lýðveldi fólksins í Kína, er tæplega 9,6 milljónir ferkílómetrar að stærð og er þar með stærsta ríki Austur-Asíu og fjórða stærsta land í heimi með landamæri að fjórtán ríkjum heims.
Menning Kína er fjölbreytt og rík af sögu sem er undir ýmsum áhrifum m.a. frá Búddisma. Trúin er þó mjög margvísleg og fer eftir héruðum innan Kína en löng hefð er fyrir þjóðtrú sem byggist á dýrkun dreka, goða, anda náttúrunnar og forfeðra. Þá er Daoismi stór hluti af þjóðtrúnni og eins trú á Qi Gong, en sú trú byggir á hugarró og góðri heilsu. Meðlimir kínverska kommúnistaflokksins eru hins vegar trúleysingjar.
Fólkið í landinu er þekkt fyrir gestrisni og mikil virðing er borin fyrir eldra fólki ásamt því að áhersla er lögð á gildi fjölskyldunnar. Kínverjar halda hinar ýmsu hátíðir en mikilvægasta hátíðin er þegar þeir fagna nýju ári, sem stendur í heilar tvær vikur, þá sleppir fólk þúsundum pappírsljóskera upp í himininn. Önnur mikilvægasta hátíðin í Kína er svo miðhausthátíðin, sem er haldin á fullu tungli að hausti. Þá kemur fólk saman og þakkar fyrir góða uppskeru, biður fyrir farsælli framtíð og algengt er að óléttar konur biðji til tunglsins og færi því fórnir, þar sem tunglið var talið búa yfir endurnýjanlegum kröftum.
Listir eru einnig stór hluti af sögu Kínverja og eru þeir líklega frægastir fyrir skriflistina. En þeir eru líka þekktir fyrir stórkostleg útskorin listaverk í bæði stein og tré, sem hafa verið notuð til að skreytinga á og við mikilvægar byggingar. Þá eru þeir þekktir fyrir fallega myndlist, þar sem landslag, blóm og fuglar eru áberandi viðfangsefni listamannanna. Kínverjar eru líka þekktir fyrir einstakan byggingarstíl, þar sem mikið er lagt upp úr skrautlegu ytra útliti og opnum rýmum innandyra.
Landslagið í Kína er fjölbreytt, enda um stórt land að ræða en þar er að finna fjöll, ár, skóga og eyðimerkur. Í náttúrunni má finna búsvæði ýmissa villtra dýrategunda, þar sem dýr eins og risa pöndur, rauðpöndur, gullapar, snæhlébarðar og kínverskir aligatorar lifa.
Kínversk matargerðlist er ein sú vinsælasta og sú útbreiddasta í heimi en hún einkennist af ýmsum smáréttum þar sem ýmsar kjöttegundir eru skornar í bita ásamt fjölbreyttu grænmeti sem er blandað við hinar ýmsu sósur og með réttunum er ávallt borin hrísgrjón og rækjusnakk. Peking-öndin nýtur líka mikilla vinsælda en hún er oftast tætt niður og sett á þunnar pönnukökur með fínt skornu grænmeti og yfir herlegheitin er hellt ljúffengri sósu. Ýmsar tegundir af súpum og núðlum eru líka áberandi á matseðli Kínverja.
Kína er líka fræg fyrir marga sögulega og merkilega staði eins og Kínamúrinn, sem er talinn vera eitt mesta mannvirki heims, um 7.300 km langur og með 24.000 varðturnum. Þá er Shanghai-turninn með mikið aðdráttarafl, þar sem hann er 632 m á hæð og þar með þriðja hæsta bygging í heimi. Í hinni forboðnu borg Peking er að finna heimili keisara af Ming- og Tjingveldanna, þar sem nú er hallarsafn. Umhverfis safnið er 50 m breiður skurður fullur af vatni og ríflega 10 metra hár múr umlykur svæðið.
Tíbet
Tíbet er þekkt fyrir einstaka menningu, töfrandi landslag og náttúru, ljúffengan mat, lifandi listir, heillandi hefðir og forna sögu.
Tíbet er landlukt land í Asíu en sumir líta á það sem sjálfstjórnarhérað í Kína. Tíbet er með landamæri að (Kína), Nepal, Indlandi og Bútan. Landslagið einkennist af hásléttum, háum og tignarlegu fjalllendi, þar sem Everest trónir fjalla hæst í 8.848 m yfir sjávarmáli, jöklum, dölum, skógum og ám.
Tíbetar eru þekktir fyrir hlýleika, gestrisni, hjálpsemi og samstöðu en meirihluti þeirra iðkar tíbeskan búddisma, sem endurspeglar daglegar athafnir þeirra. Búddisminn þeirra einkennist af fjölbreyttum helgisiðum og fjölda klausturregla, en um tíma voru um 7.000 klaustur í Tíbet en í dag eru þau um 1.000. Þeir leggja mikla stund á hugleiðslu, jóga og aðrar andlega ástundun.
Hefðir í menning í Tíbet birtist í gegnum ýmiskonar listir, dans og tónlist og hátíðir. Tónlistin einkennist af hljóðfæraleik og söng á trúarlegum nótum, þar sem dranyen-gítarinn leikur stórt hlutverk. Sömu sögu er að segja um dansana í Tíbet, en þeir eru oft táknrænir og fullir af sögu um hefðir þjóðarinnar ásamt því að tengjast trúarathöfnum og hátíðum. Á hátíðum er algengt að fólkið klæðist litríkum fatnaði, sem hafa einnig mikla þýðingu en helstu hátíðir tengjast nýju ári og fæðingu og dauða Búdda.
Í Tíbet er einnig stunduð ýmis konar myndlist og handverk, sem tengist bæði trúnni og langri sögu ýmissa helgisiða en listamenn segja sögur m.a. í gegnum skrautlega skúlptúra, fínleg og litrík málverk ásamt því að búa til fallega skartgripi.
Arkitektúr heimamanna gegnir líka lykilhlutverki í menningu Tíbet, þar sem þjóðin er m.a. þekkt fyrir glæsileg klaustur, en hæsta klaustur veraldar er að finna í Tíbet í yfir 5.000 m hæð yfir sjávarmáli.
Maturinn í Tíbet er oft einfaldur en bragðgóður, en helsta uppistaðan í matargerðinni eru núðlur, geitakjöt og ýmsar mjólkurafurðir. Maturinn er síðan bragðbættur með góðum kryddum. Þar sem Tíbet er staðsett í mikilli hæð eru þeir háðir ýmsum innflutningi á mat eins og hrísgrjónum og tei. Margir Tíbetar borða ekki fisk vegna trúarlegra ástæðna.
Nokkrar staðreyndir um Kína:
Nokkrar staðreyndir um Tíbet
Dagskrá ferðinnar er í smíðum og verður birt hér innan tíðar. Við lofum ykkur því að hún verður full af upplifunum og ævintýrum að hætti Rúnar og Trausta þar sem fróðleikur, náttúrufegurð, menning, byggingalist, matur, drykkir og almenn skemmtilegheit verða í fyrirrúmi.
Gist er í tjaldbúðum, gistiheimilum og á hótelum. Á gistiheimilum og hótelum er gist í tvíbýli, nema þess sé óskað sérstaklega að vera í einbýli.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í þessari ferð er mikilvægt að fólk sé heilsuhraust, bæði líkamlega og andlega og sé tilbúið að gista stundum í framandi umhverfi og aðstæðum. Salerni eru víða ekki eins og við eigum að venjast og því gott að vera búin undir hvað sem er. Í Tíbet eru vegir víða lélegir og í mikilli hæð yfir sjávarmáli. Það getur þýtt að dagskrá getur breyst eða tafist og því mikilvægt að ferðafélagar séu tilbúnir að sýna hver öðrum skilning og takast á við óvænta hluti með jafnaðargeði.
Í hringferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðirnar. Rún og Trausti hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld.
Rún og Trausti munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð, þar sem fræðsla og umfram allt skemmtileg upplifun verður í fyrirrúmi.
Flug
Innanlandsflug
Farangur
Hótel
Fæði – Drykkir
Akstur
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
https://www.fib.is/is/ferdalog/althjodlegt-okuskirteini
https://www.vinnuvernd.is/bolusetningar-ferdalog og
Athugið að listinn er ekki tæmandi og aðeins til viðmiðunar.