Að ferðast um heiminn eru forréttindi en að ferðast með hressu og kátu fólki eru enn meiri forréttindi! Tíu þúsund fet ásamt Veru Illugadóttur þakka frábærum hópi ferðalanga fyrir yndislega daga í hinni heillandi borg, Istanbúl og í hinu ævintýralega landi, Úsbekistan, þar sem farið var til fornra borga Silkileiðarinnar.
Það eru forréttindi að ferðast með Veru Illugadóttur, fjölmiðlakonunni skemmtilegu. Frábærar sögur, fullt af nauðsynlegum og ónauðsynlegum fróðleik og allskonar skemmtilegheit um sögu lands og þjóðar.
Ekki missa af næstu ferðum með Veru!

Margt var brallað, merkar byggingar heimsóttar, farið á litríka og fiturika markaði og á útsaumsnámsskeið, fylgst með silkipappírsgerð, tréútskurði og lærlingum við keramikstörf, fylgst með teppavefnaði og farið á leiksýningar, kynnst brúðuleikhúsgerð, skroppið með neðanjarðarlest á sögufrægar stoppistöðvar, dansað við úsbeska popptónlist á bensínstöð, hoppað upp í háhraðalestir, borðað á VELVÖLDUM VEITINGASTÖÐUM, gist á flottum hótelum, drukkið fullt af vatni, næstum víkingaklappað á skákmóti í Samarkand, kallað fram gullbros frá heimamönnum og toppurinn var svo auðvitað óborganlegar frásagnir Veru m.a. um Timur halta! Við sendum hópnum okkar tíu þúsund þakkir ánægjulega samveru.
Þetta hafði fólkið okkar að segja eftir ferðina:
,,Mikið þakka ég ykkur fyrir dásamlega og efitrminnilega ferð til Úsbekistan. Núna er ég að melta allar upplifanir úr þessum heimi sem við vorum í og fer það mjög vel í mig.“
Jóhanna Jónasdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Tíu þúsund þakkir fyrir dásamlega og vel skipulagða ferð til Istanbúl og Úsbekistan. Ég kem örugglega aftur með ykkur Veru út!“
Yvette Lau, Istanbúl og Úsbekistan 2026
,,Kærar þakkir fyrir vel skipulagða ferð og frábæra fararstjórn. Nutum þess í botn og erum enn að melta þessa frábæru ferð“
Klara Valdís Þórhallsdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026
