Hefur þig alltaf dreymt um að sigla um fallega norska firði? Ertu tilbúinn fyrir ævintýri lífs þíns? Magnað, stórkostlegt og ógleymanlegt ferðalag. Suðurskautið mun skilja þig eftir orðlausan þar sem þú upplifir nýtt ævintýri á hverjum degi á hjara veraldar, þar sem þú siglir innan um ísjaka, gangandi á mörgæsasvæðum og virðandi fyrir þér villt dýralíf heimsálfunnar.
Þeir ferðalangar sem heimsækja Suðurskautslandið snúa aftur heim með magnaðar minningar sem aldrei gleymast!
Suðurskautslandið er svo mikið meira en heimur hvítrar auðnar. Komdu með okkur í ótrúlega sjónrænt og fallegt ævintýri í heimsklassa. Sigling á lygnum sjó innan um risastóra ísjaka heimskautsins mun gefa þér nýja sýn á heiminn. Hver veit nema við munum sjá risahvali, mörgæsahópa og töfrandi landslag sem fæstir hafa upplifað.
Hurtigruten er ein þekktasta siglingaleið Noregs og á sér sögu sem nær aftur til ársins 1893. Upphaflega var tilgangurinn einfaldlega að tengja saman samfélögin meðfram langri og strjálbýlli norsku ströndinni – en með tímanum varð ferðalagið sjálft að einni vinsælustu upplifun sem hægt er að fara í í Noregi.
Það sem gerir Hurtigruten svo sérstaka er að þetta er ekki bara hefðbundin skemmtisigling. Skipin hafa í gegnum tíðina gegnt mikilvægu hlutverki í daglegu lífi strandbyggðanna og eru enn hluti af tengingu milli fjölda hafna. Á leiðinni er því hægt að sjá Noreg eins og hann birtist heimamönnum – frá sjónum, með litlum sjávarþorpum, eyjum, fjörðum og bröttum fjöllum allt í kring.
Norska ströndin er ótrúlega fjölbreytt. Á einum stað siglið þið fram hjá litlu þorpi þar sem aðeins nokkur hús standa við sjóinn og skömmu síðar eruð þið komin inn á milli stórbrotinna fjalla og fjarða.
Og svo eru veðrið og birtan alltaf að breyta landslaginu. Sama fjallið getur litið allt öðruvísi út eftir því hvort sólin skín, þoka liggur yfir fjörðunum eða norðurljósin dansa yfir himninum. Það er því alveg mögulegt að sitja lengi við gluggann og hugsa: „Þetta hlýtur að vera fallegasti staðurinn á leiðinni“ – og svo kemur næsti fjörður og tekur við!
Fyrir marga hefst Hurtigruten-ferðin í Bergen, einni þekktustu borg Noregs. Bergen er umkringd fjöllum og er oft kölluð „hliðið að fjörðunum“.
Frá Bergen liggur leiðin norður með ströndinni og stoppað er í fjölmörgum höfnum á leiðinni. Sumir staðir fá aðeins stutta viðkomu og aðrir lengri, en einmitt þessi fjölbreytni gerir ferðina áhugaverða. Þið fáið að sjá bæði þekktar borgir og lítil samfélög sem ferðamenn myndu annars líklega aldrei heimsækja.
Ålesund er ein fallegasta borgin á leiðinni og er sérstaklega þekkt fyrir Art Nouveau-arkitektúrinn. Borgin varð fyrir miklum bruna árið 1904 og stór hluti hennar eyðilagðist.
Í stað þess að byggja borgina upp á ný á sama hátt varð til mjög sérstakur arkitektúr, með turnum, skreytingum og litríkum byggingum. Þannig varð einn stærsti harmleikur borgarinnar óvænt upphafið að því sem í dag gerir Ålesund að einni fallegustu borg Noregs.
Trondheim er ein af sögufrægustu borgum Noregs og var eitt sinn höfuðborg landsins. Þar stendur hinn stórkostlegi Niðarósdómkirkja, sem hefur verið mikilvægur pílagrímsstaður um aldir.
Trondheim sameinar gamla sögu og ungt borgarlíf og er skemmtilegur staður til að ganga um, fá sér kaffi og skoða gömlu timburhúsin. Borgin er einnig þekkt fyrir hjólreiðar – og þar er meira að segja sérstakur hjólalyfta sem hjálpar hjólreiðafólki upp bratta brekku!
Þegar komið er að Lofoten breytist landslagið enn einu sinni. Þar rísa skörp fjöll nánast beint upp úr sjónum og á milli þeirra liggja lítil fiskiþorp með rauðum og gulum húsum.
Lofoten er eitt af þessum stöðum þar sem maður þarf stundum að minna sig á að maður sé ekki kominn inn í mynd á póstkorti. Svæðið er sérstaklega þekkt fyrir fiskveiðar og þurrkaðan skreið, sem hangir víða á stórum trégrindum og er orðinn órjúfanlegur hluti af landslagi eyjanna.
Tromsø er ein mikilvægasta borg Norður-Noregs og er stundum kölluð „höfuðborg norðursins“. Borgin er langt norðan heimskautsbaugs og er vinsæll áfangastaður fyrir þá sem vilja upplifa miðnætursólina á sumrin eða leita að norðurljósum á veturna.
Á sumrin getur sólin verið á lofti allan sólarhringinn. Það getur tekið smá tíma að venjast því að horfa út um gluggann klukkan eitt um nótt og hugsa: „Ætti ég ekki eiginlega að vera sofandi núna?“
Norðurhöfði, eða Nordkapp, er eitt þekktasta kennileiti Norður-Noregs. Bjargið rís um 300 metra yfir Barentshafinu og hér upplifir maður virkilega hversu langt norður maður er kominn.
Það er eitthvað sérstakt við að standa við Norðurhöfða og horfa út yfir opið haf. Fyrir mörgum verður þetta einn af þeim stöðum á ferðinni þar sem maður stoppar aðeins og hugsar: „Við erum nú aldeilis komin langt að heiman!“
Kirkenes er síðasti áfangastaður Hurtigruten í norðri og liggur alveg við landamæri Noregs og Rússlands. Hér er landslagið orðið allt öðruvísi en sunnar í landinu – víðáttumikið, fámennt og mjög norðlægt.
Borgin er einnig þekkt fyrir konungskrabba, sem hefur orðið mikilvægur hluti af atvinnulífi svæðisins. Það er svolítið sérstakt að hugsa til þess að á þessum slóðum geta ferðalangar farið úr skipinu og fengið sér nýveiddan konungskrabba – nánast á jaðri Evrópu.
Ein stærsta upplifun Hurtigruten er ekki endilega eitthvað sem hægt er að setja inn í dagskrá – heldur náttúran sjálf.
Á sumrin tekur miðnætursólin yfir og norður í landinu sest sólin ekki í margar vikur. Á veturna er hins vegar möguleiki á að sjá norðurljósin dansa yfir himninum. Það er kannski einmitt það fallegasta við Hurtigruten: maður veit aldrei nákvæmlega hvað verður fyrir utan gluggann þegar næsta fjall eða fjörður birtist.
Hurtigruten snýst því ekki bara um að komast frá einum stað til annars. Þetta er ferðalag þar sem skipið, fólkið, litlu strandbyggðirnar og náttúran eru allt hluti af upplifuninni.
Kannski er besta leiðin til að upplifa ferðina einfaldlega að gefa sér tíma til að horfa út. Setjast við gluggann með kaffibolla, fylgjast með landslaginu líða hjá og muna að þessi ferð er á leið sem hefur tengt samfélög Noregs saman í meira en 130 ár.
Og eitt er víst – á Hurtigruten er útsýnið aldrei langt undan.
Bergen
Chile er land sem hýsir ótrúlega fjölbreyttan náttúruauðlindir og menningarlegt ríkidæmi. Liggur þessi einstaka áfangastaður við langa strandlengju Suður-Ameríku, með Ande-fjöllin sem bakgrunn, sem veitir ferðamönnum tækifæri til að kanna náttúru sem spannar frá eyðimörkum til gróskumikilla regnskóga.
Frá norðri, þar sem Atacama-eyðimörkin, ein þurrasta svæði jarðar, býður upp á ótrúlega landslag, til suðurs þar sem Patagónía teygir sig með sínum djúpum fjordum og glæsilegum jöklum – Chile er staður þar sem náttúran er óvenjuleg og heillandi á hverju horni. Fjallgöngur, kajaksiglingar, skoðunarferðir í jökulvötnum og stjörnufræði eru aðeins nokkur af þeim ævintýrum sem þú getur tekið þátt í.
Á menningarsviðinu býður Chile einnig upp á ríkulegt safn af sögulegum minjum, margvíslegum listum og matargerð sem sameinar hefðir frá Evrópu og Suður-Ameríku. Santiago, höfuðborgin, sameinar nútímann og hefðir og býður upp á frábært matar- og verslunarferðir. Í þorpum og smáum bæjum er einnig mikill áhugi á hinu hefðbundna, þar sem þú getur uppgötvað Chile í sinni bestu mynd.
Chile er einnig land af vínrækt og er heimkynni nokkurra bestu vinda heims, sem gerir það að fullkomnum áfangastað fyrir vín- og matgæðinga.
Ef þú vilt upplifa náttúruundur, smakka á fjölbreyttum mat og kafa ofan í menningu og sögu Suður-Ameríku, þá er Chile ómissandi áfangastaður.
Osló
Kirkenes
Siglt verður með heimsskautaskipi til heimsins fallegustu staða á Suðurskautinu. Um borð er að finna þrautþjálfaða áhöfn með sérfræðingum um þetta einstaka búsvæðið sog eru þeir fullir af fróðleik sem ekki má finna í handbókum. Um er að ræða ógleymanlega siglingu.
Um borð má finna fjölda sameiginlegra svæða þar sem njóta má ýmissar afþreyingar, heilsuræktar og veitinga af ýmsum toga.
Albatros Hotel í Chile:
Dagur 1 – Ferðadagur
Ferðalag frá Íslandi til Puntas Arenas í Chile (Ath. flug ekki innifalið)
Dagur 2 – Ushuaia
Akstur frá flugvelli í Ushuaia og frjáls dagur til að njóta þessarar syðstu borgar veraldar.
Dagur 3 – Ushuaia &Drake Passage
Rólegur morgunn í Ushuaia. Síðdegis förum við um borð í skipið og hefjum siglingu yfir Beagle-sundið.
Dagar 4 og 5 – Drake Passage/Suður-Shetlandseyjar
Hin ævintýralega sigling hefst á 800 mílna sjóleið gegnum sundið sem nefnt var í höfuðið á 17. aldar sæfaranum Francis Drake. Á siglingunni munum við sjá ísjaka, hvali og albatrossa.
Dagar 6 – 9 – Suður-Shetlandseyjar – Suðurskautslandið
Við upplifum eitt ótrúlegasta dýralíf heims og ólýsanlega fallegt landslagið á suðurskautinu. Tvisvar á dag reynum við að fara í land til að sjá mörgæsir og önnur stórfengleg dýr á svæðinu og fræðumst um þessa mögnuðu heimsálfu.
Dagar 10 – 11 – Drake Passage – Ushuaia
Við hefjum siglinguna norður til Ushuaia. Hópstjórar halda áfram fræðslu um Suðurskautslandið og við höldum áfram að virða fyrir okkur útsýnið og hvali á leiðinni.
Dagur 12 – Ushuaia
Eftir morgunverð um borð höldum við frá skipi í Ushuaia.
Dagur 13 – Ferðadagur
Ferðlag frá Argentínu til Íslands (Ath. flug ekki innifalið)–
Í þessari ævintýralegu sérferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðina, þau Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson. Þau hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld m.a. á framandi slóðir.
Ferðin er flestum fær en í henni má finna styttri og lengri göngur með mismunandi og stundum ósléttu yfirborði. Víða er ferðast um á gúmmíbátum og aðstæður geta verið vætusamar þegar farið er í land og þá þurfa ferðalangar að vera í líkamlegu ástandi til að komast um borð í bátana. Að eiga gott með jafnvægi hjálpar til við öryggi í ferðum. Ef tilhneiging er til sjóveiki, er sniðugt að gera viðeigandi ráðstafanir.
Sigling
Gisting
Fæði
Akstur
Fararstjórn
EKKI INNIFALIÐ




















