Tíu þúsund fet bjóða upp á 5* ævintýraferð til Túnis með upplifun í hinni heillandi Sahara-eyðimörk. Toppurinn á ferðinni verður svo upplifun á stórfenglegum almyrkva á sólu mánudaginn 2. ágúst 2027 en hann verður með þeim lengstu sem fólk upplifir á þessari öld eða 5 mínútur og 41 sekúndu!
Túnis einkennist af fjölskrúðugu mannlífi, meiriháttar matargerð, og óþrjótandi afþreyingarmöguleikum.
Boðið verður upp á vandaða og fróðlega leiðsögn frá þaulreyndum íslenskum fararstjórum ásamt einstakri fræðslu frá rithöfundinum Illuga Jökulssyni.
Ógleymanlegt ævintýri þar sem farþegar fá tækifæri til þess að upplifa framandi og sólríkar slóðir saman!
Tíu þúsund fet kynna meiriháttar ferð um Túnis. Dvalið er á 5* hóteli í fallegri strandborg, farið í skoðunarferðir þaðan og haldið út í ævintýri í eyðimörkinni í suðrinu.
Þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar halda utan um hópinn og fræða um land, menningu, siði og þjóð. Fjölbreytt dagskrá af fræðslu og fjöri undir vandaðri íslenskri leiðsögn.
Hér er frábært tækifæri til að upplifa áhugaverða menningu og njóta óþrjótandi afþreyingarmöguleika á sólríkum og framandi slóðum.
Túnis er heillandi land við Miðjarðarhafið, þar sem gullnar sandstrendur, blár sjór, litríkar markaðsgötur og endalaus víðátta Saharaeyðimerkurinnar skapa einstaka stemningu. Hér mætast Evrópa, Afríka og arabísk menning í litríkri blöndu sem gerir landið bæði spennandi og ógleymanlegt.
Túnis á landamæri að Alsír og Líbýu og strönd landsins liggur að Miðjarðarhafi. Landið telur 163.610 ferkílómetra og þar búa ríflega 12 milljónir manna. Túnisborg er höfuðborg landsins og þar búa ríflega 2,8 milljónir, sem gerir hana að stærstu borg landsins. Í landinu er arabíska opinbert tungumál.
Landslagið er fjölbreytt, í norðri má sjá skógivaxnar fjallshlíðar og kletta, en á milli fjallanna eru frjósamir dalir. Í miðju landi ber meira á þurrum hásléttum, þar sem stunduð er kvikfjárrækt en þar eru einnig svæði sem einkennast af merkilegum saltsléttum. Í suðri tekur svo við dulúðleg eyðimörkin með endalausum sandöldum. Ríflega þriðjungur landsvæða er nýttur til landbúnaðar, einkum ólífuræktar. Hæsta fjall landsins, Jebel ech Chambi, trónir í 1.544 metrum yfir sjávarmáli.
Saga Túnis nær þúsundir ára aftur í tímann. Hér risu borgir Fönikíumanna, hið volduga Karþagó blómstraði og Rómverjar skildu eftir sig stórfenglegar byggingar og hringleikahús. Í El Jem má enn sjá eitt glæsilegasta rómverska hringleikahús heims, á meðan þröngar götur gamla bæjarins í Túnis-borg leiða okkur inn í heim ilmandi krydda, handverks, skartgripa og austurlenskrar stemningar.
Matarmenningin einkennist af ferskum og bragðmiklum Miðjarðarhafsréttum, þar sem arabískra, rómverskra, franskra og ítalskra áhrifa gætir mikið í matargerðinni. Áhersla er lögð á ferskt hráefni þar sem sterka kryddmaukið harissa og tabil-kryddblandan eru notuð til að bragðbæta máltíðir. Þá er matargerðin þekkt fyrir bragðgóða ólífuolíu, ferskt brauð, kúsksús og ferska ávexti og auðvitað er lykilatriði að njóta matarins í góðum félagsskap.
Sousse er ein þekktasta strandborg Túnis og sameinar á skemmtilegan hátt sögu, menningu og nútímaferðamennsku. Borgin stendur við Miðjarðarhafið og er þekkt fyrir fallegar strendur, sólríkt loftslag og iðandi mannlíf.
Í hjarta borgarinnar er gamla borgin, medina, þar sem þröngar götur, litlir verslunarbásar og hefðbundið handverk gefa innsýn í daglegt líf Túnisbúa. Þar má finna leðurvörur, leirmuni, vefnaðarvöru, krydd og fjölbreyttar minjagripavörur.
Eitt af helstu kennileitum Sousse er Ribat-virkið, söguleg bygging sem var hluti af varnarkerfi strandborgarinnar. Þar má sjá hvernig borgarbúar vörðu ströndina fyrr á öldum.
Sousse er því miklu meira en sólarstrandarbær. Hún er borg þar sem fortíð og nútíð mætast og þar sem gestir geta notið bæði menningar og afslöppunar við Miðjarðarhafið.
Sfax er önnur stærsta borg Túnis og mikilvæg miðstöð atvinnulífs og verslunar. Hún er ekki jafn þekkt meðal erlendra ferðamanna og Sousse, en gefur áhugaverða mynd af hversdagslífi landsins og sterkum tengslum þess við viðskipti og hefðir.
Borgin er sérstaklega þekkt fyrir ólífuolíuframleiðslu, sjávarútveg og iðnað. Umhverfið er því iðandi af lífi og hér má sjá Túnis frá öðrum sjónarhóli en í vinsælu strandbæjunum.
Gamla borgin í Sfax er umkringd sögulegum borgarmúrum og þar er að finna hlið, moskur, markaði og þröngar götur. Innan múranna lifir hefðbundið handverk og verslun enn góðu lífi.
Sfax er líka áhugaverð vegna þess að borgin hefur að miklu leyti haldið sínum eigin karakter. Hún er fyrst og fremst borg heimamanna, þar sem viðskipti, fjölskyldulíf og gamlar venjur eru stór hluti af daglegu lífi.
Karþagó er einn sögufrægasti staður Norður-Afríku. Borgin var stofnuð af Fönikíumönnum til forna og varð síðar að voldugri verslunar- og siglingamiðstöð við Miðjarðarhafið.
Á sínum blómatíma var Karþagó stórveldi sem keppti við Róm um yfirráð yfir viðskiptaleiðum og landsvæðum. Þessi samkeppni leiddi til hinna frægu púnversku stríða. Einn þekktasti hershöfðingi Karþagómanna var Hannibal, sem er minnst fyrir áræðna herferð sína yfir Alpana með her og fíla til að berjast gegn Rómverjum.
Að lokum sigraði Róm Karþagó árið 146 f.Kr. og eyðilagði borgina. Síðar reis þar upp rómversk borg, þannig að fornleifasvæðið geymir ummerki frá fleiri en einu mikilvægasta tímabili sögunnar.
Í dag má skoða leifar fornra bygginga, hafnarmannvirkja og stórfenglegra rómverskra baðhúsa Antonínusar. Þar sameinast saga, fornleifar og fallegt útsýni yfir Miðjarðarhafið.
Þegar staðið er í miðjum rústunum er auðvelt að ímynda sér lífið í þessari fornu borg, kaupmennina, sjómennina, hermennina og skipin sem komu með vörur frá fjarlægum löndum. Karþagó minnir okkur á að Túnis var eitt sinn í miðju þeirra átaka og viðskipta sem mótuðu sögu Miðjarðarhafsins.
Sidi Bou Said er einn myndrænasti og rómantískasti staður Túnis. Þessi fallegi bær stendur á hæð við Miðjarðarhafið, skammt frá Karþagó og er þekktur fyrir hvít hús, skærbláa glugga og hurðir, blómaskreytingar og þröngar götur.
Litirnir eru orðnir að einkennismerki bæjarins. Hvíti liturinn endurkastar sólinni og blái liturinn minnir á hafið og himininn. Samspil litanna, hefðbundins byggingarstíls og útsýnisins yfir hafið skapar sérstaka stemningu sem laðar að sér bæði ferðamenn og listafólk.
Í gönguferð um bæinn má finna litlar verslanir, listmuni, leirmuni og kaffihús. Þar er tilvalið að setjast niður, fá sér glas af myntutei með furuhnetum og njóta útsýnisins yfir flóann.
Sidi Bou Said hefur einnig verið tengdur listum og menningarlífi og þar ríkir rólegra andrúmsloft en í stórborginni. Hér er gott að hægja á sér, taka myndir og njóta smáatriðanna.
Sahara-eyðimörkin í Túnis þekur um 40% landsins en hún einkennist af víðáttumiklu landslagi, þar sem sandöldur, grýttar sléttur, saltsléttur og vinjar skapa náttúru sem er gjörólík því sem við eigum að venjast á Íslandi.
Ein af þekktustu leiðum inn í eyðimerkurævintýrið liggur um Douz, sem oft er kölluð hlið Sahara. Þaðan er hægt að fara í úlfaldareið eða jeppaferðir um sandöldurnar og upplifa hvernig landslagið breytist með birtu og skuggum sólarinnar.
Í eyðimörkinni er sólarlagið sérstaklega eftirminnilegt. Sandurinn fær gyllta, rauðleita og appelsínugula tóna og þegar rökkrið færist yfir verður kyrrðin nánast áþreifanleg. Fjarri borgarljósum má á heiðskírum nóttum sjá ótrúlega stjörnubjartan himin.
Í suðurhluta Túnis má einnig finna Chott el Jerid, risastóra saltsléttu sem er þekkt fyrir óvenjulegt landslag og ljósbrot sem geta skapað sjónhverfingar við sjóndeildarhringinn. Þar má sjá hvítar saltskorpur og litbrigði sem breytast eftir birtu og veðri.
Lífið í eyðimörkinni hefur í aldaraðir krafist mikillar þekkingar á vatni, veðri og ferðaleiðum. Þar hafa hirðingjar og samfélög vinjanna þróað lífshætti sem laga sig að erfiðum aðstæðum.
Illugi Jökuls fræðir farþega
Í þessa ævintýralegu ferð okkar Túnis kemur Illugi Jökulsson með okkur þar sem rithöfundurinn skemmtilegi fræðir okkur á sinn einstaka hátt um sögu og siði lands og þjóðar.
Illugi er sonur Jóhönnu Kristjónsdóttur og Jökuls Jakobssonar. Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur og Hrafn Jökulsson eru alsystkini hans. Illugi er giftur leikkonunni Guðrúnu Gísladóttur. Dóttir þeirra er útvarpskonan Vera Illugadóttir.
Illugi gekk í Menntaskólann í Reykjavík, en hætti skólagöngu sinni 1979, þá í sjötta bekk. Hann hóf störf sem blaðamaður á Vísi í apríl 1979 og starfaði þar til vors 1981. Árið 1986 hóf Illugi umsjón sína á útvarpsþættinum „Frjálsar hendur“ á Rás 1 og hefur sinnt því starfi nánast sleitulaust síðan. Illugi stofnaði tímaritið Sagan öll árið 2007 og gegndi þar ritstjórnarstörfum. Einnig stofnaði hann og ritstýrði tímaritinu Skakki turninn, þar sem hann vann með Veru.
Haustið 2025 sá Illugi um að fræða farþega Tíu þúsund feta um sögufrægarslóðir Mið- og Suður-Ítalíu við góðan orðstír.
Í ferðinni er gist á 5* hótelum alla ferðina.
Í Túnisborg verður gist í eina nótt á 5* Radisson Blu Tunis & Convention Center með kvöldverði og morgunverði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með inni- og útisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði, tyrknesku baði (hammam) og heilsulind, þar sem hægt er að fara í nudd- og slökunarmeðferðir. Á hótelinu eru nokkrir veitingastaðir og barir, sem bjóða upp á alþjóðlega rétti.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og rúmgóð, með þægilegum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging, hárblásari og aðstaða til að laga kaffi og te.
Hótelið er vel staðsett í hjarta Túnisborgar.
Í Tozeur verður gist á 5* The Mora Sahara Tozeur með kvöldverði og morgunverði í tvær nætur.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með inni- og útisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði, tyrknesku baði (hammam) og heilsulind, þar sem hægt er að fara í nudd- og slökunarmeðferðir. Á hótelinu eru nokkrir veitingastaðir og barir, sem bjóða upp á alþjóðlega rétti.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og rúmgóð, með þægilegum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging, hárblásari og aðstaða til að laga kaffi og te.
Í Douz verður gist á 5* The Residence Douz með kvöldverði og morgunverði.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með inni- og útisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði, tyrknesku baði (hammam) og heilsulind, þar sem hægt er að fara í nudd- og slökunarmeðferðir. Á hótelinu eru nokkrir veitingastaðir og barir, sem bjóða upp á alþjóðlega rétti.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og rúmgóð, með þægilegum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging, hárblásari og aðstaða til að laga kaffi og te.
Hótelið er vel staðsett í hjarta Túnisborgar.
Í Sousse verður gist á 5* Marriot The Pearl Resort & Spa með öllu inniföldu í 11 nætur.
Hótelið er allt hið glæsilegasta með inni- og útisundlaug, líkamsræktarstöð, gufubaði, tyrknesku baði (hammam) og heilsulind, þar sem hægt er að fara í nudd- og slökunarmeðferðir. Á hótelinu eru nokkrir veitingastaðir og barir, sem bjóða upp á alþjóðlega rétti.
Herbergin eru einstaklega snyrtileg og rúmgóð, með þægilegum rúmum. Í þeim eru öll helstu þægindi eins og loftkæling, frí Wi-Fi tenging, hárblásari og aðstaða til að laga kaffi og te.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða. Athugið einnig að gististaðir geta breyst en þá er ávallt boðið upp á sambærilega gististaði eða betri.
Í framandi ferðum Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðirnar. Rún og Trausti hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld. Þau eru bæði kennaramenntuð.
Rún og Trausti munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð um Túnis, þar sem fræðsla og umfram allt skemmtileg upplifun verður sett í forgang.
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Ferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
Flogið frá Keflavík með Icelandair til Rómar kl. 7:50 að morgni og lent í Róm kl. 14:35. Þaðan verður svo flogið áfram til Túnis kl. 17:00 og lent í höfuðborginni kl. 17:20 þar sem fararstjórar aðstoða hópinn við komuna og veita allar nauðsynlegar upplýsingar á leiðinni á 5* hótelið, þar sem farþegar koma sér fyrir og njóta hvíldar eftir ferðalagið.
Eftir morgunverð skrá farþegar sig út af hótelinu og hitta fararstjóra í gestamóttöku. Í kjölfarið verður lagt af stað til Tozeur-borgar, með viðkomu í hinni sögulegu og heilögu borg Kairouan. Kairouan var stofnuð í kringum árið 670 og er talin sú fjórða heilagasta á eftir Mekka, Medína og Jerúsalem og þar er að finna mosku sem þykir með glæsilegustu mannvirkjum hins islamska heims. Hún hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO.
Tozeur-borg, sem er staðsett á suðvesturhluta Túnis og minnir einna helst á vin í eyðimörkinni. Borgin er heimsfræg fyrir gullituð múrsteinshús gamla bæjarins en þar hafa margar frægar kvikmyndir eins og Star Wars verið teknar. Borgin tilheyrir El Jerid vinjasvæðinu, þar sem er að finna milljónir döðlupálma, sem teygja sig himins og gefa af sér einar gæðamestu og bestu döðlur í heimi.
Í hádeginu verður borðað á Centre de Loisirs Niffer.
Við komuna á lúxushótelið The Mora, skráir hópurinn sig inn og snæðir kvöldverð í kjölfarið.
Eftir morgunverð er boðið upp á jeppasafarí á þekktan tökustað Star Wars í Nefta-bæ, þar sem gamli bærinn einkennist af sandlituðum byggingum í miðri eyðimörkinni, en yfir 100 grafhýsi gefa bænum friðsælt yfirbragð. Eftir akstur í sandöldum verður komið við í gróðursælli vin, þar sem m.a. má sjá fallega fossa innan um döðlupálma. Ferð lýkur um hádegisbil.
Síðla dags verður boðið upp á létt rölt inn í gamla bæinn í Tozeur, sem minnir einna helst á listaverk með sínum gulsandlituðu leirsteinshúsum, en steinar húsanna eru lagðir þannig að þeir mynda munstur, sem líta út eins og útsaumur. Göturnar eru þröngar og víða eru pálmagreinar settar yfir þær til að búa til enn meiri skugga.
Kvöldverður á hóteli.
Eftir morgunverð skrá farþegar sig út af hóteli þaðan sem ekið verður til Douz, sem stundum hefur verið kallaður ,,Hliðið að Sahara“, þar sem bærinn er umkringdur annars vegar döðlupálmaræktun og hinsvegar miklum sandöldum. Svæðið á sér ríka sögu í menningu hirðingja og úlfaldabænda, en sögu bæjarins má einnig rekja allt aftur til fornaldar og tíma Rómverjanna. Á miðöldum varð Douz einn mikilvægasti viðkomustaður úlfaldalesta sem áttu leið yfir eyðimörkina.
Gefin verða góð tækifæri á leiðinni til Douz til að smella af fallegum myndum við Chott el Jerid, sem er stærsta saltslétta og árstíðarbundna saltvatn í Saharaeyðimörkinni en það teygir sig yfir 5-7000 ferkílómetra svæði og minnir einna helst á landslag á annarri plánetu.
Við komuna til Douq skráir hópurinn sig inn á hótel og í framhaldi verður farið í hádegimat.
Eftir hádegi gefst tími til slökunar en einnig er boðið upp á ógleymanlega úlfaldareið í eyðimörkinni og njóta fagurs sólarlags.
Eftir morgunverð skráir hópurinn sig út af hótelinu og þaðan er ekið til Berba-borgarinnar Matmata, þar sem farið verður í hellisbústaði og kíkt í heimsókn til Berbafjölskyldu.
Matmata er heillandi bær í suðurhluta Túnis, sem er einkum frægur fyrir sérstakan byggingarstíl og landslag, sem minnir einkum á aðra reikistjörnu. Þar hafa Berbar aðlagast ótrúlegu lífi í eyðimörkinni, þar sem þeir hafa í stað þess að byggja hús ofanjarðar, grafið stóra hringlaga brunna djúpt ofan í jörðina og myndað þannig húsagarð, þar sem herbergi, eldhús og geymslur hafa verið höggnar inn í hliðarnar á innanverðum brunnunum.
Eftir heimsóknina verður farið í hádegisverð.
Að loknum hádegisverði verður farið í heimsókn í rómverskt hringleikahús í El Jem, sem er eitt glæsilegasta og best varðveitta mannvirki frá tímum Rómverja en það var reist árið 238 eftir Krist úr risastórum steinhnullungum og hýsti allt að 36.000 gesti til að horfa á skylmingar og dýraat. Það er á heimsminjaskrá UNESCO.
Í lok dags verður keyrt til þriðju stærstu borgar Túnis og einnar vinsælustu strandborgar ferðamanna, Sousse, staðsett við austurströnd landsins við Miðjarðarhafið. Þar skráir hópurinn sig í allt innifalið á hótelinu Marriott The Pearl.
Frjáls dagur til að njóta lífsins í öllu inniföldu á hótelinu.
Eftir morgunverð verður farið í heilsdagsferð til hinnar heilögu Kairoan-borgar, sem hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO. Þar drýpur sagan af hverju strái og þangað koma þúsundir pílagríma á hverju ári. Kairouan var stofnuð í kringum árið 670 og er talin sú fjórða heilagasta á eftir Mekka, Medína og Jerúsalem og þar er að finna mosku sem þykir með glæsilegustu mannvirkjum hins islamska heims. Hún hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO.
Eftir hádegisverð veður farið til Monastir, fallegrar strandborgar í Túnis, sem dregur nafn sitt af víggirtu klaustri frá 8. öld. Í monastir er m.a. að finna grafhýsi fyrsta forseta Túnis, Habib Bourguiba og þykir grafhýsið mikið meistarverk.
Frjáls dagur til að njóta í öllu inniföldu á hóteli.
Eftir morgunverð er farið í heilsdagsferð til Túnisborgar, þar sem gamli sögulegi miðbær borgarinnar verður skoðaður en þar er hægt að gleyma sér innan um iðandi mannlífið markaðarins, þar sem kryddilmur einkennir loftið innan um falleg muni. Í ferðinni verður farið á þjóðminjasafnið Bardo, sem er heimsfrægt fyrir eitt stærsta safn rómverskra mósaíkverka. Hér fær hópurinn djúpa innsýn inn í listsköpun og sögu ólíkra menningarheima sem hafa mótað Túnis í gegnum aldirnar.
Eftir hádegisverð verður farið til hinnar fornu borgar, Karþagó, þar sem rústir þessarar borgar stórvelda verða skoðaðar, hin rómversku Antonine-baðhús, Púnverska höfnin og Byrsa-hæðin. Ferðinni lýkur svo með heimsókn í Sidi Bou Said, myndræns bæjar sem er þekktur fyrir hvítmáluð hús með skærblálituðum gluggapóstum og hurðum með fallegu útsýni til hafs.
Í lok dags verður farið heim á hótel þar sem hópurinn snæðir kvöldverð.
Frjáls dagur til að njóta í öllu inniföldu á hóteli.
Frjáls dagur
Valfrjáls dagskrárliður – kostar aukalega – mikilvægt að skrá fyrirfram áður en farið er frá Íslandi
Í dögun verður hópurinn sóttur og farið með hann til Zaghouan í ólýsanlega upplifun með loftbelg. Ævintýrið er bæði í senn, magnað og friðsælt. Svifið er í um það bil klukkustund, þar sem stórfenglegt útsýni bíður farþega yfir sveitina m.a. frægar rómverskar vatnsveitur og ólífuakrar. Eftir flug er boðið upp á ekta morgunverðahlaðborð að hætti Túnis-búa.
Eftir morgunverð er farið í skemmtilega bátsferð á Miðjarðarhafinu, einkasiglingu fyrir hópinn.
Frjáls dagur til að njóta í öllu inniföldu á hóteli.
Frjáls dagur til að njóta í öllu inniföldu á hóteli.
Hópurinn fær morgunverðarbox og síðan verður lagt af stað kl. 5:00 frá hótelinu til Sfax, þar sem hópurinn hefur fengið frátekið fallegan útsýnisstað á ströndinni til að njóta almyrkvans, sem hefst kl. 10:04 og verður hægt að njóta hans rétt sunnan við Sfax. Um er að ræða 5 mínútur og 41 sekúndu, sem hann stendur yfir, á meðan tunglið lokar alveg fyrir sólina.
Lagt verður af stað kl. 5:30 með rútu á alþjóðaflugvöllinn í höfuðborginni. Flogið verður til Rómar kl. 10:25 og lent í borginni kl. 12:50. Áfram verður svo flogið heim með Icelandair kl. 15:45 og lending í Keflavík kl. 18:40.
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda, til dæmis með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.



























