Ef ferðalög væru ókeypis... BÆ BÆ!

Hér má sjá hvað farþegum finnst um okkur

,,Frábær ferð og frábær fararstjóri, takk fyrir!“

Kristbjörg Gunnarsdóttir, Prjónahátíð á Hjaltlandseyjum 2026

,,Æðisleg ferð með frábæru fólki og flottum fararstjórum. Takk fyrir mig“

Sigrún Þóra Gunnarsdóttir, Gæðagolf í Katalóníu 2026

,,Geggjuð ferð!“

Ellen Rut Gunnarsdóttir, Gæðagolf í Katalóníu 2026

,,Þetta var frábær ferð í alla staði“

Hulda Árnadóttir, Gæðagolf í Katalóníu 2026

,,Mikið þakka ég ykkur fyrir dásamlega og efitrminnilega ferð til Úsbekistan. Núna er ég að melta allar upplifanir úr þessum heimi sem við vorum í og fer það mjög vel í mig.“

Jóhanna Jónasdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026

,,Tíu þúsund þakkir fyrir dásamlega og vel skipulagða ferð til Istanbúl og Úsbekistan. Ég kem örugglega aftur með ykkur Veru út!“

Yvette Lau, Istanbúl og Úsbekistan 2026

,,Kærar þakkir fyrir vel skipulagða ferð og frábæra fararstjórn. Nutum þess í botn og erum enn að melta þessa frábæru ferð“

Klara Valdís Þórhallsdóttir, Istanbúl og Úsbekistan 2026

,,Bestu þakkir fyrir alveg frábæra ferð með dásamlegum farastjórum. Draumaferð mín stóðst allar mína væntingar. Tíuþúsund þakkir.“

Sigríður  Jóhannsdóttir, Japan 2026

,,Við fórum í frábæra ferð með 10000 fetum til Japans. Þar var allt var upp á tíu, fararstjórnin framúrskarandi og upplifunin ótrúleg. Þessi ferð verður lengi í minnum höfð. Við mælum heilshugar með þessari ferð og þeirri fararstjórn sem gerði hana svona vel heppnaða.“

Bjarni og Hrönn, Japan 2026

,,Ferðin til Japans var algjörlega ógleymanleg. Við skoðuðum tignarleg hof, hallir og helgidóma. Upplifðum hvernig ævafornar hefðir fléttast saman við nútímasamfélag þar sem agi og gagnkvæm virðing ráða ríkjum. Það var heillandi að kynnast nýjum menningarheimi, allt frá framandi matargerð til einstakra siða. Skipulag ferðarinnar var til fyrirmyndar og fararstjórarnir stóðu sig frábærlega.“

Áslaug og Geir, Japan 2026

,,Takk kærlega fyrir okkur. Þessi ferð var frábær og við hlökkum til að ferðast með ykkur aftur.“

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir, Gönguferð á Madeira 2026

,,Hjartans þakkir fyrir frábæra ferð, þið eruð frábær!“

Guðrún Ásdís Eysteinsdóttir, Gönguferð á Madeira 2026

,,Að halda upp á 10 ára afmæli Sahara með árshátíðarferð til Sahara var fyrir okkur meira en bara ferð, þetta var draumur sem varð að veruleika. Upplifunin var einstök í alla staði og skipulagið frá Tíuþúsund fet ferðaskrifstofunni til fyrirmyndar. Skipulagið var skýrt, samskiptin góð og við fengum frábæran stuðning frá upphafi til enda. Ferðin sjálf gekk einstaklega vel, allt small saman og við gátum notið þess að vera saman sem teymi án þess að hafa áhyggjur af neinu. Við getum heilshugar mælt með Tíuþúsund fet fyrir fyrirtæki sem vilja setja upp vel heppnaða og eftirminnilega ferð.“

Sigurður Svansson, framkvæmdarstjóri Sahara – Marrakech 2026

,,Við í Oddfellow stúkunni Nirði í Reykjanesbæ fórum í afmælisferð til Kaupmannahafnar um mánaðarmótin apríl/maí s.l. Undirritaður hafði umsjón með ferðinni og til að gera mér þetta sem auðveldast hafði ég samband við 10000 fet. Verð að segja að þjónustan stóðst væntingar og rúmlega það. Bókanir í flug upp á tíu og val á hóteli upp á 100. Þegar ferð er ákveðin með tæplega árs fyrirvara þá verða alltaf einhverjar breytingar á bókunum og fjölda þeirra sem fara með í ferðina. Aldrei neitt vesen hjá þeim hjónum að bregðast við okkar óskum. Og ekki nóg með það, heldur var veðrið líka geggjað eins og þau lofuðu! Þannig að útgangspunkturinn er að 10000 fet fær meðmæli uppá 10000″

Tryggvi Þór Bragason, Kaupmannahöfn 2026

,,Takk fyrir okkur. Skemmtileg ferð og fræðandi.“

Helen Sif Halldórsdóttir, Senegal og Gambía 2026

,,Mögnuð ferð. Takk fyrir okkur.“

Vífill Sigurðsson, Senegal og Gambía 2026

,,Takk fyrir okkur. Þetta var mjög skemmtileg ferð“

Sigrún Skæringsdóttir, Senegal og Gambía 2026

,,Takk fyrir, kæru hjón, að gera þessa göngu ógleymanlega. Vel skipulögð í alla staði. Er enn í sæluvímu. Tíu þúsund þakkir.“

Margrét Sverrisdóttir, Gönguferð á Tenerife 2026

,,Kærar þakkir fyrir frábæra daga á Tenerife. Þessi ferð fær toppeinkunn frá mér.“

Helgi Guðmundsson, Gönguferð á Tenerife 2026

,,Takk fyrir frábæra ferð, allt skipulag og viðurgjörningur eins og best varð á kosið, meira að segja veðrið var fullkomið. Ég mæli heils hugar með“

Ragnheiður Héðinsdóttir, Gönguferð á Tenerife 2026

,,Innilegar þakkir fyrir okkur. Ferðin var æði og þið frábærir fararstjórar. Uppfull af fróðleik og skemmtilegheitum. Við eigum sko eftir að fara með ykkur í fleiri ferðir og mælum með ykkur við vini og vandamenn“

Jóhanna Erla Birgisdóttir, Hringferð um Marokkó 2025

,,Takk kærlega fyrir góða ferð og fróðlega.“

Björg Sigurðardóttir, Hringferð um Marokkó 2025

,,Hjartans þakkir fyrir frábæra ferð. Við fengum að sjá svo marga stórkostlega staði og fræðast um fólk og atburði löngu liðanna tíma. Ógleymanlegt ferðalag. Takk Rún, Trausti og Illugi.Við Styrmir mælum svo sannarlega með Tíu þúsund fetum.“

Helga María Jónsdóttir, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu 2025

,,Takk fyrir frábæra ferð! Mæli svo sannarlega með 10.000 ferðum – allt skipulag, þjónusta og upplifun til fyrirmyndar. Sérstakar þakkir fyrir að halda svona vel um hópinn – algjörlega ógleymanleg ferð.“

Kolbrún Vídalín, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu 2025

,,Bestu þakkir fyrir okkur. Þetta er búin að vera frábær ferð og ógleymanleg í alla staði. Rún, Trausti og Illugi, þið eruð öll frábær.“

Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu 2025

,,Innilegar þakkir fyrir frábæra ferð. Þið hafið verið framúrskarandi leiðsögumenn. Það er óhætt að mæla með ferðaskrifstofu 10 þúsund feta.“

Auður Sigurðardóttir, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu 2025

,,Þessi ferð var dásamleg, gleði og gaman út í eitt. Fullt af frábærum og skemmtilegum konum sem höfðu engar áhyggjur þó Play hætti rétt eftir að við komum út. Enda voru Rún og Trausti búin að redda okkur fari heim á núll einni. Mæli 100% með Tíu þúsund fetum. Væri svo til í að fara í aðra svona ferð.“

Ingibjörg Erla Björnsdóttir, Búbblur og bling með Siggu Kling 2025

,,Þetta var dásamleg ferð. Mæli svo sannarlega með kvennaferð með Tíu þúsund fetum. Þvílíkt stuð og stemming.“

Svanhvít Þórarinsdóttir, Búbblur og bling með Siggu Kling 2025

,,Takk fyrir mig. Þessi ferð er búin að vera geggjuð, mæli 100 % með.“

Eyja Bryngeirsdóttir, Búbblur og bling með Siggu Kling 2025

,,Takk fyrir þessa ferð til Grænlands þvílík upplifun og fróðleikur um menningu og sõgu. Mikill kærleikur hjá fararstjórum og fólkið sem var með mér í ferðinni var svo yndislegt“

Ragnar Guðjónsson, Grænland 2025

,,Tíuþúsund þakkir fyrir frábæra daga, fróðleik og samveru! Væri til í ferð undir ykkar stjórn á vesturströndina!“

Lára Ólafsdóttir, Grænland 2025

,,Ég sé ekki eftir því að hafa leitað til Rún og Trausta við skipulag árshátíðar okkar. Ég mæli hiklaust með Tíuþúsund fetum fyrir fyrirtæki og hópa sem vilja fá vandaða, áreiðanlega og persónulega þjónustu í ferðaplönum.“

Alda Þórunn Jónsdóttir, árshátíðarferð Kóða til Prag 2025

,,Stórkostleg ferð í alla staði og frábærar gönguleiðir sem komu svo sannarlega á óvart. Yndislegir fararstjórar sem kunna sitt fag og halda vel utanum hópinn. Takk kærlega fyrir mig.“

Sigurlaug Margrét Bragadóttir, gönguferð á Tenerife 2025

,,Frábær ferð. Hver dagur var nýtt ævintýri með ótrúlega skemmtilegum og jákvæðum farastjórum og göngugörpum. Farastjórarnir stóðu sig einstaklega vel og gerðu ferðina ógleymanlega með frábæri þekkingu, húmor og fagmennsku. Hlakka til næstu ferðar og tíu þúsund þakkir fyrir mig“

Andrea Vikarsdóttir, gönguferð á Tenerife 2025

,,Frábær ferð í alla staði og mikil fagmennska í öllu. Engin vandamál bara lausnir. Þakkir skulu þið hafa fyrir. Mæli 10.000% með.“

Guðrún Ásdís Eysteinsdóttir, gönguferð á Tenerife 2025

,,Takk kærlega fyrir mig. Þetta er búið að vera algjörlega guðdómlegt ævintýri.“

Jónína Sigurðardóttir, Senegal og Gambía 2025

,,Frábær og ævintýraleg ferð. Vel skipulögð og góð fararstjórn, og yndislega skemmtilegir ferðafélagar. Ógleymanlegt. Takk fyrir okkur.“

Lilja Berg, Senegal og Gambía 2025

,,Takk kærlega fyrir samveruna. Þetta er geymt ekki gleymt. Það er eiginlega ekki til orð til að lýsa upplifuninni sem þið buðuð upp á.“

Kristín S. Þórðardóttir, Senegal og Gambía 2025

,,Að fara til Grænlands er stórfengleg upplifun. Undir vel skipulagðri og traustri fararstjórn Trausta og Rúnar var hver dagur nýtt ævintýri þar sem við sigldum um stórbrotið landslag, heimsóttum sleðahunda og gengum á jökul. Við mælum heilshugar með þessari ferð.“

Svava Gerður og Jón Örn, Grænland 2024

,,Ferðin til austurstrandar Grænlands var í senn mjög svo áhugaverð og skemmtileg og skipuögð í þaula. Allt gekk eins og í sögu undir styrkri stjórn Rúnar og Trausta. Við gengum yfir og undir jökul, veiddum þorsk og fræddumst um lífið á Grænlandi, sem er allt annað en auðvelt. Ferð sem ekki má missa af. Frábær ferð, bæði áhugaverð og skemmtileg og þið eruð 100% meðetta!“

Pálmi V. Jónsson, Grænland 2024

,,Hvílíkt ævintýri! Mig langar aftur til Grænlands! Nú lét ég verða af því að fara þangað, var alltaf á leiðinni. Þegar bauðst ferð með ferðaskrifstofunni tíu þúsund fetum sló ég til og varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Allt stóðst eins og stafur á bók frá fararstjórum og þegar við vorum veðurteppt í einn dag var öllu reddað. Náttúrufegurð Grænlands er ólýsanleg, jöklar og há fjöll hvert sem augað eigir, gömul notaleg hús og blátt hafið og himinn. Skriðjökullinn var einstaklega flottur. Í ferðinni var farið í veiðiferð og aflinn eldaður og borðaður á steini! Við fórum í íshelli, skoðuðum gamalt þorp sem í búa aðeins örfáir einstaklingar, skoðuðum safn um vinnubrögð fyrr og nú, hittu sleðahunda, fórum í Blómadalinn, sigldum innan um ísjaka og fleira og fleira. Ferðafélagar ljúfir, þéttur hópur. Bara geðveikt gaman. Takk fyrir mig!“

Ása H. Ragnarsdóttir, Grænland 2024

,,Mér fannst þetta virkilega vel heppnuð ferð, með frábærum farastjórum, sem höfðu kynnt sér land og sögu vel og áttu einstaklega auðvelt með að koma þeim fróðleik til skila.“

Haraldur Arngrímsson, Grænland 2024

,,Takk kærlega fyrir mig. Þetta var frábær ferð.“

Ásdís Sigrún Ingadóttir, Heilsuferð með Gunnari á Tenerife 2024

,,Kærar þakkir fyrir frábæra daga. Við sjáumst pottþétt að ári.“

Sólveig Hallgrímsdóttir, Heilsuferð með Gunnari á Tenerife 2024

,,Dásamleg ferð sem lengi verður lifað á“

Margrét Jónsdóttir, Heilsuferð með Gunnari á Tenerife 2024

,,Ferðin gekk mjög vel, nutum okkar í botn og skemmtum okkur frábærlega. Fararstjórarnir okkar Rún og Trausti stóðu sig frábærlega og leystu af ljúfmennsku hvers manns vanda og sýndu snilli sína í mannlegum samskiptum. Sérstakar þakkir fyrir frábæra þjónustu og vonandi eigum við eftir að njóta leiðsagnar þeirra aftur á framandi slóðum.”  

Guðmundur Haukur, ferð eldri borgara til Marokkó 2023

,,Þegar leiðin liggur til framandi menningarheima er ómissandi að fararstjórarnir séu starfi sínu vaxnir. Við fórum til Egyptalands í fyrra með Trausta og Rún. Þau stóðu sig óaðfinnanlega og leystu úr hvers manns vanda hratt og örugglega, enda fagfólk með áratuga reynslu. Við hlökkum til að ferðast með þeim í framtíðinni.”

Elín Albertsdóttir og Ásgeir Tómasson, Egyptaland 2023

,,Ég fór í ferð til Egyptalands í fyrra, þar sem Trausti og Rún voru fararstjórar í ferðinni. Ég mæli heilshugar með þeim. Traust, skemmtileg og hlý eru lýsingarorð sem koma til mín þegar ég hugsa til þeirra.”

Martha Ernstdóttir, Egyptaland 2023

,,Við hjónin viljum þakka Rún & Trausta fyrir leiðsögnina um hinar forn-egypsku slóðir með miklum glæsibrag. Á þessum tíma brutust út átök á milli Hamas og Ísrael og var mikil öryggisgæsla, sem krafðist mikils af fararstjórum okkar m.a. í ýmsum samskiptum við löggæslu og staðarleiðsögumenn, sem þau leystu af lipurð. Þau eiga þakkir skilið fyrir hve vel þau héldu utan um hópinn og gerðu alla upplifun af ferðinni ánægjulegri. En þar sem þetta er ekki fyrsta ferð okkar, þar sem þau Rún og Trausti eru við fararstjórn, kom það okkur ekki á óvart hversu ágætir fararstjórar þau eru. Takk fyrir okkur.”

Óli og Sigrún, Egyptaland 2023

„Við hjónin mælum heilshugar með fararstjórn Rúnar og Trausta. Síðasta sumar ferðuðumst víða um eyjuna Tenerife á þeirra vegum og fórum um eyjuna m.a. í rútu, á bíl og fótgangandi og allt gekk eins og í sögu, vel ígrundað, skipulagt og skemmtilegt. Þau voru alltaf með vellíðan og öryggi okkar í huga og maður fann það sterkt. Það besta við ferðina með þeim var hversu fróð þau voru um staðhætti og sögu staðarins, sögðu skemmtilega frá og kynntu fyrir manni matsölustaði innfæddra, leyndar perlur eyjarinnar og náttúruna.“

Eva Rós og Jóhannes, kennaraferð til Tenerife 2023

,,Takk, takk elsku Rún og Trausti, þið stóðuð ykkur frábærlega! Ég hef nokkrum sinnum komið til Tenerife en aldrei kynnst eyjunni eins og ég gerði í þessari ferð með ykkur. Ég fór í frábærar ferðir, þar sem allt skipulag var til fyrirmyndar og á meðan ekið var um eyjuna fengum við allskonar skemmtilegan fróðleik, sem notalegt var að hlusta á. Takk kærlega fyrir mig, pottþéttir fararstjórar sem ég mæli með. Hlakka til að fara með ykkur aftur í ferð! “

Magnea Guðný Hjálmarsdóttir, kennaraferð til Tenerife 2023.

,,Vorið 2023  fór ég í námsferð til Tenerife ásamt hópi fólks.  Ferðin var mjög vel skipulögð og allar áætlanir stóðust eins og kostur var. Fararstjórnin einkenndist af léttu andrúmslofti, mikilli þekkingu á staðháttum, gleði, öryggi og góðri þjónustulund. Kærar þakkir fyrir mig.”

Svava Aðalbjörg Kristjánsdóttir, kennaraferð til Tenerife 2023.

,,Þessi æfingaferð var frábær! Höllin og lyftingaaðstaðan frábær. Trausti og Rún hjá Tíu þúsund fetum voru mjög liðtæk við að hjálpa okkur eða að aðstoða okkur þegar það þurfti að gera einhverjar breytingar. Okkar upplifun var virkilega góð og allir rosalega ánægðir!“

Jón Brynjar Björnsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu

,,Hótelið var frábært og allt skipulag stóðst uppá 10. Frábær æfingaaðstaða og bærinn hentar mjög vel með allt í göngufæri. Takk kærlega fyrir okkur!”

Sigurjón Friðbjörn Björnsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu

,,Þetta var virkilega góð ferð. Allt skipulag uppá 10. Æfinga- og lyftingaaðstaðan alveg til fyrirmyndar. Hótelið gott þar sem stutt var í allt, maturinn góður og bærinn skemmtilegur. Ég er bara virkilega ánægður og mæli hiklaust með því að lið komi hingað í æfingaferðir.”

Patrekur Jóhannesson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni

,,Ferðin var mjög góð, æfingaaðstaða til fyrirmyndar, hótelið frábært, maturinn fínn, bærinn hentar vel fyrir æfingaferð eins og þessa, lyftingaaðstaðan góð og svo var þjónusta Tíu þúsund feta upp á tíu, frábær og mælum við hiklaust með fyrir þá sem vilja koma í sólina og æfa.”

Eyþór Lárusson, þjálfari meistaraflokks kvenna frá Selfossi

,,Allt upp á 10,5! Allt skipulag stóðst 100%. Við vorum mjög sátt, frábærar aðstæður!”

Ágúst Þór Jóhannson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val

,,Allt upp á 10,5! Frábært skipulag í virkilega góðri æfingferð. Æfingasalurinn sá besti sem ég hef æft í. Við vorum mjög sátt, frábærar aðstæður og bærinn virkilega hentugur fyrir svona hópa. Þetta er líklega besta æfingaferð sem við höfum farið í, hún var algjörlega uppá tíu þúsund fet!“ 

Einar Jónsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram

,,Þetta var frábær ferð. Höllin er algjörlega til fyrirmyndar, lyftisalurinn mjög fínn og hótelið frábært. Öll aðstaðan var til fyrirmyndar og við vorum hrikalega ánægð með allt og mælum heilshugar með ferðinni!“ 

Sólveig Lára Kjærnested, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR