Langar þig til að upplifa stórkostlega menningu og fegurð Bhútan og Nepal með Rún og Trausta?Sendu okkur þá línu á [email protected]
Sannkölluð ævintýraferð á framandi slóðir Bútan og Nepal. Farið verður á slóðir þar sem náttúran gerist vart fallegri í öllum heiminum og heimsækjum við einstaka bæi og þorp og kynnumst framandi menningu þeirra. Heimsfrægar söguslóðir og villt dýralíf verður líka stór hluti af upplifuninni í þessari stórmögnuðu ferð, þar sem engu verður til sparað. Hér er einfaldlega á ferðinni draumaferð sem ekkert ævintýrafólk ætti að missa af, þar sem góður félagsskapur, náttúra, menning, saga, matur og drykkir leika stórt hlutverk.
Tíu þúsund fet kynna meiriháttar ævintýraferð um Bútan og Nepal, þar sem hver sögu- og náttúruperlan rekur hver aðra. Dvalið er á huggulegum hótelum, þar sem vel fer um farþega.
Þetta magnaða ferðalag byrjar í höfuðborg Mongólíu í 1.300 metra hæð yfir sjávarmáli, borg sem var stofnuð af búddískum hirðingja árið 1639, síðan tekur hvert ævintýrið við af öðru þar sem keyrt verður á mótorhjólum um eyðimerkursléttur Mongólíu þar sem einstök villt náttúran er allt um vefjandi, eyðimerkursandar, vatnsuppsprettur, fjöll, gljúfur og ár, framandi gróður og villt dýr. Hirðingjafjölskyldur heimsóttar, fylgst með villtum hestum og dádýrum í sólarlaginu og áhugaverðir þjóðgarðar heimsóttir þar sem hundruð plöntu- og fuglategunda er að finna ásamt tugi tegunda spendýra, flétta, mosa og sveppa.
Eftir óviðjafnanlega heimsókn til Mongólíu verður flogið til Peking í Kína, þar sem gefst tími til að skoða merka staði borgarinnar eins og hlið hins himneska friðar og heimsókn til hinnar forboðnu borgar, sem á sér fimmhundruð ára sögu allt frá því að hún var keisarahöll með aðeins 999,5 herbergjum! Þá verður að sjálfsögðu tekinn göngutúr á Kínamúrnum, sem er einn af sjö undrum veraldar!
Frá Peking verður flogið til Chengdu, borgar risapöndunnar, þar sem keyrt verður í einstöku umhverfi borgarinnar, þar sem framandi byggingarstíll ber fyrir augum og kínversk tehús á hverju horni. Rúsínan í pylsuendanum verður svo án efa fjallaferð, þar sem við heilsum upp á risapöndur. Í grenndinni eru þægilegar gönguleiðir innan um falleg fjöll, dali og falleg þorp Tíbet sem einkennast af hofum með gylltum þökum og hvítlitum húsum Tíbeta.
Þetta er einfaldlega heimshluti sem er stórkostlegt að heimsækja!
Sannkölluð póstkortaferð!
Bútan
Bútan er lítið land í Suður-Asíu með landamæri að Indlandi og Kína (Tíbet) en það liggur að austurenda Himalaya-fjallanna og í vestri og suðri skilja indversk héruð landið frá löndunum Nepal og Bangladess.
Bútan er þekkt fyrir einstaka menningu, töfrandi landslag og náttúru, ljúffengan mat, lifandi listir, heillandi hefðir og forna sögu.
Bútanir eru þekktir fyrir hlýleika, gestrisni, hjálpsemi og samstöðu en meirihluti þeirra iðkar Búddisma, sem endurspeglar daglegar athafnir þeirra. Hefðir í menningu Bútana birtast í gegnum ýmiskonar listir, dans og tónlist og hátíðir eins og hina frægu Paro Tsechu-hátíð sem er haldin ár hvert í Bútan, þar sem tónlist, litríkir búningar og grímur eru áberandi og andanum lyft upp í hæstu hæðir í borginni Paro í konungsríki Bútan. Arkitektúr heimamanna gegnir líka lykilhlutverki í menningu Bútan, þar sem þeir eru m.a. þekktir fyrir glæsileg virki og klaustur.
Náttúran og landslagið í Bútan er afar heillandi, snæviþaktir háir fjallstoppar sem sumir hverjir ná upp í 7.000 m yfir sjávarmál, gróðursælir dalir, tærar ár og fjölbreytt plöntu- og dýralíf. Landið er einnig þekkt fyrir ríka umhverfisvernd, þar sem yfir 70% af landinu er þakið skógum og er mikil áhersla lögð á að viðhalda sterkri stefnu í umhverfismálum. Í Bútan er að finna ótal þjóðgarða, þar sem áhersla er lögð á að vernda búsvæði og viðhalda dýrastofnum sem eru í útrýmingarhættu eins og Bengal-tígrisdýrin og fuglategundina black necked-crane.
Matargerð í Bútan er þekkt fyrir að hafa matinn bragðsterkan og notkun á rauðum hrísgrjónum, bókhveiti og maís. Vinsælasti maturinn einkennist af chili-ostastöppu, svínakjöti með rauðum chili og soðbrauði. Þá er þjóðardrykkur þeirra án efa hið svokallaða smjörte.
Bútan er einnig þekkt fyrir ríkar hefðir í handverki og listum, þar sem Bútanir skera ýmsa listmuni út í við, vefa körfur og mála Búdda-listaverk á bómullarefni. Þá eru þeir snillingar í grímugerð!
Nepal
Nepal er um 800 km langt land og 200 km breitt og á landamæri að Kína (Tíbet) í norðri og Indlandi í austri, vestri og suðri. Meirihluti landsins er í Himalaya-fjöllunum en þar má finna átta af tíu hæstu tindum heims, þar á meðal Everest, hæsta fjall heims.
Nepal er þekkt fyrir einstaka menningu, töfrandi landslag og náttúru, ljúffengan mat, fjölbreyttar listir, heillandi hefðir og forna sögu.
Meirihluti íbúa í Nepal eru hindúar en trú þeirra er mjög samofin búddisma. Íbúarnir þykja einstaklega gestrisnir og vinalegir í garð gesta, þar sem þeir bjóða ferðamönnum gjarnan sitt einstaka te eða bjóða jafnvel með sér í mat.
Nepalir eru þekktir fyrir litríka menningu þar sem þjóðleg tónlist og dansar leika stórt hlutverk. Þeir halda reglulega hátíðir sem tengjast hefðum trúarbragðanna í landinu eins og uppskeruhátíðina Dashain, hina litríku Tihar-hátíð þar sem lögð er áhersla á að heiðra tilveru dýra og minna á kærleika og góðmennsku og kvennahátíðina, Teej. En Nepalir vita fátt skemmtilegra en að koma saman og fagna og gera það af miklum eldmóði.
Landslagið í Nepal einkennist einkum af gríðarlegri fjallafegurð Himalaya-fjallanna, þar sem snæviþakið Everestfjall trónir þeirra hæst í 8.849 m hæð yfir sjávarmáli. En í landinu má finna sjö önnur fjöll sem fara yfir 8.000 m í hæð. Það má í raun skipta landinu í þrjú landfræðileg belti, Himal, Pahad og Terai. Á norðurhluta landsins er Himal, þar sem hæstu fjöllin má finna og eru þau öll snæviþakin allt árið um kring. Þá taka við fjallahéruð þar sem fjöllin eru frá 800 m til 4.000 m há og þar er ekki snjór allt árið. Syðst í landinu við landamæri Indlands er svo láglendið Terai, þar sem finna má m.a. dýpstu gjár heims og gróðursælar sléttur.
Matargerð í Nepal er fjölbreytt, þar sem fólkið í landinu býr á afar ólíkum svæðum, hvert hérað hefur sinn matarstíl. En dæmigerður matur væri t.d. linsubaunasúpa með hrísgrjónum. Þá er hrísgrjóna- og soðbrauð afar vinsælt en með því er oft borið fram alls konar sultur og kryddmauk en þar eru krydd eins og kúmen, kóríander og túrmerik vinsælust.
Nepalir hafa gaman af alls kyns listum og eru einna þekktastir fyrir trúarleg málverk, sem þeir mála t.d. á bómul og silki. Þá eru þeir snillingar í tréútskurði, þar sem þeir skera út fíngerðar myndir til skreytingar á m.a. byggingum en í landinu má finna ótal fallega skreytt hof, hallir og stúpur.
Nokkrar staðreyndir um Bútan:
Nokkrar staðreyndir um Nepal:
Dagskrá ferðinnar er í smíðum og verður birt hér innan tíðar. Við lofum ykkur því að hún verður full af upplifunum og ævintýrum að hætti Rúnar og Trausta þar sem fróðleikur, náttúrufegurð, menning, byggingalist, matur, drykkir og almenn skemmtilegheit verða í fyrirrúmi.
Gist er í tjaldbúðum, gistiheimilum og á hótelum. Á gistiheimilum og hótelum er gist í tvíbýli, nema þess sé óskað sérstaklega að vera í einbýli.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í þessari ferð er mikilvægt að fólk sé heilsuhraust, bæði líkamlega og andlega og sé tilbúið að gista stundum í framandi umhverfi og aðstæðum. Salerni eru víða ekki eins og við eigum að venjast og því gott að vera búin undir hvað sem er. Það getur þýtt að dagskrá getur breyst eða tafist og því mikilvægt að ferðafélagar séu tilbúnir að sýna hver öðrum skilning og takast á við óvænta hluti með jafnaðargeði.
Í hringferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðirnar. Rún og Trausti hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld.
Rún og Trausti munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð, þar sem fræðsla og umfram allt skemmtileg upplifun verður í fyrirrúmi.
Flug
Innanlandsflug
Farangur
Hótel
Fæði – Drykkir
Akstur
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
https://www.fib.is/is/ferdalog/althjodlegt-okuskirteini
https://www.vinnuvernd.is/bolusetningar-ferdalog og
Athugið að listinn er ekki tæmandi og aðeins til viðmiðunar.