Langar þig til að feta í fótspor Hringfarans og upplifa stórkostlega menningu og fegurð Eþiópíu með Rún og Trausta? Sendu okkur þá línu á [email protected]
Tíu þúsund fet bjóða nú upp á glæsilega ævintýraferð til Eþíópíu í Afríku. Í þessari ferð verður fetað í fótspor hins landsþekkta Hringfara en Eþíópía er eitt af uppáhalds löndunum hans og höfum við hjá Tíu þúsund fetum fengið hann til að halda léttan fyrirlestur um upplifun sína á landi og þjóð, áður en lagt verður af stað í þetta einstaka ævintýri.
Landið er ríkt af sögu og framandi menningu ásamt einstakri náttúrufegurð og heillandi matargerð, þar sem ýmist verður borðað á velvöldum veitingastöðum eða úti í náttúrunni. Frábær dagskrá alla daga og vönduð íslensk fararstjórn tveggja þaulreyndra fararstjóra Tíu þúsund feta.
Komdu með Tíu þúsund fetum í einstakt ferðalag, þar sem við förum saman á ævintýralegar slóðir ólíkra ættbálka í Eþíópíu og upplifum heillandi náttúruundur, merkilega sögu og einstakt dýralíf. Í þessari mögnuðu ferð, Tíu þúsund feta, verður lögð áhersla á framandi og viðburðaríka daga í Eþíópíu.
Ferðalagið byrjar í höfuðborginni Addis Ababa og farið í léttan göngutúr um miðborgina, þar sem fyrsti og jafnframt einn besti kaffibolli í heimi verður tekinn. Næstu dagar einkennast síðan af viðburðaríkri upplifun, þar sem ferðalangar fá að kynnast siðum og hefðum ólíkra ættbálka í framandi þorpum. Þá verður farið á heimaslóðir krókódíla og flóðhesta ásamt því að upplifa einstakt fuglalíf svo fátt eitt sé nefnt. Í ferðinni verður einnig farið á heillandi landsvæði, þar sem náttúran skartar sínu fegursta, m.a. á háhitasvæði, sem er eitt það heitasta á jörðinni og litadýrðin einstök. Þá verður farið í margra alda gamlar kirkjur sem hafa verið höggnar í klettaberg og teknar göngur í óviðjafnanlegu fjalllendi Eþíópíu.
Þetta er einfaldlega ferð sem þú mátt ekki missa af – upplifun frá upphafi til enda!
Ítarlega dagskrá má sjá hér að neðan.
Eþíópía heitir opinberlega, Sambandslýðveldið Eþíópía og er í Austur-Afríku. Það er 1.104.300 km² að stærð og er þar með tíunda stærsta land Afríku. Eþíópía er fjölmennasta landlukta land í heimi og næstfjölmennasta ríki í Afríku en íbúar landsins telja 137 milljónir. Flestir búa í höfuðborginni Addis Ababa eða ríflega 5,2 milljónir manna. Þau lönd sem eiga landamæri að Eþíópíu er Eritrea, Djíbúti, Súdan, Suður-Súdan, Kenýa og Sómalía.
Eþíópía er talið vera eitt elsta ríki Afríku með eina lengstu þekktu sögu allra landa Afríku. Landið var eina ríki Afríku, sem náði að halda sjálfstæði sínu, þegar nýlenduríkin voru að berjast um yfirráð þeirra eða allt til ársins 1936, þegar Ítalir réðust inn í landið. Hersveitir Eþíópíu og Breta sigruðu svo Ítali árið 1941 og náði þjóðin aftur sjálfstæði sínu 1944.
Í Eþíópíu búa meira en 80 mismunandi þjóðflokkar og eru íbúarnir mjög ólíkir. Opinbert tungumál landsins er amharíska en í landinu eru einnig töluð mörg minna útbreidd tungumál, þar sem hver þjóðflokkur er með sitt eigið tungumál og einnig með sína eigin siði. Um 50% íbúanna er undir 18 ára aldri.
Landið þykir skarta einstakri náttúrufegurð, þar sem fjölbreytni í landslagi er mikil með háum fjöllum, iðagrænum gróðri, ám og fjölskrúðugu dýralífi. Hæsta fjallið er Ras Dahen í 4.553 m hæð en í landinu eru líka mörg virk eldfjöll eins og Simien fjöllin og Danakil-háslétturnar, sem eru með heitustu stöðum jarðarinnar. Bláa-Níl, sem er önnur af tveimur meginkvíslum Nílar rennur úr hinu svokallaða Tanavatni og er ein mikilvægasta vatnsauðlind landsins bæði fyrir landbúnað og orku. Þá er að finna nokkra einstaka þjóðgarða, sem m.a. hafa verið settir á heimsminjaskrá UNESCO.
Eþíópía er ríkt af framandi menningu, þar sem tónlist, dans og aðrar listir eiga stóran þátt í hefðum heimamanna. Þá eru þeir þekktir fyrir ljúffenga matargerð og besta kaffi í heimi. Kaffið er ekki bara drykkur, heldur athöfn.
Veðurfar í Eþíópíu er fjölbreytt og fer eftir landslagi og svæðum. Rigningartímabilið er almennt frá júní og fram í september á meðan október og fram í maí telst til þurrkatíma. Hitastig er mjög breytilegt eftir landsvæðum, þar sem kaldara er upp til fjalla. Október er almennt mildur og þurr, þar sem meðalhitinn er frá 5 og upp í 35 gráðum eftir svæðum!
Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Eþíópíu
Breytilegt hitastig ríkir í Eþíópíu:
Addis Ababa: 22-25°C á daginn og 5-10°C á kvöldin
Omo Valley: 30-38°C á daginn og 18-22°C á kvöldin
Tigray (Gheralta): 24-28°C á daginn og 8-12°C á kvöldin
Danakil/Erta Ale: 35-45°C á daginn og 20-25°C á kvöldin
Mikilvægt að vera heilsuhraustur. Í flestum skoðunarferðunum eru eins til tveggja tíma göngur. Í sumum göngunum er gengið eftir þægilegum stígum í fjalllendi og taka þær göngur um tvo til þrjá tíma. Ef fólk treystir sér ekki í fjallgöngu, er hægt að sleppa því og rölta um nærliggjandi svæði eða bíða með bílstjóra, þar til hópur kemur til baka.
Daglegur akstur er að meðaltali um 4-5 klst. á vegum sem eru misgóðir, sums staðar er ekið á malarvegum og einnig utanvegar og ryk þyrlast sums staðar upp. Bílakostur í Eþíópíu er ekki 5*, m.a. keyrt í gömlum 4×4 hertrukkum.
Siglt er á bátum heimamanna, m.a. á kanóum, mikilvægt að fylgja fyrirmælum fararstjóra, þegar gengið er um borð í báta.
Hitastig er mjög breytilegt milli svæða og á milli dags og nætur. Hæðarmunur er einnig mikill eftir svæðum, allt frá 125 m undir sjávarmáli og upp í 2350 m hæð yfir sjávarmáli.
Menning Eþíópíu er frábrugðin því sem við eigum að venjast, þar sem matur er m.a. framandi og sölumenn geta verið ágengir. Undir lok ferðar er gist undir berum himni!
Í Eþíópíu verður gist á fjölbreyttum gististöðum, sumum mjög framandi en einnig á hótelum í vestrænum stíl.
Í Addis Ababa verður gist á 4* hótelinu Grand Eliana í 4 nætur.
Herbergin eru snyrtileg. Í herbergjunum er loftkæling, frí Wi-Fi tenging og öll helstu þægindi.
Hótelið er vel staðsett í hjarta gamla bæjarins í Addis Ababa. Á hótelinu er heilsulind með m.a. saunu og gufubaði. Sundlaugarsvæði er að finna bæði innan og utandyra.
Í Arba Minch verður gist á 4* hótelinu Paradise Lodge í 1 nótt.
Herbergin eru snyrtileg. Í herbergjunum er loftkæling, frí Wi-Fi tenging og öll helstu þægindi.
Hótelið er umvafið einstakri náttúrufegurð með fallegu útsýni yfir skóga og vatn. Á hótelinu er notaleg heilsulind, þar sem hægt er að njóta þess að fara í nudd, saunu og gufuböð. Fallegur sundlaugargarður við hótelið.
Í Turmi verður gist við frumstæðar aðstæður, þ.e. í gestahúsum Paradise Lodge í 2 nætur.
Hvert timburhús er með eitt snyrtilegt herbergi. Í herbergjunum er vatnssalerni, vifta, moskítónet, lítill ísskápur, ketill, handklæði og lín. Vatnið í sturtunni er hitað með sólarrafhlöðum. Wi-Fi er í gestamóttökunni og í matsal.
Hótelið er einangrað en það er staðsett beint á móti Hamar-þorpinu og í 5 mínútna aksturfjarlægð frá markaði.
Öðruvísi upplifun!
Í Jinka verður gist við frumstæðar aðstæður, þ.e. í umhverfisvænum gestahúsum Eco-Ome Safari Lodge í 1 nótt.
Herbergin eru lítil en snyrtileg með rafmagni og heitu vatni, sem þykir ekki sjálfsagt á þessum slóðum. Í herbergjunum er vatnssalerni, vifta, moskítónet, handklæði og lín.
Hótelið er með fallegum garði og staðsett rétt utan við Jinka-borg við Neri-ána í Omo-dalnum.
Öðruvísi upplifun!
Við Erta Ale verður gist undir berum himni 1 nótt!
Í Hamedela verður gist undir berum himni 1 nótt!
Í Mekelle verður gist á 4* hótelinu Planet í 1 nótt.
Herbergin eru snyrtileg og með góðum rúmum. Í herbergjunum er loftkæling, frí Wi-Fi tenging og öll helstu þægindi.
Hótelið er vel staðsett í Mekele og þar er sundlaug, heilsulind og líkamsræktaraðstaða.
Í Hawzen í Tigray verður gist á gistiheimili Gheralta Lodge í 1 nótt.
Herbergin eru snyrtileg og með góðum rúmum. Í herbergjunum er loftkæling, frí Wi-Fi tenging og öll helstu þægindi.
Hótelið er vel staðsett á einstaklega fallegum útsýnisstað í dásamlegu umhverfi og þar er sundlaug, heilsulind og líkamsræktaraðstaða.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í þessari ævintýraferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar, þau Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson. Þau hafa unnið sem fararstjórar víða um heim til 26 ára og hafa m.a. starfað sem fararstjórar í nokkrum löndum Afríku.
Kristján Gíslason er óvenjulegt eintak af manni. Árið 2014 umpólaði hann tilveru sinni og fór í heimsreisu, á mótorhjóli, sem tók tíu mánuði. Hann er einnig þekktur sem Hringfarinn.
Kristján er íslenskur kerfisfræðingur og ævintýramaður sem hefur ferðast um heiminn á mótórhjóli sínu. Árið 2019 fór hann niður Afríku, þar sem hann kynntist einstökum ættbálkasamfélögum og komst í kynni við einhver hættulegustu dýr heims.
Þá varð Kristján ástfanginn af Eþíópíu sem enn í dag er eitt af hans uppáhalds löndum í heiminum.
Áður en við leggjum af stað í ferðina ætlar sjálfur Hringfarinn að hitta hópinn og halda fyrirlestur um menningu, land og þjóð.
Flogið er með Icelandair frá Keflavíkurflugvelli með millilendingu í Frankfurt. Flugið er áætlað frá Keflavíkurflugvelli kl. 7:25 og lending í Frankfurt kl. 12:05.
Þá hafa farþegar kost á að geyma farangur á flugvelli og nýta daginn frjálst fyrir flugið til Eþíópíu, sem verður með Ethiopian Airlines en flugið áætlað kl. kl. 21:35 frá Frankfurt. Áætluð lending er kl. 6:25 á Bole alþjóðaflugvellinum í Addis Ababa.
Þar mun rúta bíða hópsins og keyra hann heim á 4* hótel, Eliana, sem er staðsett í hjarta gömlum bæjarhluta borgarinnar.
Athugið að það er mikilvægt að verða sér úti um auka forfallatryggingu fyrir flugin.
Við komuna á hótelið, skrá farþegar sig inn og fá tækifæri til að hvílast eftir ferðalagið.
Hópurinn verður síðan boðinn velkominn yfir hádegisverði á þjóðlegum veitingastað skammt frá hótelinu. Þar gefst gott tækifæri til að byrja á því að kynnast eþíópískri eldamennsku og matarmenningu, þar sem fólk borðar saman með höndunum, þar sem diskurinn og hnífapörin eru gerð úr brauði!
Þá verður farið í kaffismökkun á sögulegri kaffiverslun beint á móti hótelinu og fylgst með brennslu fyrsta flokks kaffibauna, þar sem kaffiilmurinn umlykur rýmið. En Eþíópíubúar eru þekktir fyrir kaffi í heimsklassa.
Eftir það verður farið í Unity Park, sem er um 40 hektara garður við Þjóðarhöllina. Það en þar má sjá framandi plöntur og dýr. Í framhaldinu verður farið í Vinagarðinn, þar sem hópurinn nýtur sólsetursins yfir borginni.
Síðan verður tekinn bíltúr í opinni rútu um borgina, þar sem farþegum gefst gott tækifæri til að virða fyrir sér iðandi, fjölskrúðugt mannlífið áður en farið verður í dýrindis kvöldverð að hætti heimamanna, þar sem einnig verður boðið upp á þjóðlega danssýningu. Heimamenn munu einnig kynna hina svokölluðu Jebena kaffiathöfn, sem er hálfgerð helgiathöfn, þar sem fylgst verður með ferli uppáhellingarinnar allt frá ristun baunanna og þar til það er komið í bollann með viðeigandi blessun.
Eftir morgunverð fer hópurinn saman í miðborgarferð með viðkomu á Adwa-sigursafninu en þar er m.a. sögð saga Eþíópíubúa sem unnu sigur á nýlenduveldunum og síðan liggur leiðin á Þjóðminjasafnið, þar sem hópurinn mun m.a. berja Lucy augum, 3,2 milljón ára gamlan steingerving ásamt því að kynnast fróðlegri sögu konungssögu landsins.
Í hádeginu fær hópurinn að kynnast dýrindis matarmenningu, þar sem lögð verður áhersla á að kynna kjötmenningu Eþíópíubúa en staðurinn, sem verður heimsóttur er frægastur fyrir það sem kallast Kurt, hrátt nautakjöt en þar verður þó einnig boðið upp á steikt geita- og nautakjöt kryddað með hvítlauk, lauk og rósmarín, sem borið er fram með ljúffengum, þjóðlegum sósum. Heimsókn sem gleður bragðlaukana.
Eftir hádegismat verður tekinn göngutúr eftir Afríkustræti og púlsinn tekinn á daglegu lífi heimamanna, þar sem endað verður í kaffi eða te og smákökum með því.
Síðdegis verður farið í heimsókn í SOS barnaþorp Addis Ababa, þar sem farþegar fá innsýn í þá samfélagsþróun sem hefur átt sér stað í Eþíópíu ásamt því að kynnast þeim verkefnum samtakanna sem hafa skuldbundið sig við að veita börnum ástrík heimili og styðja við fjölskyldur. Í þessari heimsókn gefst kostur á að veita frjáls framlög til samtakanna.
Í lok dags verður ekið til Entoto-garðsins til að njóta sólarlags og útsýnis yfir borgina áður en farið verður í kvöldverð á góðum veitingastað við Meskel-torgið.
Eftir snemmbúinn morgunverð verður farið út á flugvöll og þaðan flogið kl. 8:05 til Arba Minch, þar sem áætluð lending er kl. 9:10. Við komuna þangað skrá farþegar sig inn á gistheimilið, sem er að þessu sinni vistvænt og í anda hefðbundins byggingarstíls í S-Eþíópíu, staðsett í stórkostlegri náttúru, upp á klettabrún sem býður upp á glæsilegt útsýni yfir svæðið. Þegar hópurinn hefur náð áttum með góðu kaffisopa verður tekinn léttur göngutúr um gróskumikið skógarsvæði, Forty Springs, innan um forn tré og kristaltært lindarvatn, sem sprettur upp úr jörðinni. Á leiðinni eru miklar líkur á að apar heilsi upp á mannskapinn áður en farþegar eiga fund með einu ógnvænlegasta rándýri Afríku, sem halda til á krókódílabúgarði í grenndinni. Búgarðurinn er sérhæft verndarsvæði, sem býður upp á heillandi sýn þúsunda Nílarkrókódíla á ýmsum vaxtarstigum, allt frá litlum ungum til risavaxinna, fimm metra langra fullorðinna krókódíla.
Í hádeginu verður farið á veitingastað, þar sem mælst er til að farþegar prófi ferskan Nílar fisk, sem veiddur hefur verið á staðnum.
Eftir bragðgóðan hádegisverð verður haldið út á Chamo-vatn í dýrasafarí. Þar verður hinn svokallaði krókódílamarkaður heimsóttur, þar sem risavaxnir Nílarkrókódílar safnast saman í tugatali til að baða sig við ströndina. Á siglingunni sést til stórra hópa flóðhesta, sem njóta slökunar í sefi vatnsins og fyrir þá sem hafa gaman af fuglaskoðun, þá býðst einstakt tækifæri í heimsklassa, til að fylgjast með fjölbreyttum tegundum fugla eins og örnum og pelíkönum í sínu náttúrulega umhverfi.
Síðdegis verður ekið til Gughe-fjalla, þar sem hið áhugaverða Dorze-þorp verður heimsótt. Þorpið einkennist af sérstökum byggingarstíl, þar sem húsin minna einna helst á býflugnabú, sem er einkennandi fyrir svæðið en þessi sérstöku hús eru allt að 12 m há. Dorze-fólkið er þekkt fyrir fallegan vefnað og brauðgerð úr ,,false banana“ plöntunni, sem farþegar fá að kynnast í heimsókninni. Toppurinn er síðan þátttaka í andlegri athöfn, þar sem þorpsbúar bjóða gesti velkomna með þjóðlegri tónlist og orkumiklum dansi ásamt því að bjóða upp á bragðmikinn, hvítlauksbættan drykk.
Eftir morgunverð tekur við akstur, þar sem keyrt verður í gegnum Great Rift dalinn og farið í heimsókn í eitt af níu þorpum Konso-fólksins, sem hefur verið sett á heimsminjaskrá UNESCO. Þorpið er staðsett í þurru hálendi Suður-Eþíópíu, þar sem samfélög hafa með miklu hugviti náð að aðlagast grýttu umhverfi. Svæðið er um 230 ferkílómetrar og frægt fyrir víggirta steinveggi sem hafa komið í veg fyrir jarðvegseyðingu og hámarka vatnsgeymslu fyrir landbúnað.
Áður en lagt verður af stað til Turmi verður boðið upp á hádegissnarl. Á leiðinni til Turmi verður keyrt í fallegu umhverfi og komið við í Key Afar-þorpinu í hjarta Bena-svæðisins, þar sem tekinn verður stuttur göngutúr í friðsælu umhverfi og framandi þorpi. Í þorpinu býr Bena-fólkið á hrjóstrugu hálendi á víðáttumiklum Omo-sléttunum, en það er þekkt fyrir flókið perluverk og mikla gestrisni. Hápunktur heimsóknarinnar er sýning á einstakri hefð, þar sem ungir Bena-drengir ganga um á stultum. Hefðin hefur þróast út frá því að stulturnar komu fjárhirðum til hjálpar við að koma auga á rándýr og til að komast auðveldar í gegnum þyrnótta runna á meðan búfjárs var gætt. Nú er þetta tákn um snerpu heimamanna þar sem drengirnir svífa áreynslulaust um landsvæðið á stultunum.
Síðdegis, við komuna til Turmi, koma farþegar sér fyrir á gististaðnum. Þegar myrkrið skellur á verður andrúmsloftið rafmagnað, þar sem Hamer ungmenni safnast saman og dansa tunglskinsdans með taktföstum hoppum.
Eftir morgunverð er keyrt til Karo-þorpsins, þar sem lítil ættkvísl Karo-ættbálksins býr meðfram árbökkum Omo-árinnar sem hlykkist eins og snákur um dalinn fyrir neðan þorpið sem stendur á klettahæð. Þorpin þeirra þykja einstaklega falleg og fólkið er þekkt fyrir að mála áberandi skreytingar á andlit og líkama barnanna í þorpinu.
Því næst er farið tilbaka til Turmi, þar sem hópurinn borðar hádegisverð og nýtur þess að slaka á.
Síðdegis, verður farið inn í hjarta Hamer-svæðisins, þar sem konurnar eru þekktar fyrir að skreyta sig með skeljakrögum og greiða og lita hár sitt á einstakan hátt. Ef heppnin verður með hópnum, mun hópurinn verða vitni að einstakri athöfn í Hamer-þorpinu, þar sem drengir sýna karlmennsku sína með því að ganga eða stökkva yfir röð af nautgripum og komast þannig í leiðinni í fullorðinna manna tölu. Þessi dagskrárliður er ekki undirbúinn og veltur eingöngu á heppni. Ef nautgripahoppið verður ekki í gangi verður skyggst inn í líf Hamer-fólksins og þorpið þeirra heimsótt, þar sem veitt verður innsýn inn í daglegt líf ættbálksins, allt frá kaffigerð til fróðleiks um hvernig líf þeirra hefur þróast í gegnum árin.
Kvöldmatur tekinn í Turmi og gott tækifæri til hvíldar, þar sem hægt er að njóta friðsældar Omo-dalsins.
Að loknum morgunverði verður ekið til landamæraborgarinnar Omorate, þar sem farið verður yfir Omo-ána og Dassanech-ættbálkurinn heimsóttur. Hann býr við landamæri Kenýa, S-Súdan og Eþíópíu, þar sem fólkið hefur aðlagast heitasta og þurrasta svæði Omo-dalsins. Omorate-borg tilheyrir einnig Kenýa og því þarf hópurinn að fá stimpil í vegabréfið á landamærunum.
Hýbýlí Dassanech-ættbálksins eru einstök og ólík leirhúsum annarra ættbálka, þar sem um er að ræða færanlega kofa úr greinum, skinnum og bylgjupappa en þessi gerð hentar vel hirðingjalífi þeirra. Farþegar fá góða innsýn í líf þeirra og störf og fá að kynnast því hvað ættbálkurinn er háður flóðum Omo-fljótsins fyrir alla ræktun.
Eftir heimsóknina í Dassanech-þorpið verður hádegisverður snæddur í Omorate eða á leiðinni og farangur sóttur á hótel. Eftir hádegisverð er keyrt upp frá þurrum sléttum Omo-svæðisins upp til gróskumikils fjalllendis, til Jinka. Síðla dags er frjáls tími til að fara annað hvort á Jinka-safnið eða í Ari-þorpið, þar sem má finna elstu og stærstu ættbálka Omo-dalsins en þeir eru þekktir fyrir kaffiakra, engiferræktun, hunangsframleiðslu, járnsmiði og leirkerasmiði. Jinka-safnið er í raun rannsóknarmiðstöð Suður-Omo og veitir góðan fróðleik um samfélög ólíkra ættbálka á svæðinu, þar sem sjá má meðal annars sögulegar ljósmyndir.
Snemma dags, eftir morgunverð verður stefnan sett á ákaflega fallega akstursleið í gegnum Mago-þjóðgarðinn til að heimsækja Mursi-þorpið sem er staðsett í Neðri-Omo dalnum. Konur þessa ættbálks eru þekktar fyrir stórar leirplötur, sem þær prýða varir sínar með, á meðan karlarnir eru þekktir fyrir flókin líkamsmálverk. Eftir ógleymanlega heimsókn í Mursi-þorpið verður farið aftur til Jinka í hádegismat. Hópurinn á síðan flug til Addis Ababa kl. 14:05 en áætluð lending er kl. 15:25.
Rúta bíður farþega og keyrir þá á hótelið Grand Eliana og þar gefst tækifæri til að hvílast áður en farið verður á veitingastað í höfuðstöðvum seðlabanka Eþíópíu, sem er í hæstu byggingu Austur-Afríku á 47. hæð. Þar verður boðið upp á lúxusmáltíð að hætti heimamanna með 360 gráðu útsýni yfir borgina Addis Ababa.
Eftir morgunverð snemma dags verður haldið út á flugvöll í Addis Ababa, þar sem flug til Mekelle, bíður hópsins. Þegar það þangað er komið tekur ferskt loft í hinu óbyggða landslagi Tigray á móti hópnum. Þaðan verður svo ekið í átt að Gheralta-héraði í töfrandi landslagi Gheralta-fjallanna, þar sem fyrsta stopp verður gert við Wukro Cherkos, kirkju frá 4. öld sem hefur verið höggvin inn í klettaberg. fræg fyrir krosslaga súlur og fornan sandsteinsútskurð.
Á leiðinni verður einnig kíkt inn í eina af heilugustu moskum Afríku, Al-Nejashi, sem er elsta moska Afríku, reist á 7. öld e.Kr.
Hádegismatur, að hætti norðursins í Eþíópíu, verður snæddur í Hawzen-borg.
Síðdegis verða teknir göngutúrar í fjalllendi Gheralta og hin svokölluðu tvíburaundur Korkor skoðuð, Mariam Korkor og Daniel Korkor. Um er að ræða annars vegar stærstu kletta kirkju héraðsins, Mariam Korkor, með hvítkölkuðum veggjum skreyttum flóknum freskum frá 13. öld og hins vegar Daniel Korkor, sem er lítið bænahús staðsett á klettabrún í stórfenglegu landslagi.
Um kvöldið verður notið hvíldar í einstakri kyrrð á fallegum og afskekktum útsýnisstað gististaðarins, þar sem einstakt tækifæri gefst til stjörnuskoðunar í dimmu umhverfinu en jafnframt undir stjörnubjartasta himni Eþíópíu.
Dagur 10 – Himnakirkjan – Mekelle
Eftir morgunverð verður ein ótrúlegasta kirkja veraldar, Abuna Yemata Guh, heimsótt en hún er höggvin inn í þverhnípt 2.500 m hátt klettaberg. Gangan þangað hefur verið kölluð ,,Klifur trúarinnar“, þar sem leiðin einkennist af brattri uppgöngu, sem endar á stíg utan í klettabjörgunum, sem býður upp á svimandi en stórkostlegt útsýni. Þegar inn í kirkjuna er komið má sjá einar best varðveittustu freskum í Eþíópíu frá 15. öld. Athugið, þessi ganga er valfrjáls og einungis fyrir þá sem eru lausir við lofthræðslu. Fyrir þá sem ekki treysta sér í þessa göngu, geta rölt um í fallegu fjallaumhverfi á meðan og notið friðsældar einstakrar náttúru.
Eftir ólýsanlega upplifun í Abuna Yemata Guh, verður keyrt til Hawzen, þar sem verskuldaður hádegisverður, verður snæddur á velvöldum veitingastað, þar sem góður tími verður gefinn til slökunar.
Seinnipartinn verður lagt af stað og falleg leið keyrð til Mekelle. Á leiðinni verða hinar stórkostlegu Abreha & Atsbeha kirkja heimsótt, en hún var reist á 4. öld af tvíburakonungum, sem komu með kristni til Eþíópíu. Kirkjan er þekkt fyrir útskornar súlur, krosslaga súlur og flóknar loftmyndir. Hún er ein af heilögustu og áhrifaríkustu kirkjum Tigray-héraðs.
Við komuna til Mekelle, hinnar líflegu höfuðborgar Tigray-héraðs, skrá farþegar sig inn á hótel og halda síðan til kvöldverðar á frægum veitingastað, sem býður upp á hefðbundinn kvöldverð að hætti heimamanna ásamt því að njóta Tigray dans til að fagna lokum hélndisævintýris.
Eftir morgunverð verður lagt af stað til Erta Ale og munu farþegar upplifa miklar andstæður á akstursleiðinni allt frá gróðursælum fjallstoppum hálendisins yfir í hrjóstrugt umhverfi hraunlendis, þar sem stefnan er tekin á einn heitasta og lægsta undirlendi jarðkringlunnar.
Við komuna í Stóra Rift-dalinn verður tekinn hádegisverður í saltnámsbænum, Afdera og gefinn góður tími til slökunar eftir aksturinn, þar sem farþegar fá að upplifa hvernig er að fljóta áreynslulaust í ofursöltu vatni Afdera í einstöku umhverfi saltsléttunnar í kringum bæinn. Eftir flothugleiðslu í þessu magnaða umhverfi, gefst farþegum tækifæri á að skola saltið af sér í náttúrulegri ,,sturtu“ úr heitu uppsprettuvatni.
Síðdegis verður lagt af stað út í óbyggðir hraunlendisins og farið í grunnbúðir Elta Ale, þar sem tekið verður á móti hópnum með kokteil og skálað við fallegt sólarlag.
Þegar myrkrið er skollið á verður farið í gönguferð til ,,Hliðs helvítis“, þar sem gengið verður eftir þægilegum göngustíg upp eftir Erta Ale eldfjallinu. Þegar upp er komið blasir við rauðglóandi hrauná, ólýsanleg sjón undir næturhimni Eþíópíu.
Gist verður við óvenjulegar einnar milljóna stjarna aðstæður, þar sem nútíma lúxus er skipt út fyrir einstaka upplifun úti í náttúrunni. Sofið verður á einföldum dýnum innan steinhlaðinna tjaldbúða, undir berum himni við rætur eldfjallsins!
Hópurinn mun vakna snemma og upplifa óviðjafnanlega sólarupprás yfir eldgíg Erta Ale, þegar fyrsta sólarljós dagsins birtist yfir búbblandi hraunánni. Þá verður varið niður í grunnbúðirnar, þar sem morgunverður bíður hópsins. Um klukkan hálf níu verður svo farið í 4×4 trukka og ekið í óbyggðum til Hamedela-þorpsins.
Á leiðinni í gegnum hina svokölluðu eyðimörk hinna dauðu ár, verður boðið upp á hádegisverð í safarístíl og hvíld eftir matinn.
Þá verður haldið út að saltkerum Assale-vatns, þar sem farþegar upplifa ótrúlega sögu og verða vitni af mögnuðum saltnámum Afar-salts, þar sem saltblokkir jarðar eru handskornar með fornum hætti. Ef heppnin verður með hópnum, þá á hann eftir að upplifa þegar hundruð kameldýra ferja hvíta gullið í fallegri lest yfir til hálandanna.
Þegar sólin sest til viðar á saltsléttunum, skapast ótrúlegt sjónarspil þar sem sólargeislarnir speglast í spegilsléttu vatninu og litir himinsins breytast með töfrandi hætti.
Eftir ólýsanlega upplifun verður aftur snúið til Hamedela, þar sem boðið verður upp á kvöldverð.
Síðan verður gist við framandi aðstæður, þar sem farþegar sofa á ofnum rúmum í algjörri friðsæld náttúrunnar, þar sem sléttur sjóndeildarhringurinn er einstakur undir berum, stjörnubjörtum himni, þar sem engin ljósmengun ríkir.
Dagurinn verður tekinn snemma, áður en sólin rís og keyrt út á saltslétturnar, þar sem boðið verður upp á morgunverð við sólarupprás. Vatnsyfirborðið myndar fullkominn spegil, þar sem falleg spegilmynd himinsins er engri lík en þetta er einn vinsælasti staður ljósmyndara í Danakil.
Eftir morgunverð og fallega litadýrð morgunsólarinnar, verður farið á undravert hverasvæði, þar sem litadýrðin er einstök og landslagið einkennist af eldgígum og rjúkandi hverum. Gengið verður um svæðið og svörtu salttjarnir m.a. skoðaðar.
Eftir léttan göngutúr verður farangur sóttur og ekið aftur til baka til Tigray hálandanna. Á leiðinni verður tekinn hádegisverður í kyrrlátu umhverfi Danakil áður en svæðið verður kvatt og fagurgrænt landslag tekur aftur við á akstursleiðinni.
Um kvöldið á hópurinn flug til Addis Ababa.
Við komuna til Addis Ababa verður farið í menningarmiðstöð í hjarta borgarinnar, þar sem snæddur verður kvöldverður, innan um listaverk, þar sem samtímalist mætir aldagömlu listformi. Boðið verður upp á klassíska eþíópíska rétti með hefðbundnu hunangsvíni á meðan eþíópískur jazz verður leikinn undir orkumiklum þjóðdönsum undir stjórn heimsþekkts listamanns, Melaku Belay.
Eftir morgunverð hefst dagurinn á skólaheimsókn, þar sem farþegar fá að kynnast menntakerfi borgarinnar. Þaðan hendir hópurinn sér ofan í djúpu laugina, beint í skipulagða óreiðu Addis-markaðar, þekktan sem stærsta opna markað Afríku. Þar ægir öllu saman allt frá ilmandi kryddum yfir í snjallan endurunninn varning, þar sem skemmtileg sölumennska ræður ríkjum.
Í hádeginu verður farið á skemmtilegan veitingastað, þar sem gestir staðarins sitja á gólfinu eins og heimamönnum er einum lagið og snæða hefðbundna máltíð með risastóru fersku og heitu flatbrauði.
Eftir hádegismat verður hin heilaga Trinity dómkirkja heimsótt, en hún er í eintökum barokkstíl orthodox og þar eru grafreitir keisara og þeirra sem börðust með sögulegum sigri gegn Ítölum. Þá verður farið í moskuna Benin Nur Masjid, sem er táknræn fyrir friðsæla sambúð trúarbragða í Addis Ababa. Í framhaldinu verður farið á Þjóðarsafnið, sem er staðsett í fyrrum keisarahöll Haile Selassie í háskóla Addis Ababa, en það þykir eitt af betri söfnum Afríku, sem segir ómetanlega sögu menningar hinna ýmsu ættbálka landsins.
Í lok dags verður gefið tækifæri til að kaupa minjagripi, t.d. silfur, gamla peningamynt og sögulega handverksmuni. Þá verður einnig farið á markað þars hægt verður að kaupa handofinn textíl.
Kveðjumáltíðin verður svo tekin á ítölskum veitingastað áður en lagt verður af stað heim til Íslands.
Flogið er með Ethiopian Airlines frá alþjóðaflugvellinum í Addis Ababa rétt eftir miðnætti eða kl. 0:20 og er áætluð lending í Frankfurt kl. 5:45. Frá Frankfurt er flogið með Icelandair til Keflavíkurflugvallar kl. 13:05 og lending áætluð kl. 15:55.
Athugið að það er mikilvægt að verða sér úti um auka forfallatryggingu fyrir flugin.
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Flug:
Farangur:
Hótel/Gistihús/Tjaldsvæði:
Fæði:
Akstur
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Fyrirlestur
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
Önnur ráð verða gefin með hagnýtum upplýsingum þegar nær dregur ferð.
Athugið að þessi listi er ekki tæmandi aðeins til viðmiðunar.
















