Camiral Golf & Wellness er glæsilegt fimm stjörnu lúxushótel sem sameinar einstaka gistingu, framúrskarandi þjónustu og fyrsta flokks golfupplifun í fögru umhverfi Katalóníu á Spáni. Hótelið er staðsett á hinu rómaða Camiral-golfsvæði, skammt frá Girona og í þægilegri akstursfjarlægð frá Barcelona og ströndum Costa Brava.
Hótelið býður upp á nútímalega og glæsilega hönnun þar sem náttúruleg efni, hlýlegur lúxus og rólegt andrúmsloft skapa einstaka heildarupplifun. Herbergin eru vönduð í alla staði og henta jafnt þeim sem vilja slaka á eftir góðan golfhring sem þeim sem vilja njóta afslappandi frís í glæsilegu umhverfi.
Aðstaðan er til fyrirmyndar, með heilsulind, vellíðunaraðstöðu, sundlaugum og veitingastöðum þar sem áhersla er lögð á gæði og góða matargerð. Hér geta gestir notið þess að láta líða úr sér eftir daginn á golfvellinum, dekrað við sig í heilsulindinni eða átt notalegar stundir með góðum mat og drykk.
Þó hótelið sé umvafið glæsilegum golfvelli og friðsælli náttúru, þá er einnig stutt til hinnar sögufrægu borgar Katalóníu, Barcelona, þar sem einstök menning og saga ríkir ásamt fjölskrúðugu mannlífi með skemmtilegum verslunum og fjölbreyttum og góðum veitingastöðum.



























„Nökkvi Gunnarsson er einn af bestu golfkennurum í leiknum í dag. Tileinkaðu þér það sem hann hefur fram að færa og leikur þinn mun taka stakkaskiptum til hins betra.“
Chris O´Connell, á lista Golf Magazine yfir 100 bestu golfkennara í Ameríku 2013-2017.
„Bókin er skrifuð af frábærum kylfingi sem er orðinn einn af fremstu golfkennurum heims. Trúðu hverju orði Nökkva því það mun gera þig að betri kylfingi.“
Jim Hardy, kennari ársins í Ameríku 2007. Höfundur metsölubókarinnar Plane Truth for Golfers. Númer 9 á lista Golf Digest yfir fremstu golfkennara Ameríku 2017-2018.
Magnús Máni Kjærnested
PGA golfkennari og yfirgolfkennari Nesklúbbsins. Magnús Máni útskrifaðist sem PGA golfkennari nú í vor og er fyrrum klúbbmeistari Nesklúbbsins. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Maggi mikla reynslu sem golfkennari og byrjaði aðeins 14 ára gamall að þjálfa hjá Nesklúbbnum þar sem hann hefur starfað síðastliðin 8 ár.