Langar þig til að upplifa stórkostlega menningu og fegurð Mongólíu með Rún og Trausta? Sendu okkur þá línu á [email protected]
Sannkölluð ævintýraferð á framandi slóðir Mongólíu. Farið verður á slóðir þar sem náttúran gerist vart fallegri í öllum heiminum og heimsækjum við einstaka bæi og þorp og kynnumst framandi menningu þeirra. Ótrúlegar söguslóðir og villt dýralíf verður líka stór hluti af upplifuninni í þessari stórmögnuðu ferð, þar sem engu verður til sparað. Hér er einfaldlega á ferðinni draumaferð sem ekkert ævintýrafólk ætti að missa af, þar sem góður félagsskapur, náttúra, menning, saga, matur og drykkir leika stórt hlutverk.
Tíu þúsund fet kynna meiriháttar ævintýraferð um Mongólíu þar sem hver sögu- og náttúruperlan rekur hver aðra. Dvalið er á huggulegum hótelum, þar sem vel fer um farþega.
Þetta magnaða ferðalag byrjar í höfuðborg Mongólíu í 1.300 metra hæð yfir sjávarmáli, borg sem var stofnuð af búddískum hirðingja árið 1639, síðan tekur hvert ævintýrið við af öðru þar sem keyrt verður á mótorhjólum um eyðimerkursléttur Mongólíu þar sem einstök villt náttúran er allt um vefjandi, eyðimerkursandar, vatnsuppsprettur, fjöll, gljúfur og ár, framandi gróður og villt dýr. Hirðingjafjölskyldur heimsóttar, fylgst með villtum hestum og dádýrum í sólarlaginu og áhugaverðir þjóðgarðar heimsóttir þar sem hundruð plöntu- og fuglategunda er að finna ásamt tugi tegunda spendýra, flétta, mosa og sveppa.
Þetta er einfaldlega heimshluti sem er stórkostlegt að heimsækja!
Sannkölluð póstkortaferð!
Mongólía
Mongólía er í Miðaustur-Asíu með landamæri að Rússlandi í norðri og Kína í suðri, austri og vestri.
Í landinu er löng hefð fyrir hirðingjalífi, þar sem meira en fjórðungur landsmanna eru hirðingar, sem eiga sér ekki fasta búsetu, heldur færa sig á milli landssvæða og dvelja í tjöldum. Þeir stunda mikið hrossarækt en hestar eru nánast jafnmargir og mannfólkið í Mongólíu. Ríkjandi trúarbrögð í landinu er Búddismi en annar stærsti hópurinn í landinu er trúlaus. Islam eru síðan önnur stærstu trúarbrögðin í Mongólíu.
Mongólskir hirðingjar eru þekktir fyrir einstaka menningararfleifð sína, m.a. fyrir sérstakan ,,hálsasöng” en einnig fyrir þjóðlega tónlist, dans og aðrar listir. Þá er landið frægt fyrir þjóðarglímuna, bogfimi og kappreiðar.
Mongólía á sér langa sögu en landið var gert að stórveldi á þrettándu öld, þegar Djengis Khan sameinaði allar hirðingjaþjóðirnar og kom upp ósigrandi herjum. En þegar Mongólía var hvað stærst, náði landið m.a. yfir Kína og frá Víetnam að Ungverjalandi. Seinna tóku Rússland og Kína yfir landið en Mongólía hlaut sjálfstæði frá þeim árið 1921.
Landslagið í Mongólíu einkennist af gresjum, með Góbíeyðimörkina í suðri og fjöll í norðri. Í landinu er stundaður landbúnaður en þar eru einnig námur þar sem finna má kopar, kol og gull.
Í náttúru landsins má finna fjölbreytt villt dýralíf eins og snæhlébarða, villta hesta og mongólsk kameldýr og hafa stjórnvöld gert mörg landsvæði að þjóðgörðum til verndunar á þessum dýrategundum.
Matarmenningin einkennist af lífi hirðingja og hrjóstrugri náttúru. Soðbrauð fyllt með kjöti bragðbættu með lauk og hvítlauk er t.d. vinsæll hátíðarmatur. Þá eru alls kyns núðluréttir og súpur algengar á borðum á köldum dögum og ýmiskonar kjötréttir sem eru eldaðir á sérstakan hátt á heitum steinum sem hafa verið staðsettir inni í líkama dýrsins sem var fórnað fyrir máltíðina. Þá er þjóðardrykkur þeirra án efa hið bragðgóða ,,saltmjólkurte”.
Nokkrar staðreyndir um Mongólíu
Dagskrá ferðinnar er í smíðum og verður birt hér innan tíðar. Við lofum ykkur því að hún verður full af upplifunum og ævintýrum að hætti Rúnar og Trausta þar sem fróðleikur, náttúrufegurð, menning, byggingalist, matur, drykkir og almenn skemmtilegheit verða í fyrirrúmi.
Gist er í tjaldbúðum, gistiheimilum og á hótelum. Á gistiheimilum og hótelum er gist í tvíbýli, nema þess sé óskað sérstaklega að vera í einbýli.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í þessari ferð er mikilvægt að fólk sé heilsuhraust, bæði líkamlega og andlega og sé tilbúið að gista stundum í framandi umhverfi og aðstæðum. Salerni eru víða ekki eins og við eigum að venjast og því gott að vera búin undir hvað sem er. Dagskrá getur breyst eða tafist og því mikilvægt að ferðafélagar séu tilbúnir að sýna hver öðrum skilning og takast á við óvænta hluti með jafnaðargeði.
Í hringferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðirnar. Rún og Trausti hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld.
Rún og Trausti munu sjá til þess að farþegar upplifi og njóti sín til fulls í þessari draumaferð, þar sem fræðsla og umfram allt skemmtileg upplifun verður í fyrirrúmi.
Flug
Farangur
Hótel
Fæði – Drykkir
Akstur
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ
https://www.fib.is/is/ferdalog/althjodlegt-okuskirteini
https://www.vinnuvernd.is/bolusetningar-ferdalog og
Athugið að listinn er ekki tæmandi og aðeins til viðmiðunar.








