Ferðin með Illuga var svo vinsæl að við settum upp aukaferð og ferðuðumst vítt og breitt um fornar slóðir Ítalíu og Vatíkansins; Vatíkanið, Róm, Gandolfo, Napólí, Gragnano, Pomeii, Sorrento, Ischia, Capri, Positano, Amalfi og Salerno, allt saman staðir sem skilja eftir góðar minningar með ykkur. Við vorum líka svo heppin að fá Illuga Jökulsson með okkur í lið, en hann sá um að fræða mannskapinn af sinni einskæru snilld og segja sögur frá hinu ótrúlega blómatíma Rómaveldis en í þeim efnum er ekki komið að tómum kofanum, þvílíkur viskubrunnur! Tíu þúsund þakkir kæru farþegar fyrir að velja ferðina okkar Sagan öll með Illuga Jökuls og fyrir einstaklega skemmtilega samveru síðustu tvær vikurnar!
Ekki missa af næstu ferðum með Illuga!
Þetta hafði fólkið okkar að segja eftir ferðina:
,,Hjartans þakkir fyrir frábæra ferð. Við fengum að sjá svo marga stórkostlega staði og fræðast um fólk og atburði löngu liðanna tíma. Ógleymanlegt ferðalag. Takk Rún, Trausti og Illugi.Við Styrmir mælum svo sannarlega með Tíu þúsund fetum.“
Helga María Jónsdóttir, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu 2025
,,Takk fyrir frábæra ferð! Mæli svo sannarlega með 10.000 ferðum – allt skipulag, þjónusta og upplifun til fyrirmyndar. Sérstakar þakkir fyrir að halda svona vel um hópinn – algjörlega ógleymanleg ferð.“
Kolbrún Vídalín, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu 2025
