Í maí kvöddum við frábæran hóp, sem kom með okkur í ævintýraferð til Japans, þar sem við ferðuðumst vítt og breitt um landið og nutum þess að upplifa allt það besta, sem Japan hefur upp á að bjóða. Tíu þúsund þakkir fyrir yndislega samveru, kæru ferðafélagar og fyrir að velja að ferðast með Tíu þúsund fetum! Sjáumst vonandi fyrr en seinna í annarri ferð með okkur.
Ævintýrið í Japan byrjaði í Osaka, hjarta japanskrar menningar, þar sem farið var á sögulegar slóðir í einstakri náttúru, sem einkennist af gróðursælu fjalllendi, gljúfrum, ám, fossum og vötnum, þar sem finna má helgidóma og musteri sem hafa verið sett á heimsminjaskrá UNESCO. Þar fengum við einnig að sjá hinar einstöku geishur og auðvitað verður kíkt á dæmigert japanskt tehús. Þá fórum í gegnum hin ótrúlega mögnuðu rauðu hlið Fushimi Inari.
Við heilsuðum upp á snæapa og þræddum þorp sem hafa að geyma fornar hefðir, sögu og menningu ásamt því að virða fyrir okkur einstaka byggingagerðalist.
Þá lögðum við mikla áherslu á að kynna ljúffenga matargerð Japana, en þeir eru þekktir fyrir ferskleika og mat í heimsklassa, enda geta þeir státað sig af því að eiga stærsta fiskmarkað heims.
Ferðalagið hélt síðan áfram til Hiroshima, þar við heimsóttum friðar- og minningargarð Hiroshima, þar sem hinir skelfilegu atburðir áttu sér stað 6. ágúst árið 1945, þegar kjarnorkusprengju var varpað á borgina. Þá bárum við augum hið fljótandi hlið Itsukushima-hofsins hinnar fögru Miyajima-eyjar og í framhaldi af því kynntumst við því hvernig er að sitja í hátækni hraðlest.
Við skoðuðum stóra kastala, kynntumst ræktun á Wasabi og fórum á framúrstefnulegt tæknisafn svo fátt eitt sé nefnt, áður en ferðalaginu lauk síðan í höfuðborginni, Tókýó, stærstu borgar heims. Þar fórum við í áhugaverða og skemmtilega göngutúra á alla markverðustu staði borgarinnar m.a. farið upp í Tókýó-turninn, þaðan sem magnað útsýni gefst yfir borgina.
Sannkölluð póstkortaferð, sem skilur eftir ógleymanlegar minningar!
Þetta hafði fólkið okkar að segja eftir ferðina:
,,Bestu þakkir fyrir alveg frábæra ferð með dásamlegum farastjórum. Draumaferð mín stóðst allar mína væntingar. Tíuþúsund þakkir.“
Sigríður Jóhannsdóttir, Japan 2026
,,Við fórum í frábæra ferð með 10000 fetum til Japans. Þar var allt var upp á tíu, fararstjórnin framúrskarandi og upplifunin ótrúleg. Þessi ferð verður lengi í minnum höfð. Við mælum heilshugar með þessari ferð og þeirri fararstjórn sem gerði hana svona vel heppnaða.“
Bjarni og Hrönn, Japan 2026
,,Ferðin til Japans var algjörlega ógleymanleg. Við skoðuðum tignarleg hof, hallir og helgidóma. Upplifðum hvernig ævafornar hefðir fléttast saman við nútímasamfélag þar sem agi og gagnkvæm virðing ráða ríkjum. Það var heillandi að kynnast nýjum menningarheimi, allt frá framandi matargerð til einstakra siða. Skipulag ferðarinnar var til fyrirmyndar og fararstjórarnir stóðu sig frábærlega.“
Áslaug og Geir, Japan 2026
