Tíu þúsund fet buðu upp á glæsilega hringferð um Marokkó, með áherslu á hinar keisaralegu borgir. Fjölskrúðugt mannlíf, meiriháttar matargerð, óþrjótandi afþreyingarmöguleikar og vönduð íslensk fararstjórn.
Ógleymanlegt ævintýri þar sem farþegar fengu tækifæri til þess að upplifa framandi og sólríkar slóðir saman!
Þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar héldu utan um hópinn og fræða um land, menningu, siði og þjóð. Stútfull dagskrá af fræðslu og fjöri undir vandaðri íslenskri leiðsögn tveggja reynslumikilla fararstjóra.
Marokkó er einkar heillandi land í Norður-Afríku aðeins spölkorn frá landamærum Spánar handan Gíbraltarsunds, með landamæri að Sahara eyðimörkinni í suðri og Alsír í austri. Það má í raun segja að Marokkó standi á krossgötum austurs og vesturs, Afríku og Evrópu, og Miðjarðar- og Atlantshafsins. Landið telur rúmlega 446 þúsund ferkílómetra og þar búa tæplega 32 milljónir manna en land og þjóð hafa mótast af ýmsum samskiptum Berba, Araba, Afríkubúa, Gyðinga og Evrópubúa.
Landið er þekkt fyrir fjölbreytta náttúru og fallegt landslag, ríka menningararfleifð og sögu og heillandi borgir með skemmtilegu mannlífi sem litast af litríkum mörkuðum og matargerðarlist.
