Það var hvílík ánægja að ferðast og starfa með Illuga Jökulssyni, rithöfundinum skemmtilega, á ferðalagi um S-Ítalíu. Frábærar sögur, fullt af nauðsynlegum og ónauðsynlegum fróðleik og allskonar skemmtilegheit um Ítali og uppruna þeirra. Hvort sem það er um sögu lands og þjóðar, Rómverja, Grikki, jarðfræði, Etrúra, pastagerð, undarlega kynhegðun ýmissa rómverskra keisara, Vandala, byggingalist, steinsteypugerð Rómverja, Normanna, Sírennur, ýmsar þjóðsögur og ævintýri og almennt svívirðilega framkomu keisaranna þá kemur maður hvergi að tómum kofanum hjá honum.

Í dag kveðjum við yndislega farþega Tíu þúsund feta, sem hafa ferðast með okkur vítt og breitt um fornar slóðir Ítalíu og Vatíkansins; Vatíkanið, Róm, Gandolfo, Napólí, Gragnano, Pomeii, Sorrento, Ischia, Capri, Positano, Amalfi og Salerno, allt saman staðir sem skilja eftir góðar minningar með ykkur. Við vorum líka svo heppin að fá Illugi Jökulsson (þf.) með okkur í lið, en hann sá um að fræða mannskapinn af sinni einskæru snilld og segja sögur frá hinu ótrúlega blómatíma Rómaveldis en í þeim efnum er ekki komið að tómum kofanum, þvílíkur viskubrunnur! Tíu þúsund þakkir kæru farþegar fyrir að velja ferðina okkar Sagan öll með Illuga Jökuls og fyrir einstaklega skemmtilega samveru síðustu tvær vikurnar!
