Frábær menningarveisla í Liverpoool fyrir alla tónlistarunnendur og aðdáendur Bítlanna þar sem hinn eini sanni Bítlavinur, Eyjólfur Kristjánsson, heldur utan um hópinn. Hann mun meðal annars halda einkatónleika með áherslu á sögur og tónlist hljómsveitarinnar.
Gist verður á flottu 4* hóteli í miðbænum, nærri hinu víðfræga „Kínahverfi“ borgarinnar.
Þetta er sannkölluð skemmtiferð með Eyfa í Bítlaborginni sjálfri og það er aldrei að vita nema enski boltinn komi eitthvað við sögu.
Hér er á ferðinni fjörug og fróðleg tónlistarveisla í Liverpool með áherslu á sögu og tónlist Bítlanna. Til að veita fróðleikinn er enginn betri til þess en sjálfur Bítlavinurinn Eyjólfur Kristjáns sem heldur utan um hópinn og slær upp einkatónleikum í Cavern Lounge. Þar mun saga og tónlist Bítlanna ráða ríkjum.
Bítlarnir eiga sviðið því gönguferðir, rútuferð og safnaheimsókn veita okkur ómetanlega innsýn í æsku, uppeldi og tónlist meðlima hljómsveitarinnar. Við heimsækjum meðal annars æskuheimili Lennons og McCartneys, stöndum á Penny Lane og kíkjum í garða munaðarleysingjaheimilisins Strawberry Fields.
Að sjálfsögðu heimsækjum við líka Cavern Club og rúsínan í pylsuendanum verður þegar við sláum upp sameiginlegri veislu með tilheyrandi kvöldverði og einkatónleikum Eyfa.
Fyrir þá sem hafa gaman af enska boltanum þá ætlar Eyfi líka að taka hópinn á ekta boltakrá í Liverpool. Fyrir áhugasama verður líka möguleiki að heimsækja Anfield, heimavöll Liverpool knattspyrnuliðsins.
Liverpool er lifandi borg með ríka sögu en hún er líklega þekktust fyrir tónlistina og fótboltann, þar sem hún er fæðingarborg meðlima Bítlanna og með eitt sterkasta fótboltalið enska fótboltans, Liverpool FC.
Liverpool var stofnuð árið 1207 og er hafnarborg staðsett við Mersey-fljótið skammt frá Írlandshafi í Norðvestur-Englandi. Hún er fimmta stærsta borg Englands, þar sem tæplega 500 þúsund manns búa og er marga sögulega staði að finna í miðborg hennar, sem hafa verið settir á heimsminjaskrá UNESCO.
Í borginni er að finna fjölbreytt úrval menningarviðburða sem meðal annars er hægt að sækja á hinum ýmsu listasöfnum og leikhúsum sem þar er að finna. Þá er árlega haldin stór og mikil tónlistarhátíð í borginni, þar sem bæði innlendar og erlendar hljómsveitir troða upp á fimm sviðum í og við Mathew Street, götuna þar sem Cavern Club er að finna en klúbburinn er frægur fyrir Bítlana, þar sem þeir spiluðu lögin sín fyrst. Við Mathew Street er einnig að finna fjölda tónlistarklúbba og bara.
Fyrir aðdáendur Bítlanna er ferð til Liverpool eins og Pílagrímsferð en þar er meðal annars hægt að fara á æskuheimili Lennons og McCartneys og á Penny Lane götuna úr samnefndu lagi eftir Paul McCartney og að Strawberry Field, sem er munaðarleysingjahæli handan við horn heimilis Lennons en þegar hann var krakki lék hann sér oft á lóð þess.
Liverpool er stórborg knattspyrnunnar í Englandi, þar sem er að finna tvö aðallið, Liverpool F.C. og Everton F.C. Liverpool hefur unnið ensku deildina nítján sinnum og hefur unnið flesta bikara af enskum fótboltafélögum á evrópskum mótum, þar á meðal sex sinnum Evrópukeppni meistaraliða. Heimavöllur Liverpool F.C. var reistur árið 1884 og var hann í upphafi sem heimavöllur Everton eða til ársins 1892 þegar Liverpool var stofnað. Völlurinn tekur 54 þúsund áhorfendur og er hann einstaklega skemmtilegur heim að sækja.
Everton var stofnað 1878 og þar með elsta knattspyrnulið Englands og hefur liðið spilað lengst allra enskra félaga í efstu deildinni. Liðið hefur níu sinnum orðið enskur meistari.
Hnefaleikar eru líka vinsælir í Liverpool en yfir tuttugu áhugamannafélög er að finna í borginni og hafa margir boxarar frá Liverpool hlotið verðlaun á Ólympíuleikum.
Kappreiðar eru líka vinsæl iðja í Liverpool en þar er að finna eina þekktustu veðreiðabraut Englands, Aintree, þar sem knapar víðsvegar að úr heiminum taka þátt í hinni árlegu keppni John Smith´s Grand National.
Í Liverpool er að finna úrval góðra kaffihúsa, veitingastaða og matarmarkaða, þar sem hægt er að finna mat við allra hæfi, allt frá dæmigerðum breskum mat upp í fjölbreytta alþjóðlega matargerð.
Sögurfrægir staðir
Fyrir utan Bítlasafnið og knattspyrnuleikvang Liverpool þá er þar að finna fjölda sögufrægra staða, sem gaman er að skoða. Albert Dock pakkhúsið er eitt þeirra en það var tekið í notkun árið 1846 og er nú á heimsminjaskrá UNESCO og vinsælt fyrir fjölbreytt söfn eins og sjóminja-, þræla- og Bítlasafnið en þar er líka fjöldi verslana og veitingastaða. Þess má geta að höfnin í Liverpool var einu sinni afkastamesta hafnarsvæði heims.
Þá er einstaklega gaman að koma í elstu byggingu miðborgarinnar, ráðhúsið, sem hefur verið friðað. Dómkirkjuna verða líka allir að skoða en hún er 189 metra löng og er þar með næstlengsta kirkjubygging heims. Hún er einnig langstærsta kirkja Bretlands að flatarmáli með 100 metra háum turni.
Royal Liver byggingin er líka gaman að skoða, einkum sökum stærðar sinnar. Hún var reist árið 1911 og var hæsta hús heims til ársins 1934 en hún er 90 metra há. Á toppi hússins eru einkennisflugar borgarinnar, Liver Birds, sem sagt er að fljúgi burt þegar borgin hættir að vera til.
Eitt elsta hús borgarinnar er svo Speke Hall, sem er gamall herragarður frá árinu 1530 og útvarpsturninn í Liverpool fer síðan ekki framhjá neinum í 138 metra hæð en hann var opnaður af Elísabetu II Bretadrottningu.
Föstudagurinn 18. október – Ferðadagur – Flug frá Keflavíkurflugvelli og akstur á hótel.
Laugardagurinn 19. október
Sunnudagurinn 20. október
Mánudagurinn 21. október – Ferðadagur. Akstur á flugvöll og flogið til Íslands.
Hefur þú gaman af Bítlunum? Hefur þig dreymt um að koma í Cavern Club, standa á Penny Lane, koma á æskuheimili Bítlanna og sjá garðana við Strawberry Fields? Finnst þér gaman í skemmtilegum félagsskap í víðfrægri stórborg? Þá er þetta rétta ferðin fyrir þig.
Gist verður á glæsilegu 4* hóteli í miðborginni, The Resident Liverpool, sem finna má í gamalli iðnaðarbyggingu nærri Cavern District og „Kínahverfinu“.
Öll herbergi hótelsins eru snyrtileg og rúmgóð með öllu því sem til þarf til að njóta verunnar. Þráðlaust net, loftkæling og eldhúskrók má finna í þeim öllum en innréttingarnar eru nútímalegar, huggulegar og bjartar.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn.
Í nágrenni hótelsins má finna úrval kráa og veitingastaða en elsta „Kínahverfi“ heims er í stuttri göngufjarlægð. Innan örfárra mínútna má ganga í Liverpool ONE hverfið, Albert Docks hafnarhverfið, Cavern tónlistarhverfið og á The Tate Gallery.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í ferðum Tíu þúsund feta fara ávallt íslenskumælandi fararstjórar með í ferðirnar. Í þessari ferð verður fararstjórinn enginn annar en Eyjólfur Kristjánsson, stofnandi hljómsveitarinnar Bítlavinafélagsins á sínum tíma.
Eyjólfur, oftast kallaður Eyfi, er söngvari, lagasmiður, gítarleikari og skemmtikraftur. Hann er m.a. þekktur fyrir lög eins og Gleðileg jól allir saman, Drauminn um Nínu og Álfheiði Björk.
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Dagskrárliðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ