Þessi dásamlega ferð til Perú og Bólivíu er væntanleg. Ef þú hefur áhuga á ferðinni sendu okkur þá línu: [email protected]
Ólýsanleg ævintýraferð þar sem ferðast er aftur í tímann til hins forna Inka-ríkis í Machu Picchu og fyrrum höfuðborgar Perú, Cusco. Þá verða hinar sögufrægu borgir, Sucre og La Paz, í Bólivíu heimsóttar ásamt því að ferðast um fögur fjallahéruð landanna tveggja, þar sem komið verður við á mögnuðum svæðum eins og Uyuni saltsléttunum og eyjum Titicaca vatnasvæðisins.
Góðir gistimöguleikar og fullt innifalið undir handleiðslu National Geographic.
Mögnuð ferð undir merkjum National Geographic þar sem sérfræðingur á þeirra vegum fylgir okkur um þessar stórkostlegu slóðir Perú og Bólivíu m.a. um Cusco fyrrum höfuðborg Inkanna. Þá förum við í ótrúlega lestarferð um Andes-fjöllin og upplifum hina týndu borg, Machu Picchu.
Við heimsækjum líka Isla del Sol, eyjuna á Titicaca-vatninu sem talin er hafa verið fæðingarstaður sólguðs Inkanna. Þá ferðumst við yfir hinar mögnuðu salstléttur Bólivíu, sem eru þær stærstu og víðfeðmustu í veröldinni.
Sérfræðingar National Geographic þekkja svæðið eins og lófann sinn og tryggja að ferðalagið verði sem þægilegast og ánægjulegast. Þeir hafa góða þekkingu á löndunum, menningu og sögufrægum stöðum þeirra ásamt því að á velvöldum augnablikum fáum við staðarleiðsögumenn til að auka enn frekar á upplifunina.
Perú er staðsett í vestanverði S-Ameríku og er landið þekkt fyrir ríka sögu, fjölbreytt landslag, líflega menningu og dásamlega matargerð. Til að átta sig á fjölbreytileika landsins þá má innan landmæra þess finna Andes-fjöllin, Amazon-regnskógana, Kyrrahafsstrandlengju og hásléttur Altiplano. Að ógleymdum demöntum á borð við týndu borgina Machu Picchu, Heilaga dalinn og Titicaca-vatnið.
Menning Perú hefur orðið fyrir áhrifum víða að, til að mynda spænskum, afrískum og asískum áhrifum. Þrátt fyrir það hefur heimafólk náð að halda þétt í tungumál sitt, hefðir og klæðaburð. Til að tryggja það sem best eru innlendar hátíðir algengar þar sem dans, tónlist og búningar skipa ríkan sess. Sögu landsins er hægt að rekja langt aftur í tímann en menningarsamfélag Inkanna er án efa merkasta tímabil Perú, háþróað samfélag af mikilli stærðargráðu þess tíma.
Perú er afar vinsæll áfangastaður ferðafólks sem kemur þangað til að virða fyrir sér hinar merku minjar Inkanna og stórfenglegt landslagið. Þá njóta ferðamenn eldamennskunnar hjá heimafólki en það er líka þekkt fyrir fallegt handverk og vefnað.
Bólivía býður bæði upp á fjölbreytileika í landslagi og töfrandi menningu. Hið eina sem landið skortir er að hafa hvergi landamæri við sjó en innan þeirra má finna hin stórfenglegu Andes-fjöll, Amazon-skóga, Titicaca-vatnið og Uyuni-saltslétturnar. Í landinu eru nokkrir innlendir ættbálkar sem allir tala ólíka tungu, s.s. Quechua, Aymara og Guarani. Þá má finna mikinn fjölbreytileika í dýralífi, meðal annars jagúar, lamadýr og condorar.
Landið fékk ekki sjálfstæði sitt fyrr en snemma á 19. öldinni, eftir hetjulega baráttu Símón Bolívar.
Bólivía er í raun allt í senn, blanda menningar, náttúru, sögu og matargerðar.
Cusco
Fyrrum höfuðborg Inkanna, Cusco, er staðsett í Suðaustur-Perú. Borgin er þekkt fyrir vel varðveittar minjar frá tímum Inka, þegar borgin bar heitið Tawantinsuyu, og arkitektúr spænsku landvinningarmannanna sem tóku landið yfir. Mannlífið í borginni þykir líflegt og þar býðst úrval afþreyingar, s.s. fallegar gönguleiðir, reiðtúrar og fjallahjólaferðir.
Mikilvægi Cusco var mikið en talað hefur verið um hana sem miðpunkt Inka-samfélagsins. Minjarnar eru svo margar í borginni að miðbærinn hefur í heild sinni verið færður undir heimsminjavernd UNESCO. Glæsibyggingar, kirkjur og torg eru hreinlega út um allt í Cusco. Þá er borgin stundum kölluð „hliðið að Machu Picchu“ en hingað koma ferðamenn gjarnan til að venja sig við þunna loftið áður en haldið er upp í týndu borgina.
Lima
Lima er höfuðborg Perú og er hefðubundin stórborg að hætti S-Ameríku með iðandi mannlífi og fallegum byggingum, listasöfnum og þjóðlegum sýningarsölum. Oft er talað um hana sem matarhöfuðborg álfunnar þar sem finna má úrval perúskra veitingastaða og opna matarmarkaði.
Miðbærinn í Lima hefur einnig verið færður í heild sinni inn á heimsminjaskrá UNESCO þar sem finna má glæsibyggingar spænskra landvinningamanna, kirkjur og falleg torg. Þá er borgin þekkt fyrir blómlegt næturlíf með lifandi tónlistarviðburðum, börum og næturklúbbum. Miraflores og Barranco hverfin eru einna þekktust þar sem auðvelt er að ferðast um fótgangandi eða hjólandi.
La Paz
La Paz er höfuðborg Bólivíu og er þriðja stærsta borg landsins. Hún er víðfræg fyrir ótrúlega staðsetningu sína í kringlulaga dal umkringdum fallegum fjöllum en La Paz er staðsett í 3.650 m hæð yfir sjávarmáli. Það gerir borgina að einni hæstu höfuðborg heims yfir sjávarmáli.
Í borginni má finna áhugaverða blöndu af þjóðlegri og nútímalegri menningu. Nornamarkaðurinn (Mercado de las Brujas, San Francisco kirkjan, Murillo-torgið og Tungldalurinn eru meðal lykilstaða til að heimsækja í La Paz. Hingað er algengt að ferðamenn komi, einkum þeir sem eru á leið til Titicaca-vatnins og salstléttanna í Uyuni.
Uyuni
Bærinn Uyuni er staðsettur í suðvesturhluta Bólívíu, nærri hinum frægu saltsléttum sem eru þær stærstu og víðfeðmustu í veröldinni. Slétturnar eru eitt risastór náttúruundur sem spanna yfir 10 þúsund ferkílómetra svæði og eru þær fjölsóttasti ferðamannastaður landsins.
Bærinn er gjarnan notaður sem bækistöð þeirra sem heimsækja saltslétturnar. Í nágrenni Uyuni má einnig finna litrík svæði stöðuvatna, lestakirkjugarðinn og heita hveri og læki ásamt einstöku klettalandslagi. Úti á sléttunum mynda þær ótrúleg spegiláhrif sem ljósmyndarar hafa ánægju og gaman af því að leika sér með.
Ferðadagur
Flogið frá Íslandi til Lima, höfuðborgar Perú. Kynningarfundur á hótelinu að kvöldlagi, þar sem við hittum hópstjórann okkar.
Lima/Urubamba
Flogið snemma dags til Cusco, höfuðborgar Inkanna til forna. Þaðan keyrum við til Urubamba og á þeirri leið ökum við í gegnum hinn fagra „Heilaga dal“ og skoðum hin ótrúlegu saltþrep í Maras, sem eiga sér sögu aftur fyrir tíma Inkanna, og förum á Inka-slóðirnar í Moray þar sem talið er að Inkarnir hafi verið með starfandi rannsóknarsetur. Síðar er okkur boðið upp á málsverð sem verður útbúinn í Pachamanca, gröfnum steinofni.
Urubamba
Við höldum áfram að kanna hinn Heilaga dal og förum meðal annars í Kartöflugarðinn, Parque de la Papa, þar sem keppst er við að varðveita hundruð mismunandi tegundir af innlendum kartöflum. Þá heimsækjum við Inka-minjarnar í Ollantaytambo og Pisac áður en við njótum málsverðar á hefðbundnum veitingastað í Huchuy Qosqo.
Urubamba/Aguas Caliente
Snemma dags tökum við lestina til Aguas Calientes nágrannaborgar Machu Picchu. Skráum okkur inn á hótelið og eigum rólegan dag en í boðir eru margir spennandi valfrjálsir dagskrárliðir.
Aguas calientes/Cusco
Dagurinn fer fram í ,,Týndu borginni“, Machu Picchu, 15. aldar Inka-borginni. Magnaður dagur á þessum ógleymanlega stað sem er á heimsminjavernd UNESCO. Haldið aftur til Cusco með lest.
Cusco
Frjáls dagur í Cusco. Að kvöldlagi heimsækjum við stjörnufræðisafnið í borginni og virðum fyrir okkur himingeiminn gegnum stjörnukíki. Tilvalið að nýta daginn til gönguferða.
Cusco/Lima
Flogið aftur til Lima og frjáls dagur í höfuðborginni.
Lima/Copacabana
Fljúgum til Juliaca og ferðumst yfir landamærin til Bólivíu nærri Copacobana, við strendur Titicaca vatnsins. Á leiðinni stoppum við í Luquina Chico samfélaginu þar sem óviðjafnanlegt útsýni er að finna yfir vatnið og eyjarnar. Þá erum okkur boðið í málsverð á heimili heimafólks í sveitinni ásamt því að kynnast menningu þeirra og tungumáli. Þessu næst tökum við léttan göngutúr í Copacabana með hópstjóra.
Copacabana/La Paz
Siglum yfir í eyjuna Isla del Sol. Þar finnum við Inka-rústir, kynnumst vefsnilli eyjaskeggja og tökum inn hið magnaða útsýni yfir Titicaca-vatnið. Siglum síðan tilbaka og höldum áleiðis til La Paz höfuðborgarinnar.
La Paz/Sucre
Fljúgum yfir til Sucre og röltum þar um miðbæinn. Síðdegis er frjáls tími.
Potosi countryside
Frjáls tími að morgni áður en við höldum í sveitasæluna og kyrrðina umhverfis Potosi. Þar hittum við fyrir bændur og búalið í hlíðum Bólivíu og fáum að kynnast daglegu lífi heimafólks ásamt því að rétta því hjálparhönd við bústörfin. Hér stígum við aftur í tímann og endum á því að njóta kvöldverðar beint frá býli.
Potosi/Uyuni
Keyrum inn í kjarna Potosi og fáum leiðsögn um Casa Nacional de la Moneda, gömlu silfurslátturnar og förum inn á þjóðminjasafn. Við förum einnig í útsýnistúr um Uyuni, borgina sem stendur rétt hjá hinum mögnuðu saltsléttum og fáum að kynnast þessu ólýsanlega landslagi sléttanna, víðfeðmustu saltslétta heims.
Uyuni
Ferðumst lengra inn á saltsléttuna og upplifum undur þeirra. Á leiðinni heimsækjum við Coquesa samfélagið, sem staðsett er við Tunupa-eldgíginn við enda sléttunnar. Þá njótum við hádegisverðar á Incahuasi-eyjunni áður en við höldum áfram ferðalaginu um sléttuna. Rúsínan í pylsuendanum er svo kvöldsnakk í sólsetrinu áður en við höldum aftur á hótelið.
Uyuni/La Paz
Fljúgum aftur til La Paz og boðið upp á frjálsan tíma fram að valfrjálsum sameiginlegum kvöldverði í miðborginni.
La Paz
Frjáls dagur í La Paz. Fjölmargt að upplifa í borginni í iðandi mannlífnu. Síðdegis förum við í ferð með kláfi til að upplifa borgina úr háloftunum. Um kvöldið býðst okkur matarveisla á ekta veitingastað heimamanna.
Ferðadagur
Brottför til Íslands
Í ferðinni er mikilvægt að vera heilsuhraustur og vera reiðubúinn til að takast á við líkamlega hreyfingu, göngu, hjólatúr og kayak-róður. Áfangastaðir eru í mikilli hæð og því hætta á háfjallaveiki.
Gist verður á eftirfarandi stöðum eða sambærilegum.
Hotel Antigua Miraflores í Lima.
Hótel Mabey Urubamba í Urubamba.
Hotel Taypikala Machupicchu í Aguas Calientes.
Taypikala Hotel Cusco í Cusco.
Hotel Rosario Lago Titicaca í Copacabana.
Attix Boutique Hotel í La Paz.
Hotel Parador Santa Maria í Sucre.
Hotel Museo Cayara í Potosi.
Luna Salada Hotel í Uyuni.
Í þessari ævintýralegu sérferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðina, þau Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson. Þau hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld m.a. á framandi slóðir Perú og Bólivíu.
Flug:
Farangur:
Sigling:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ