Ógleymanlegt ævintýri á Grænlandi fyrir náttúruunnendur og þá sem hafa gaman af að kynnast framandi menningu og sögu. Grænland er þekkt fyrir óviðjafnanlega villta náttúru, þar sem háir ísjakar, fallegir firðir, jöklar, íshellar og stórbrotið landslag setur svip sinn á umhverfið ásamt merkilegri sögu heimamanna sem hafa m.a. stundað sel-, hval- og fiskveiðar í gegnum aldirnar og ferðast um á hundasleðum.
Eyjan býður upp á óþrjótandi afþreyingu, sem er að mörgu leyti ólík því sem við eigum að kynnast á hefðbundnum ferðalögum um heiminn og í þessari einstöku ferð með Tíu þúsund fetum verður m.a. boðið upp á siglingu innan um magnaða ísjaka, farið í jöklaferð og heimsókn í 40 m djúpan íshelli. Þá verður farið í einstaka veiðiferð, þar sem aflinn verður verkaður, eldaður og borðaður í óviðjafnanlegu landslagi. Í ferðinni verður einnig boðið upp á tvær heilsdags siglingar þar sem maður og náttúra renna saman í eina heild í stórkostlegu landslagi, þar sem ísjakar og skriðjöklar láta í sér heyra og gömul þorp heimsótt.
Þá verður farið í áhugaverðar gönguferðir, annars vegar um bæinn Kulusuk með viðkomu á sögusafni þeirra heimamanna en einnig verður farin falleg gönguleið í Blómadalnum í Tasiilaq og kíkt á sleðahunda, þar sem fræðsla verður veitt um þessar mögnuðu skepnur, sem hafa auðveldað líf heimamanna frá örófi alda á Grænlandi.
Síðan fer auðvitað enginn frá Grænlandi án þess að skoða fallegt handverk og sjá heimamenn stíga þjóðlegan dans og leika á trommur í sínum litríku og fallegu þjóðbúningum úti í náttúrunni.
Grænland er í Norður-Atlantshafi og er stærsta eyja veraldar um tvær milljónir ferkílómetra að stærð. Hún liggur á milli Atlantshafsins og Norður-Íshafsins austan við eyjaklasa Kanada og norðvestan við Ísland en frá Íslandi til Grænlands eru einungis 292 km. Landfræðilega tilheyrir eyjan Norður-Ameríku en er hluti af sjálfsstjórnarsvæði danska ríkisins. Uppruni Grænlendinga er blandaður m.a. Inúítum og Dönum og er opinbert tungumál þeirra bæði grænlenska og danska.
Jökulbreiða eyjarinnar þekur ríflega 80% af öllu landinu og þar má finna hæsta tind landsins, Gunnbjörnsfjall 3.693 m yfir sjávarmáli. Flestir íbúar Grænlands búa á suðvesturhluta eyjarinnar, þar sem mildara veður ríkir. En íslaust landssvæði telur rúmlega 410 þúsund ferkílómetra. Fjöldi íbúa á Grænlandi er ríflega 56 þúsund og þar af búa um 18 þúsund í höfuðborginni Nuuk. Í kringum og á Grænlandi er að finna heimkynni ýmissa villtra dýra eins og ísbjarna, sauðnauta, rostunga, hvala, sela og fjölda fugla- og fiskitegunda.
Hitastigið á Grænlandi er mjög breytilegt á milli landsvæða og árstíma en yfir vetrartímann getur það farið niður í -50° C en á sumrin getur hitinn farið upp í 20° C. Grænland er einstakt heim að sækja fyrir þá sem kunna að meta ósnortna náttúru í allri sinni dýrð!
Rétt vestan við Ísland er að finna tvo afskekkta bæi á austurströnd Grænlands, sem hafa að geyma gjörólíka menningu, sögu og landslag, en þekkist á Íslandi. Á eyjunni stóru, sem einkennist af jökulbreiðu og háum og bröttum fjöllum má finna samfélög manna sem telja aðeins um 3.500 manns, þar á meðal eru Kulusuk og Tasiilaq.
Kulusuk er ekki stór bær, þar búa aðeins um 350 manns í litríkum húsum og innan um þau má víða heyra spangól í sleðahundum. Bærinn sem stendur á eyjunni Kulusuk er staðsettur í um 110 kílómetrum sunnan við norðurheimskautsbaug og einkennist landslagið af háum fjöllum og fljótandi ísjökum á hafsfletinum í kringum bæinn en frá Kulusuk má einnig sjá hinn tignarlega jökul Apusiaajik. Bærinn hefur goðsagnakennt yfirbragð, þar sem hann var ekki uppgötvaður af evrópskum landnámsmönnum fyrr en árið 1884 og fyrir vikið er menning frá tímum Inúítanna enn áberandi. Í dag er þar að finna eina alþjóðlega flugvöll Austur-Grænlands og hefur hann opnað gáttir til að ferðast til annarra bæja í grennd við Kulusuk, ýmist siglandi eða í þyrlu.
Tasiilaq er á eyjunni Ammassalik og er fjölmennasti þéttbýlisstaður Austur-Grænlands en þar búa um 2.000 manns. Bærinn er mjög einangraður og þangað er aðeins hægt að komast með þyrlu, hundasleðum eða vélsleðum yfir háveturinn en á sumrin er hægt að sigla þangað frá Kulusuk. Fjölgun íbúa í bænum hefur aukist, en fólk frá smærri bæjum og þorpum hafa sest þar að í meira mæli og á sama tíma hefur atvinnuleysi aukist mikið og skortur er á húsnæði.
Íbúar Kulusuk og Tasiilaq eru vinalegir og gestrisnir en þeirra helsta atvinnugrein í dag er ferðaiðnaður. Þeir starfa þó enn margir við veiðar á hinum ýmsu dýrategundum, eins og fuglum, fiski, selum og hvölum til þess að framfleyta sér og sínum.
Í Kulusuk og Tasiilaq er að finna skemmtilega afþreyingarmöguleika og eru bæirnir og umhverfið í kringum þá í raun paradís fyrir náttúruunnendur með ævintýraþrá. Þar er m.a. hægt að fara í göngu-, báts-, hunda- og vélsleðaferðir á óviðjafnalegum slóðum með útsýni sem hvergi annars staðar þekkist í veröldinni, með ísjökum, jöklum og sögufrægum bæjum sem hafa að geyma mikla og merkilega sögu um menningu inúítanna. Þar er einnig að finna áhugaverð söfn og veitingastaði sem bjóða upp á framandi mat og skemmtun.
Hitastig á sumrin fer sjaldan yfir 10-15° C en fer allt niður í -30° C á veturna.
Athugið að það er aðeins hægt að fara í hunda- og vélsleðaferðir yfir vetrartímann.
Laugardagurinn 21. september
Ferðadagur – Flug frá Keflavíkurflugvelli kl. 17:30
Sunnudagurinn 22. september
Bæjarferð og sögusafn í Kulusuk – Bátsferð til Apusiaajik-jökulsins, fræðsla, jöklaganga og íshellir – Tasiilaq og grænlenskur kokkur.
Mánudagurinn 23. september
Fiskveiðar, verkun, eldamennska að hætti heimamanna undir berum himni – Flower Valley – Trommur og dans – Fræðsla um sleðahunda – Listagallerí – Grænlenskur kokkur.
Þriðjudagurinn 24. september
Bátsferð í Johan Petersen fjörðinn innan um ísjaka og skriðjökla – Göngutúr í yfirgefnu þorpi og kíkt inn í gamla kirkju og skóla – Hann-jökullinn – Grænlenskur kokkur.
Miðvikudagurinn 25. september 2024
Bátsferð innan um ísjaka – Afskekkt fiskiþorp – Gamlar minjar frá herstöð seinni heimsstyrjaldarinnar – Knud Rasmussen jökullinn – Flug til Íslands kl. 17:00
Nokkrir göngutúrar innan- og utanbæjar, meðal annars á jökli (farþegar fá jöklabrodda í íshellaferð). Þeir sem finna til sjóveiki ættu að gera viðeigandi ráðstafanir. Mikilvægt að nálgast sleðahunda aðeins undir leiðsögn staðarhaldara.
Gist verður á framandi og skemmtilegum stöðum.
Í Kulusuk verður gist á Hotel Kulusuk í eina nótt með kvöldmat og morgunmat inniföldum. Hótelið er vel staðsett í um 5 mínútna fjarlægð frá flugvellinum í rólegu umhverfi með fallegri fjallasýn úr öllum herbergjum og miðbær Kulusuk er í 1,6 km fjarlægð frá hótelinu. Hvert herbergi er með sér baðherbergi og Wi-Fi tengingu.
Í miðbæ Tasiilaq verður gist í dæmigerðum nýuppgerðum grænlenskum húsum með frábæru útsýni yfir bæinn og fjörðinn. Hvort hús um sig er með 5-6 svefnherbergjum og er hvert herbergi útbúið tveimur rúmum. Í húsunum eru tvö sameigingleg baðherbergi, eitt eldhús og stofa.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í þessari ævintýralegu sérferð Tíu þúsund feta fara þaulreyndir íslenskumælandi fararstjórar með í ferðina, þau Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson. Þau hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu í 25 ár ásamt því að ferðast um víða veröld m.a. á framandi slóðir eins og til Grænlands.
Ferðadagur
Flogið með Icelandair frá Keflavíkurflugvelli kl. 17:30. Áætluð lending í Kulusuk er kl. 18:15. Þaðan er svo ekið með hópinn beint heim á hótel, þar sem farþegar koma sér fyrir á herbergjum og snæða síðan kvöldmat.
Kulusuk – Apusiaajik – íshellir
Eftir morgunverð skilja farþegar farangur sinn eftir í gestamóttöku hótelsins. Þaðan verður svo lagt af stað klukkan 9:30 í skoðunarferðir dagsins. Fyrst verður gengið undir leiðsögn um bæinn Kulusuk og komið við á fróðlegu sögusafni bæjarins, þar sem hópurinn fær innsýn í ótrúlega lífsbaráttu þess fólks sem sest hefur að á þessum köldu og afskekktu slóðum. Um hádegisbil verður farið í stutta bátsferð og siglt til Apusiaajik-jökulsins, þar sem hópurinn snæðir hádegisverð og fær fræðslu frá jöklasérfræðingi um íshella. Að því loknu verður farið í hans fylgd ofan í undraverðan 40 metra djúpan íshelli, þar sem góður tími verður veittur til að njóta og virða fyrir sér þetta stórkostlega undur náttúrunnar. Athugið að hópnum verður skipt í tvennt í hellaheimsókn, þar sem 10 manns fara saman í hvora ferð. Eftir hellaheimsóknina verður siglt til Tasiilaq, þar sem farþegar fá aftur farangurinn sinn og koma sér fyrir í dæmigerðum grænlenskum húsum, þar sem kokkur sér um matseldina og býður upp á spennandi grænlenskan kvöldverð.
Veiðiferð – Flower Valley – sleðahundar – trommur og dans
Michelin hvað? Bátsferð, þar sem við förum á fiskveiðar og verkum svo fiskinn úti í guðs grænni náttúrunni og sjóðum hann yfir opnum eldi upp úr náttúrulega söltuðu vatni, sem við finnum í næstu á. Því næst finnum við okkur hentugt steinborð, nælum okkur í skel og borðum ferskan fiskinn undir berum himni. Þetta mun toppa alla Michelin veitingastaði veraldar! Seinnipartinn verður farið í gönguferð í Flower Valley, hinum fallega ,,Blómadal”, þar sem leikið verður á trommu og þjóðlegur dans stiginn. Ekki er hægt að komast hjá því á leiðinni að heilsa upp á sleðahunda en þá ber að nálgast með varúð og aðeins undir leiðsögn staðarhaldara. Í þessari gönguferð gefst kostur á að kíkja í listagallerí, þar sem hægt verður að næla sér í minjagripi og fylgjast með listamönnum skera út í hreindýrshorn. Kokkur sér svo um að elda ofan í mannskapinn um kvöldið.
Johan Petersen fjörðurinn
Eftir morgunverð fer hópurinn saman niður á höfn í Tasiilaq og þaðan verður siglt suður fyrir Ammassalik-eyju og inn Sermilik ísfjörðinn framhjá risastórum ísjökum en sú sjón fær þá sem á horfa til að upplifa sig sem agnarsmáar verur í samanburði við ísjakana. Komið verður við í litlu yfirgefnu byggðarlagi, þar sem kíkt verður inn í gamla kirkju og skóla og notið fallegs útsýnis. Síðan verður farið aftur um borð í bátinn og siglt til norðurs í átt til Johan Petersen fjarðar, en leiðin þangað er afar heillandi með mikilfenglegum fljótandi ísjökum allt um kring og víða má heyra brak og bresti þar sem ísklumpar brotna úr ísjökunum og nærliggjandi skriðjöklum sem falla síðan í sjó fram. Farið verður í land við Hann-jökulinn, sem tengist hinum risastóra Grænlandsjökli og snæddur hádegisverður með útsýni sem engan svíkur. Eftir hádegisverð verður gefinn góður tími til þess að rölta um svæðið, taka ljósmyndir og vera í núvitundinni. Síðan er siglt til baka og er aldrei að vita nema hvalir heilsi upp á hópinn á leiðinni. Áætluð koma í land í Tasiilaq verður um kl. 17. Kokkur sér um að elda fyrir mannskapinn dýrindis kvöldverð.
Herstöð í Ikateq – Knud Rasmussen jökullinn – flug
Heilsdagsferð, þar sem siglt verður inn hvern fallega fjörðinn á fætur öðrum. Fyrsti áfangastaðurinn verður á gamalli bandarískri herstöð í Ikateq, sem var yfirgefin eftir seinni heimsstyrjöldina, en þar má finna þúsundir ryðgaðra eldsneytistunna og farartæki sem Bandaríkjamenn skyldu eftir sig og setur undarlegan svip á ægifagurt umhverfið allt um kring. Því næst er siglt inn í hinn fagra og þrönga Sermiligaaq fjörð, þar sem finna má samnefnt lítið fiskimannaþorp með litlum litríkum timburhúsum, sem gefa umhverfinu skemmtilegan svip. Í aðeins 20 kílómetra fjarlægð frá þorpinu er að sjá tvo mikilfenglega jökla sem tengjast saman, annars vegar hinn þekkta Knud Rasmussen jökul og hins vegar Karale en þeir hafa stundum verið kallaðir ,,heimsins stærstu ísvélar”. Þar verður stigið í land og borðaður hádegismatur og rölt um svæðið og gefinn góður tími til að njóta stundarinnar, fagurs útsýnis yfir bláleita fagra ísjaka og jökla. Eftir ævintýralega upplifun verður siglt til baka og komið í land í Kulusuk klukkan 17 en þar á hópurinn flug til Íslands klukkan 19:00.
Vinsamlega athugið
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrirrúmi.
Flug:
Farangur:
Sigling:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Skoðunarferðir
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ