Endurnærandi heilsuferð á Tenerife sem mun hafa frábær áhrif á heilsu þína og líðan, bæði andlega og líkamlega. Þetta er ferð fyrir alla þá sem kunna að meta friðsæld og 4* lúxusgistingu í rólegum strandbæ á eyjunni fögru. Hótelið er sérsniðið til að njóta hvíldar og vellíðunar þannig að farþegar okkar nái góðri núvitund, auknu heilbrigði, góðum svefni, meiri orku, innri kyrrð, bættu matarræði og losni við streitueinkenni.
Í þessari einstöku heilsuferð á Tenerife kemur þú þér á rétta braut í nágrenni við hina ósnortnu friðuðu náttúru eyjarinnar fögru í námunda við þjóðgarð Anaga-skagans. Þetta er heilsuferð í allra jákvæðustu þýðingu þess orðs og núllstillir mörg af mikilvægustu kerfum líkamans.
Í þessari dásamlegu heilsuferð nærðu líka að losa þig við umfram vatnssöfnun og aukakíló eftir sumarið og njóta blíðviðris á meðan vetra tekur á Íslandi. Þú losar bjúg, líður betur í líkamanum og léttist. Það er ótrúlegt hvað tvær vikur af dekri við sjálfið og líkamann getur gert.
Blóðsykurstjórnun er jafnframt lykilatriði þar sem þú nærð stjórn á:
Hótelið er sérsniðið með rólegheit og vellíðan að leiðarljósi. Í garði þess er að finna sjávarnáttúrulaug þar sem notalegt er að synda og kæla sig niður eftir heita saunaböð.
Tenerife er stærsta og fjölsóttasta eyjan af þeim átta eyjum sem tilheyra Kanaríeyjunum. Hún er staðsett mitt á milli eyjanna Gran Canaria, La Gomera og La Palma. Tenerife er eldfjallaeyja sem talin er að hafi myndast fyrir 8 milljónum ára. Hún er í u.þ.b. 300 km fjarlægð frá meginlandi Afríku og í u.þ.b. 1300 km frá meginlandi Spánar. Eyjan er 2.034 ferkílómetrar að flatarmáli og er eins og þríhyrningur í laginu og fer hún hækkandi eftir því sem nær dregur miðju og nær hámarki með Pico del Teide sem er hæsta fjall Spánar í 3.718 m hæð yfir sjávarmáli. Santa Cruz er höfuðborgin þar sem búa um 250.000 íbúar en á eyjunni búa tæplega milljón manns.
Meðalhiti á Tenerife er í kringum 22-25 °C en athugið að hitastigið getur verið lægra upp til fjalla.
Anagaskaginn
Þjóðgarður Anagaskagans á norðausturhluta Tenerife hefur að geyma elsta fjallgarð eyjarinnar, þar sem landslagið einkennist af stórkostlegri náttúrufegurð með bröttum og tignarlegum gróðursælum fjallgörðum, þar sem útsýni er óviðjafnanlegt til bæði sjávar og sveita. Hin óspillta náttúra er einstök og veitir hverjum sem þar gengur um endurnærandi orku.
Punta del Hidalgo
Punta del Hidalgo er lítill og rólegur strandbær á norðuhluta Tenerife, sem tilheyrir borginni San Cristóbal de La Laguna. Saga bæjarins á rætur að rekja til landvinningatíma eyjarinnar, þegar konungar frumbyggjaríkjanna níu sameinuðust í bænum í baráttu sinni gegn Spánverjum. Spánverjar báru þar sigur úr bítum og er talið að þeir fáu frumbyggjar sem ekki voru felldir hafi lagt þar niður vopn sín. Þess má geta að nafn bæjarins er skýrskotun í sögusögn um óskilgetinn konungsson Mencey sem var einn frægasti konungur frumbyggjanna. Strendurnar og náttúrulaugar bæjarins hafa mikið aðdráttarafl og einnig hið óviðjafnanlega útsýni yfir til hins magnað fjallstindar El Teide sem gnæfir yfir eyjuna fögru í 3.718 m hæð yfir sjávarmáli og yfir hið víðáttumikla Atlantshaf.
Morgun
_______________________________
Hádegi – Miðbik dags
________________________________
Síðdegi
________________________________
Kvöld
Ert þú til í heilsufrí með fyrirbyggjandi heilsudögum þar sem hvíld, hreyfing, mataræði og fræðsla eru í fyrirrúmi? Langar þig til að bæta matarræðið, missa nokkur aukakíló og setja heilsuna í fyrsta sætið? Þá er þetta rétta ferðin fyrir þig.
Gist verður á friðsælu, vönduðu og huggulegu 4* hóteli í rólegum og notalegum strandbæ á norðurhluta Tenerife. Þar er allt til alls til að láta sér líða vel og hlaða batteríin til fulls. Glæsileg líkamsræktaraðstaða, flottir jóga- og slökunartímar og fyrsta flokks nudd- og snyrtimeðferðir í boði. Stutt í útivist og flottar gönguleiðir í nágrenni gististaðarins.
Einstök staðsetning hótelsins innan um falleg fjöll Tenerife og við sjávarsíðuna skapar ómetanlegan stað fyrir þig til slökunar fjarri ys og þys. Ferskt fjallaloftið. Ljúfur sjávarilmurinn. Kyrrðin í garðinum. Nálægðin við hafið gefur síðan ólýsanlega orku og hið sama á við um glæsilega heilsulindina, náttúrulaugina og heilsumeðferðirnar sem í boði eru.
Öll herbergi hótelsins eru með fögru sjávarsýn og eru þau innréttuð með hlýlegum litum og búin fyrsta flokks húsbúnaði. Herbergin eru einnig rúmgóð.
Að líða aðlaðandi er hluti þess að líða vel í eigin líkama. Hótelið býður upp á úrval nudd- og snyrtimeðferða til að bæta útlit og gæði húðarinnar ásamt því að auka vellíðan og mýkt líkamans. Sjávarvatn er einnig mikilvægur hluti af lífshamingjunni og slíka náttúrulaug er að finna í garði gististaðarins.
Glæsileg heilsulind hótelsins býður meðal annars uppá:
Ef þú ert í leit að slökun, vellíðan, betri líkamsþyngd, aukinni orku, bættum svefni og hreinna matarræði þá erum við með réttu ferðina og fullkomið hótel fyrir þig.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða.
Í ferðum Tíu þúsund feta fara ávallt íslenskumælandi fararstjórar með í ferðirnar. Í þessari ferð er það Gunnar Már Kamban en hann hefur einnig 30 ára reynslu við einkaþjálfun og næringarráðgjöf. Síðastliðin ár hefur hann boðið upp á detox-meðferðir hér á landi með góðum árangri. Sjálfur segir Gunnar að meðferðin sé það besta sem hann hafi upplifað fyrir eigin heilsu:
„Ég hef haft yfir 500 manns í meðferðum og það er frábær reynsla að sjá fólk umbreyta líðan sinni í þessum meðferðum. Detox er einstök leið til að stórbæta andlega og líkamlega heilsu í stresslausu umhverfi og er eitthvað sem ég mæli með að fólk geri reglulega út lífið.
Ég er gríðarlega spenntur yfir að geta boðið þessa dvöl á Tenerife í því fallega landslagi og góða loftslagi sem þar er. Oceano er einstakt hótel sem býður upp á allt sem til þarf til að upplifa einstaka detox daga og vinda ofan af stressi og streitu. Ég mun taka á móti ykkur og verð til staðar allan tímann. Ég mun aðstoða ykkur varðandi mataræðið og hreyfinguna og veita ykkur ráðgjöf og stuðning í gegnum allt ferlið og veit að þið munið upplifa frábæra dvöl og koma fersk og enurnærð heim.
Hlakka til að taka á móti ykkur.“
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ