Tíu þúsund fet bjóða upp á einstaka menningar- og prjónaferð til Skotlands þar sem hin dásamlega Edinborg verður heimsótt áður en haldið er norður til Hjaltlandseyja á Shetland Wool Week. Um er að ræða alþjóðlega ullar- og handverkshátíð með fjölbreyttum námskeiðum, fyrirlestrum, vinnustofum og upplifunum um prjónaskap, mynstur og menningu.
Stórbrotin náttúra á slóðum úr alfaraleið, rólegt samfélag heimamanna og hátíðleg samkoma prjónafólks frá öllum heimshornum. Að lokinni dvöl á Hjaltlandseyjum er farið aftur til Edinborgar áður en haldið er heim til Íslands.
Ævintýrið hefst í Edinborg, höfuðborg Skotlands, sem auk þess að vera ein fegursta borg Evrópu er einkar aðgengileg og uppfull af sögum, menningu og líflegu borgarlífi. Þar göngum við um götur gamla bæjarins og í gegnum leyndardómsfullar hliðargötur við Edinborgarkastala sem gnæfir yfir borginni, með viðkomu á notalegum kaffihúsum og í spennandi garnbúðum.
Frá Edinborg liggur leiðin til Hjaltlandseyja. Haldið er sem leið liggur í gegnum Aberdeenshire með viðkomu í litlum þorpum í stórbrotnu umhverfi sem er eins og klippt út úr bíómynd. Þegar komið er til Aberdeen er farið um borð í næturferju sem siglir með okkur til Hjaltlandseyja. Þar er dvalið í viku á hátíðinni Shetland Wool Week, alþjóðlegri ullar- og prjónahátíð með þéttri dagskrá af fjölbreyttum viðburðum fyrir prjónafólk og handverksunnendur allsstaðar að úr heiminum. Þátttakendur hafa aðgang að fróðlegum og spennandi námskeiðum, fyrirlestrum og vinnustofum þar sem prjón, spuni og litun eru í forgrunni.
Á Hjaltlandseyjum gefst einnig tækifæri til að kynnast heimamönnum með heimsókn á sauðfjárbú og í ullarvinnslu ásamt Shetland Textile Museum í samfélagi þar sem nútíminn er í dálítið hægari takti og náttúran stórkostleg.
Að lokinni dvölinni er flogið frá Hjaltlandseyjum til Edinborgar og þaðan haldið aftur heim til Íslands. Sannkölluð draumaferð fyrir prjónara og unnendur náttúru og menningar á ógleymanlegum stað.
Edinborg og Hjaltlandseyjar sýna tvær mjög ólíkar hliðar Skotlands sem er magnað að kynnast í einni og sömu ferðinni.
Sögurnar drjúpa af hverju götuhorni í Edinborg sem býr yfir dramatískri fegurð en er samt svo notaleg og hlý, meira að segja á rigningardegi. Princes Gardens marka skiptingu borgarinnar þar sem gamli bærinn er leyndardómsfullur með þröngar hliðargötur, brekkur og tröppur á meðan nýi bærinn breiðir úr sér í stíl með nútímalegra yfirbragði. Yfir öllu trónir Edinborgarkastali eins og hann hefur gert frá því hann var reistur í byrjun 11. aldar. Alla daga nema sunnudaga er púðurskoti hleypt af einni af fallbyssum kastalans á slaginu 13:00, nokkuð sem er ágætt að hafa í huga til að verða ekki alltof bilt við í verslunarferðum á Princes Street fyrir neðan kastalann sjálfan.
Edinborg er staður uppgötvana, heimspekinga, sagna, skáldskapar og hefða. Flestar góðar hugmyndir eiga eflaust uppruna sinn á einhverjum af fjölmörgum krám og pöbbum borgarinnar og nú í seinni tíð einnig á frábærum kaffihúsum sem hafa sprottið upp um alla borg. En þrátt fyrir að borgin sé lífleg og iðandi er einhvern veginn alltaf hægt að finna næði og ró, hvort sem það er í labbitúr meðfram Water of Leith, göngu á Arthur’s Seat eða á einhverju af forvitnilegum söfnum borgarinnar.
Í norðurátt breytist bæði landslag og stemning sem minnir jafnvel á okkar heimaslóðir á Íslandi. Upplifunin á Hjaltlandseyjum er svolítið eins og að vera staddur á hjara veraldar, í bestu mögulegu merkingu. Borgarlíf Edinborgar gæti ekki verið ólíkara lífinu á þessum nyrsta hluta Skotlands þar sem Atlantshafið og Norðursjór faðma eyjarnar úr sitthvorri áttinni. Þar getur vissulega verið vindasamt, nokkuð sem við könnumst vel við, en að sama skapi jafnast fátt á við það þegar kyrrðin færist yfir. Hjaltlandseyjasmáhestar eru fyrir löngu orðnir víðfrægir fyrir mikinn glæsileika miðað við rúmmál og sama má segja um Hjaltlandseyjafjárhundinn (e. sheltie) sem þykir með skynugri hundategundum sem fyrirfinnast í heiminum.
Þó enska sé töluð bæði á meginlandi Skotlands og á Hjaltlandseyjum gera sterkar mállýskur, hreimur og slangur heimamanna það stundum að skemmtilegri áskorun að finna út hvað átt er við. Hins vegar eru norræn áhrif á Hjaltlandseyjum ríkuleg, nokkuð sem íbúar eru afar stoltir af, og orð eins og voar, hoos og muckle (vor, hús og mikill) hljóma kunnuglega í okkar eyrum. Norræn áhrif eru áþreifanleg sem sést einna best í staðarheitum, daglegu lífi og hátíðum eins og Up Helly Aa tileinkuðum norrænum uppruna.
Frá stærstu byggðu eyju Hjaltlandseyja, Mainland, er styttra til Noregs en London. Samfélag eyjaskeggja er náið og lítið, um 23.000 íbúar eru á eyjunum 16 sem eru í byggð, og hefðir eru enn í hávegum hafðar. Sauðfjárhald, ull og ullarvinnsla er Hjaltlendingum hjartans mál og hátíð eins og Shetland Wool Week tvinnar því saman einstakt líf og menningu eyjaskeggja við daglegar venjur, arfleifð frá fyrri tímum og gullfallegt handverk.
Nokkrar staðreyndir um Skotland
Föstudagur 25. september – Ferðadagur: Keflavík – Edinborg
Þann 25. september verður flogið frá Keflavík kl. 10:00 til Edinborgar með flugfélaginu Icelandair. Áætluð lending í Edinborg er kl. 13:20. Rúta fer með hópinn frá flugvellinum upp á hótel þar sem hægt verður að koma sér fyrir.
Tilvalið er að nota eftirmiðdaginn til að kanna borgina. Miðborg Edinborgar er ekki stór en ótrúlega falleg og stemningin er hlý og notaleg. Grassmarket er í hjarta gamla bæjarins og þar fyrir ofan liggur Royal Mile alla leið frá Edinborgarkastala og niður að Holyrood Palace, frægum kastala í sögu Skotlands og opinbert aðsetur konungsfjölskyldunnar þegar hún þarf að erinda í Skotlandi.
Ljúffengur kvöldverður bíður svo hópsins á hótelinu og eftir hann er tilvalið að upplifa stemninguna á einhverjum af fjölmörgum pöbbum borgarinnar.
Laugardagur 26. september – Nágrenni Edinborgar – Craigmillar kastali – Rosslyn – Errington Farm
Eftir morgunverð verður nágrenni Edinborgar kannað. Við keyrum suður eftir þar sem hæðir og dalir taka við af borgarumhverfinu. Fyrsta stopp er Craigmillar kastali, einn best varðveitti kastali Skotlands sem var reistur um miðja 15. öld. Hér dvaldi Mary Queen of Scots á tveimur afdrifaríkum tímabilum í lífi sínu og sagan er nánast áþreifanleg þegar kastalinn er heimsóttur.
Þaðan er haldið í átt að þorpinu Roslin en skammt þar frá er Rosslyn kapellan. Þetta er tilkomumikil steinkirkja í gotneskum stíl með leyndardómsfulla sögu eins og lesendur bókarinnar Da Vinci lykillinn eftir Dan Brown muna eflaust eftir.
Frá Rosslyn er ekið til South Lanarkshire á Errington Farm. Þar eru haldnar um 400 ær og 150 geitur sem við heilsum upp á en úr mjólkinni vinna ábúendur ljúffenga osta undir merkinu Errington Cheese, sem gestum gefst tækifæri til að smakka.
Eftir viðburðaríkan dag er haldið aftur til Edinborgar.
Sunnudagur 27. september – Ferðadagur – Flug til Hjaltlandseyja
Eftir morgunverð er tekið létt rölt og garnbúðir heimsóttar ef þörf er á að sækja birgðir fyrir ferðalagið. Hópurinn verður svo sóttur upp á hótel eftir hádegi og þaðan haldið upp á flugvöll.
Áætlað flug frá Edinborg er kl. 16:45 og lending í Sumburgh á Hjaltlandseyjum er kl. 18:10. Þaðan er haldið upp á hótel þar sem hópurinn kemur sér fyrir og um kvöldið verður Shetland Wool Week 2026 sett.
Mánudagur 28. september – Sjósund – Shetland Wool Week
Á Hjaltlandseyjum, líkt og á fleiri norðlægum slóðum, hefur fólk tröllatrú á að dýfa sér í sjóinn og stunda köld böð sér til heilsubótar og ánægju.
Um morguninn skellum við okkur í sjósund og heyrum meðal annars þjóðsögur um selkies, selafólk á Hjaltlandseyjum, sem við könnumst líka við úr okkar eigin sagnaarfi.
Dagskrá prjónahátíðarinnar hefst svo síðar um morguninn.
Þriðjudagur 29. september – Laugardagur 3. október – Shetland Wool Week
Dagskrá Shetland Wool Week samanstendur af fjölbreyttum námskeiðum, vinnustofum, heimsóknum á söfn og sýningar og gestum býðst jafnvel að heimsækja kindur, smáhesta og hunda Hjaltlandseyja.
Hver og einn velur sér viðburði til að sækja yfir vikuna en íslenskur fararstjóri verður til taks fyrir hópinn allan tímann.
Miðvikudagur 30. september – Heimsókn til Silly Sheep Fibre Company
Meðfram dagskrá prjónahátíðarinnar býðst hópnum að fara í heimsókn til Silly Sheep Fibre Company, sem er fjölskyldurekið sauðfjárbú þar sem ábúendur vinna allt sjálfir úr sinni ull, lita, þæfa, spinna og búa til ýmsar vörur, frá a-ö heima á bænum. Silly Sheep er staðsett hinu megin á stærstu eyjunni, Mainland, og því gefst gott tækifæri til þess að virða fyrir sér landslagið á leiðinni og kynnast lífinu í sauðfjárbúskap og ullarvinnslu.
Sunnudagur 4. október – Ferð til Burra – Flug til Edinborgar
Eftir morgunverð skráir hópurinn sig út af hótelinu og fer með rútu áleiðis til Burra. Burra er í raun tvær eyjar tengdar saman með brú á milli og á þeirri vestari búa 753 manns en 66 á þeirri eystri.
Ekið er til Whiteness og þaðan tekin ferja yfir til Burra, siglingin tekur um 30 mínútur.
Á Burra verður fjölskyldufyrirtækið Burra Bear heimsótt, hvaðan hinn víðfrægi prjónabangsi Shetland Teddy kemur. Eftir heimsóknina er ekið til Hamnavoe, þaðan er ferjan tekin aftur yfir til Whiteness og loks ekið til Sumburgh flugvallar.
Áætlað flug frá Sumburgh er kl. 18:45 og lending í Edinborg er kl. 20:10.
Mánudagur 5. október – Heimsókn í Dovecot Studios – Frjáls dagur
Frjáls dagur í Edinborg.
Þriðjudagur 6. október – Heimferðardagur: Edinborg – Keflavík
Brottför frá Edinborg. Rúta sækir hópinn kl. 7:30 heim á hótel. Áætluð brottför frá Edinborg er kl. 14:15 og áætluð lending á Keflavíkurflugvelli er kl. 15:50
Vinsamlega athugið
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrrúmi.
Ferðin hentar öllum þeim sem hafa áhuga á kunnuglegri stemningu á framandi slóðum, ástríðu fyrir prjónaskap og fallegu handverki og vilja dvelja á stórbrotinni eyju með sögu og menningu allt um kring.
Í Edinborg er gist á 3* hótelinu Moxy Edinburgh Fountainbridge með morgunverði
Sameignarsvæði hótelsins er fallegt og innréttað í notalegum stíl. Móttakan er opin allan sólarhringinn. Herbergin eru snyrtileg og vel útbúin með flatskjá, minibar og þráðlausu interneti. Öll herbergi hótelsins eru innréttuð með hlýlegum litum og búin fyrsta flokks húsbúnaði.
Á Hjaltslandseyjum er gist á sveitahótelinu St. Magnus Bay Hotel í Hillswick.
Herbergin eru snyrtileg og vel útbúin með flatskjá, minibar og þráðlausu interneti. Öll herbergi hótelsins eru innréttuð með hlýlegum litum og búin góðum húsbúnaði.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða. Athugið einnig að gististaðir geta breyst en þá er ávallt boðið upp á sambærilega gististaði eða betri.
Hjá Tíu þúsund fetum fara íslenskumælandi fararstjórar ávallt með í ferðirnar. Í þessari ferð er það Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, sem hefur búið og starfað í Skotlandi og þekkir land og þjóð, sögu og menningu Skota afar vel. Sólveig hefur sérstakan áhuga á þjóðsögum og hefðum Skota og nágrannaþjóða þeirra, sem oftar en ekki tengjast inn í okkar eigin menningararfleifð.
„Það er einhver ósýnilegur þráður á milli Íslendinga og keltneskra þjóða sem er erfitt að útskýra á annan hátt en þann að við eigum bara svo innilega skap saman. Þarna spilar sagan og hreinlega erfðirnar okkar inn í en erfðamengi Íslendinga, kvenleggsins sérstaklega, er rakið að stórum hluta til Kelta. Skotar eru gestrisnir, glettnir og skemmtilegir og það skemmir aldrei fyrir að vera Íslendingur á þessum slóðum því þar í landi finna innfæddir líka frændskapinn á milli okkar“ segir Sólveig.
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Afþreying
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ