Eyjan græna hefur lengi verið í miklu uppáhaldi Íslendinga og hér er komin einstök upplifunarferð um Írland þar sem sveitir landsins, sögur, matur og menning eru í aðalhlutverki. Ullarvinnsla, smalahundasýning, klaustur, kastalar, matarupplifun, smáþorp, ostagerð og alvöru pöbbar með lifandi tónlist eru meðal annars á dagskránni svo hér er um að ræða sannkallaða ævintýraferð.
Flogið er til Dublin þar sem ferðin hefst í Kilmainham Gaol, gömlu fangelsi sem búið er að breyta í safn um sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, magnaða sögu sem fléttast saman við landið og fólkið á þeim slóðum sem ferðinni er heitið. Haldið er út í grænar sveitir Wicklow og í vesturátt til Connemara og komið við í Kylemore Abbey þar sem nunnur Benediktsreglunnar lifa og starfa.
Í ferðinni er lögð sérstök áhersla á að upplifa stórkostlegt landslag og náttúru, handverk, matarmenningu og lífið í sveitum, þorpum og bæjum landsins. Þessu öllu verða gerð góð skil í smökkunarferð til Burren Smokehouse, útsýnisferð um Cliffs of Moher og heimsókn í þorpið Doolin þar sem íbúafjöldinn telur um 300 manns.
Saga Írlands er lituð elju og baráttu á mörgum vígstöðvum og landið allt, sérstaklega sveitirnar, eru bæði vitnisburður um ótrúlega þrautseigju þjóðarinnar og gullnáma þegar kemur að þjóðsögum og skýringum á venjum og karakter þjóðarinnar í gegnum aldirnar. Þetta er sérstaklega áberandi á svokölluðum Gaeltacht-svæðum sem farið verður um, en þar er aðeins töluð írska. Frá Galway er ferðinni heitið til Limerick þar sem Adare, sem hefur verið útnefnt fegursta þorp Írlands, verður heimsótt.
Eftir að hafa kannað sýslur vesturstrandarinnar er ferðinni heitið suður eftir í átt að Cork, sem margir Írar frá þessum slóðum vilja meina að sé hin sanna höfuðborg landsins. Þaðan verður keyrt um fagrar sveitir sýslunnar, Blarney kastali heimsóttur og þeir sem þess óska geta kysst hinn víðfræga Blarney-stein sem á þá að færa viðkomandi “the gift of the gab”, það er að segja ómælda hæfileika til orðsnilldar og mælsku.
Loks er haldið til ostagerðarinnar Durrus í vesturhluta Cork í smökkunar- og skoðunarferð. Frá Cork er ferðinni heitið aftur í átt að höfuðborginni en með viðkomu í Tipperary-sýslu við hinn magnaða Rock of Cashel og viðkomu í Kilkenny til að fá stutta kennslustund í hurling, einni af þjóðaríþróttum Íra.
Ferðinni lýkur svo á frjálsum afslöppunardegi í Dublin áður en haldið er aftur heim til Íslands.
Írland er eyja í vesturhluta Evrópu, umlukin Atlantshafinu, þekkt fyrir iðagrænt landslag, sterka menningararfleifð og gestrisna og hlýja íbúa með mikla sagnahefð og enn meiri húmor. Landið skiptist í lýðveldið Írland og Norður-Írland, sem tilheyrir Bretlandi, skipting sem hefur oft valdið ólgu og átökum í gegnum tíðina.
Saga Írlands er löng og flókin, mótuð af keltneskri arfleifð, innrásum víkinga, sterkum ítökum kaþólsku kirkjunnar og aldalöngum yfirráðum Breta. Sjálfstæðisbarátta Íra á 19. og 20. öld markaði djúp spor í þjóðarsálina og þar áður hafði saga kúgunar, hungursneyðar, missis tungumálsins og gífurlegra fólkflutninga mikil áhrif á sjálfsmynd og menningu þjóðarinnar. Tungumál landsins endurspeglar þessa sögu. Írska, gaeilge, er fyrsta opinbera tungumál Írlands en málið hefði dáið út ef ekki væri fyrir Gaeltacht-svæðin þar sem írskan er enn lifandi talmál. Í dag er vægi tungumálsins að verða meira meðal yngri kynslóðarinnar, enda mikilvægur hluti af menningarlegri sjálfsmynd og sagnahefð þjóðarinnar.
Landslagið er fjölbreytt og einkennist af mjúkum og nánast endalausum hæðum, mýrum, fjöllum, ám, klettabreiðum og tilkomumikilli strandlengju svo náttúrufegurðin er mikil. Veðrið er tiltölulega milt en afar breytilegt og úrkoman oft talsverð, sem útskýrir græna litinn. Samfélög fólks, sérstaklega á landsbyggðinni, eru oft lítil og náin og Írar eru afar stoltir af uppruna sínum. Fólk af írskum uppruna fyrirfinnst um allan heim, þó sérstaklega í Bandaríkjunum og Ástralíu, sem er afleiðing mikilla fólksflutninga á öldum áður. Menningarlíf Írlands er gífurlega ríkt og lifandi. Landið er þekkt fyrir tónlist, bókmenntir og leiklist, og hefur alið af sér ótal skáld, tónlistarfólk og fleiri listamenn. Pöbbamenningin er víðfræg og gegnir sérstöku hlutverki í samfélaginu. Írski pöbbinn er mikilvægur samkomustaður þar sem tónlistin hljómar og stóru málin, og þau litlu reyndar líka, eru rædd ofan í kjölinn.
Írar eru opnir, hlýir og orðheppnir. Húmor, sjálfsgagnrýni, óhóflegt samviskubit og hæfileikinn til að segja góðar sögur er einkenni írsku þjóðarinnar og þeir vita fátt betra en að hitta og eiga samtal við fólk sem kann að meta sögu þeirra og menningu.
Nokkrar staðreyndir um Írland
Föstudagur 7. ágúst – Ferðadagur – Dublin
Flogið er með Icelandair frá Keflavíkurflugvelli kl. 7:30. Áætluð lending í Dublin er kl. 11:05. Fararstjóri tekur á móti hópnum á komusvæði flugvallar og gengur að rútu sem bíður hópsins fyrir framan flugvallarbygginguna.
Þegar búið er að skrá sig inn á hótelið hefst ferðin í Dublin, líflegri höfuðborginni sem sameinar bókmenntir, tónlist og dramatíska sögu. Þessi saga verður einmitt skoðuð betur með heimsókn í Kilmainham Gaol, safni um sjálfstæðisbaráttu Írlands sem áður var fangelsi.
Kvöldið er frjálst í Dublin, fullkomið fyrir rólegan göngutúr um Temple Bar hverfið og góðan mat en einnig er tilvalið að fara úr miðbænum síðdegis, taka göngutúr í Phoenix Park og setjast inn á Hole in the Wall, sem samkvæmt mælingum er lengsti pöbb í Evrópu!
Laugardagur 8. ágúst – Dublin – Wicklow – Galway
Eftir morgunverð er haldið af stað og ekið suður úr borginni í grænar sveitir Wicklow. Wicklow-fjöll eru stórkostlega falleg og í Glendalough er hægt að teygja úr sér í mögnuðu umhverfi, virða fyrir sér sögufrægar klausturrústir og heyra sögur af dýrlingnum Kevin. Aksturinn vestur eftir endar svo í Galway sem er þekkt fyrir frábært andrúmsloft og einstaklega hlýja og gestrisna heimamenn.
Eftir morgunverð er haldið af stað og ekið suður úr borginni í grænar sveitir Wicklow. Við bakka árinnar Avoca stendur ullarvinnsla sem hefur verið í rekstri frá árinu 1723 og er því sú elsta í landinu. Heimsókn í Avoca Mill leiðir gesti í gegnum handverk sem hefur þróast í gegnum gríðarlegar samfélagsbreytingar og ferlið allt frá verkun ullarinnar til hönnunar og framleiðslu fullbúinnar vöru. Wicklow-fjöll eru stórkostlega falleg og í Glendalough er hægt að teygja úr sér í mögnuðu umhverfi, virða fyrir sér sögufrægar klausturrústir og heyra sögur af dýrlingnum Kevin.
Aksturinn vestur eftir endar svo í Galway sem er þekkt fyrir frábært andrúmsloft og einstaklega hlýja og gestrisna heimamenn.
Sunnudagur 9. ágúst – Connemara – Kylemore – Clifden
Dagurinn er tekinn snemma og ferðinni heitið um hrjúfar sveitir Connemara, Gaeltacht-svæði þar sem enskan hverfur af kortinu og öll vegaskilti eru á írsku. Mikil sauðfjárrækt er í sveitunum og því er tilvalið að fylgjast með border collie smalahundum sýna færni sína við skyldustörf á Joyce Farm þar sem þeir smala kindahjörð af blackface-kyni sem er algengt á þessum slóðum.
Kylemore Abbey var sett á fót árið 1920 fyrir nunnur Benediktsreglunnar sem flúðu Belgíu eftir fyrri heimsstyrjöldina en kastalinn sem tilheyrir nú klaustrinu var byggður árið 1867. Þar búa nunnurnar og starfa en hægt er að fara í skoðunarferð um valda hluta svæðisins og taka inn ægifagurt umhverfið. Í bænum Clifden búa um 1200 manns og oft er talað um bæinn sem höfuðstað Connemara. Bærinn er bæði vinalegur og fallegur en hann gegndi líka stóru hlutverki í sjálfstæðisstríði og seinna borgarastyrjöld Írlands í kringum 1920.
Eftir viðburðarríkan dag er haldið aftur til Galway.
Mánudagur 10. ágúst – Galway – Burren – Doolin
Við færum okkur suðureftir meðfram strandlengjunni og til bæjarins Lisdoonvarna í Clare-sýslu þar sem Curtin-fjölskyldan í Burren Smokehouse verður heimsótt. Sænsk/írskt ástarævintýri varð til þess að þarna er nú vönduð vinnsla og nýsköpun á reyktum laxi, bæði villtum og úr lífrænu eldi. Gestir eru leiddir í gegnum söguna og ferlið og að sjálfsögðu fylgir smakk.
Á leið til Cliffs of Moher verður komið við í þorpinu Doolin, einu minnsta og litríkasta þorpi héraðsins með íbúafjölda rétt innan við 300. Cliffs of Moher eru afar tilkomumiklir klettar sem hafa slípast til af ágangi Atlantshafsins árþúsundum saman en sagan segir að í hafdjúpinu neðan við klettana sé heil borg, Kilstiffen, sem hafi sokkið í sæ þegar höfðingi hennar týndi gulllyklinum að kastala borgarinnar í bardaga. Borgin mun ekki finnast aftur fyrr en lykillinn kemur í leitirnar en aðrir vilja meina að á sjö ára fresti sjáist glitta í nokkur húsþök í undirdjúpunum.
Þriðjudagur 11. ágúst – Limerick – Adare – Cork
Um morguninn er haldið til Limerick, borgar sem hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga á síðastliðnum áratug. King John’s kastali hefur þó staðið á sínum stað á bökkum Shannon-árinnar frá 13. öld en einmitt þarna varð borgin Limerick til árið 922 þegar víkingurinn Þormóður Helgason kom sér þar varanlega fyrir og svæðið varð þekkt sem bækistöðvar víkingahópa sem herjuðu á bæi og sveitir upp með ánni. Kastalinn geymir magnaða sögu sem gaman er að kynna sér og eftir heimsókn þangað gefst tími til að kanna borgina á eigin vegum.
Að því loknu er haldið út fyrir borgarmörkin og litið við í Adare, sem hefur verið útnefnt fallegasta þorp Írlands og þá er nú mikið sagt!
Frá Adare er haldið í suður til Cork en þar fá gestir stemningu gamla Írlands beint í æð.
Miðvikudagur 12. ágúst – Kinsale – Blarney kastali – Midleton Whiskey Experience
Margt Cork-fólk stendur á því fastar en fótunum að borgin sé hin eina sanna höfuðborg Írlands. Hvað sem því líður er Cork falleg borg sem iðar af lífi, tónlist og menningu í dag en á árum áður var borgin og sýslan öll þekkt sem “villta suðrið” á tímum þar sem Írski lýðveldisherinn fór mikinn. Í Kinsale búa um 6000 manns.
Þorpið er fallegt og litríkt og þekkt fyrir frábæran mat og þar hittum við fyrir heimamanninn Dermot Ryan sem leiðir okkur í gegnum sögu svæðisins, allt frá víkingum til dagsins í dag.
Eftir hádegisverð í Kinsale höldum við sem leið liggur til Blarney kastala og þau sem treysta sér til eru eindregið hvött til að kyssa Blarney-steininn sem sagan segir að færi þeim sem það gera mikla mælsku og orðsnilld.
Við ljúkum ferðalaginu með viskísmökkun og fræðslu í Midleton Whiskey Experience áður en haldið er aftur til Cork.
Fimmtudagur 13. ágúst – Rock of Cashel – Kilkenny – Dublin
Eftir rólegan morgun er ekið í átt höfuðborginni á nýjan leik, í gegnum Tipperary-sýslu þar sem kastalinn í Rock of Cashel gnæfir yfir grænni sveit. Sagan segir að kletturinn sem kastalinn stendur á hafi myndast eftir að Djöfullinn fékk sér bita af stórum fjallgarði skammt frá en braut að sjálfsögðu tönn við athæfið og spýtti henni út úr sér – kletturinn er því tönn Djöfulsins ef marka má þjóðsöguna. Staðurinn sjálfur á sér myrka sögu og margir vilja meina að þar séu fleiri verur á ferli en bara fólk.
Frá þessum slóðum er haldið til Kilkenny þar sem skipt er um gír og hópurinn fær fræðslu um og kennslu í hurling sem er ein af þjóðaríþróttum Íra, en þekkist varla utan landsins.
Ferðinni er svo haldið áfram til Dublin og komið þangað snemma kvölds.
Föstudagur 14. ágúst – Dublin
Frjáls dagur í Dublin. Íslenskur fararstjóri verður til taks allan tímann.
Laugardagur 15. ágúst – Heimferð
Heimferðardagur. Rúta sækir hópinn á hótelið kl. 11:00 en áætlað flug með Icelandair frá Dublin er kl. 14:15 og lending í Keflavík kl. 15:50
Vinsamlega athugið
Ofangreind dagskrá er birt með fyrirvara. Tíu þúsund fet áskilja sér rétt til að breyta dagskrá ef á þarf að halda með tilliti til veðurs og annarra aðstæðna, að sjálfsögðu með heill farþega í fyrrúmi.
Ferðin hentar öllum þeim sem hafa áhuga á kunnuglegri stemningu á framandi slóðum, ástríðu fyrir prjónaskap og fallegu handverki og vilja dvelja á stórbrotinni eyju með sögu og menningu allt um kring.
Gist er á 4* Mespil Hotel í Dublin með morgunverði.
Öll herbergi hótelsins eru innréttuð með hlýlegum litum og búin fyrsta flokks húsbúnaði.
Gist er á 4* Treacys Oakwood Hotel í Galway með morgunverði.
Öll herbergi hótelsins eru innréttuð með hlýlegum litum og búin fyrsta flokks húsbúnaði.
Gist er á 4* George Hotel í Lemerick með morgunverði.
Öll herbergi hótelsins eru innréttuð með hlýlegum litum og búin fyrsta flokks húsbúnaði.
Gist er á 4* Maldron Hotel South Mall í Cork með morgunverði.
Öll herbergi hótelsins eru innréttuð með hlýlegum litum og búin fyrsta flokks húsbúnaði.
Vinsamlega athugið að ljósmyndir af gististöðum, sem birtar eru á heimasíðu Tíu þúsund feta, eru fengnar frá gististöðunum. Þær eru aðeins til þess að gefa hugmynd um útlit þeirra. Tíu þúsund fet bera ekki ábyrgð á því ef eitthvað hefur breyst á gististöðunum frá því að ljósmyndir voru teknar. Tíu þúsund fet stjórna ekki staðsetningu farþega innan gististaða. Athugið einnig að gististaðir geta breyst en þá er ávallt boðið upp á sambærilega gististaði eða betri.
Hjá Tíu þúsund fetum fara íslenskumælandi fararstjórar ávallt með í ferðirnar. Í þessari ferð er það Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, sem þekkir vel til á Írlandi og hefur góða innsýn í þjóðarsálina og sögu landsins. Sólveig hefur sérstakan áhuga á þjóðsögum, átakasögu og hefðum Íra og nágrannaþjóða þeirra, sem oftar en ekki tengjast inn í okkar eigin menningararfleifð.
„Írar eru ánægðir með Íslendinga og finna fyrir ákveðinni tengingu í okkar garð, sem ég held að sé gagnkvæm tilfinning. Þeir hafa einstakan hæfileika til að takast á við erfiðleika með húmorinn að vopni og sögur frá fyrri tímum skipta fólkið miklu máli enn í dag og eiga stóran þátt í að móta samfélagið. Saga Íra er átaka- og baráttusaga og það eru afar áhugaverðir tímar í landinu um þessar mundir þar sem írska tungumálið er skyndilega komið í tísku og þjóðarvitundin að taka á sig breytta mynd. Allt flæðir þetta svo saman í tónlist og spjalli á pöbbnum. Heimsókn til Írlands lætur engan ósnortinn,” segir Sólveig.
Flug:
Farangur:
Hótel:
Fæði:
Akstur
Afþreying
Fararstjórn
Í nafni náttúrunnar
EKKI INNIFALIÐ