La Mola er bæði fallegt og snyrtilegt golfhótel staðsett í friðsælu skóglendi í aðeins fárra mínútna fjarlægð frá hinum glæsilega golfvelli Real Club de Golf El Prat. Hótelið er stílhreint og umhverfi þess afar friðsælt og hentar því sértaklega vel fyrir golfara sem vilja njóta rólegheita og góðrar hvíldar eftir hreyfingu dagsins.
Þó hótelið sé umvafið glæsilegum golfvelli og friðsælli náttúru, þá er einnig stutt til hinnar sögufrægu borgar Katalóníu, Barcelona, þar sem einstök menning og saga ríkir ásamt fjölskrúðugu mannlífi með skemmtilegum verslunum og fjölbreyttum og góðum veitingastöðum.





















„Nökkvi Gunnarsson er einn af bestu golfkennurum í leiknum í dag. Tileinkaðu þér það sem hann hefur fram að færa og leikur þinn mun taka stakkaskiptum til hins betra.“
Chris O´Connell, á lista Golf Magazine yfir 100 bestu golfkennara í Ameríku 2013-2017.
„Bókin er skrifuð af frábærum kylfingi sem er orðinn einn af fremstu golfkennurum heims. Trúðu hverju orði Nökkva því það mun gera þig að betri kylfingi.“
Jim Hardy, kennari ársins í Ameríku 2007. Höfundur metsölubókarinnar Plane Truth for Golfers. Númer 9 á lista Golf Digest yfir fremstu golfkennara Ameríku 2017-2018.
Magnús Máni Kjærnested
PGA golfkennari og fyrrum klúbbmeistari Nesklúbbsins.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Margfaldur og ríkjandi Íslandsmeistari kvenna og atvinnukylfingur á Evrópumótaröð kvenna.