Gæðagolf með Nökkva!

Meiriháttar golfferð & golfskóli
 

Komdu með okkur í Gæðagolf!

Tíu þúsund fet bjóða upp á glæsilega golfferð í samstarfi við Gæðagolf með Nökkva Gunnarssyni og öðrum reyndum golfkylfingum. Þetta er ferð fyrir golfara, sem kunna að meta gæði og góða þjónustu á frábærum golfvöllum, í fögru umhverfi nærri hinni líflegu strandborg Katalóníu, Barcelona.

Hér er frábært tækifæri til að upplifa háklassa golfmenningu og njóta þess að spila og læra golf á sólríkum og fallegum slóðum með reyndum golfkylfingum, sem bjóða upp á frábæra leiðsögn í þessari vinsælu íþrótt. Góð leið til að njóta skemmtilegra stunda, kynnast nýju fólki, fá góða þjálfun og bæta leikni í golfi með öðrum íslensku golfurum við fyrsta flokks aðstæður.

Ekki missa af þessum!

Magnaðar golfferðir
 
Margfaldir Íslandsmeistarar í golfi halda utan um golfkennsluna í skólanum okkar, þau Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Magnús Máni Kjærnested og Nökkvi Gunnarsson.

Í þessari frábæru golfferð munu fararstjórar ferðarinnar sjá til þess að golfkylfingar njóti sín til fulls, þar sem golfvöllurinn býður upp á allar aðstæður til að spila skemmtilegt golf ásamt því að bjóða upp á golfkennslu, þar sem byrjendur jafnt sem lengra komnir geta fengið  leiðsögn.

Hvers vegna Gæðagolf?

Gífurleg reynsla

Nökkvi og félagar búa yfir gífurlegri reynslu í golfíþróttinni og kennslu hennar. Um borð eru margfaldir íslandsmeistarar í golfi sem halda utan um golfkennsluna í skólanum okkar.

Glæsileg aðstaða

Í golfferðunum okkar eru öll aðstaða fyrsta flokks: Glæsilegir golfvellir, frábær æfingaaðstaða og gott hótel.

Vönduð kennsla

Golfteymið okkar er hokið af reynslu og miðlar af allri sinni reynslu til golfara á öllum stigum

Golf fyrir alla

Þetta er ferð fyrir golfara sem kunna að meta gæði og góða þjónustu á frábærum golfvöllum, þar sem byrjendur jafnt sem lengra komnir geta fengið leiðsögn og kennslu.