,,Þegar leiðin liggur til framandi menningarheima er ómissandi að fararstjórarnir séu starfi sínu vaxnir. Við fórum til Egyptalands í fyrra með Trausta og Rún. Þau stóðu sig óaðfinnanlega og leystu úr hvers manns vanda hratt og örugglega, enda fagfólk með áratuga reynslu. Við hlökkum til að ferðast með þeim í framtíðinni.”
Elín Albertsdóttir og Ásgeir Tómasson, ferð til Egyptalands í mars 2023
„Að fara til Grænlands er stórfengleg upplifun. Undir vel skipulagðri og traustri fararstjórn Trausta og Rúnar var hver dagur nýtt ævintýri þar sem við sigldum um stórbrotið landslag, heimsóttum sleðahunda og gengum á jökul. Við mælum heilshugar með þessari ferð.”
,,Ferðin gekk mjög vel, nutum okkar í botn og skemmtum okkur frábærlega. Fararstjórarnir okkar Rún og Trausti stóðu sig frábærlega og leystu af ljúfmennsku hvers manns vanda og sýndu snilli sína í mannlegum samskiptum. Sérstakar þakkir fyrir frábæra þjónustu og vonandi eigum við eftir að njóta leiðsagnar þeirra aftur á framandi slóðum.”
Guðmundur Haukur, ferð eldri borgara til Marokkó í nóvember 2023
„Við hjónin mælum heilshugar með fararstjórn Rúnar og Trausta. Síðasta sumar ferðuðumst víða um eyjuna Tenerife á þeirra vegum og fórum um eyjuna m.a. í rútu, á bíl og fótgangandi og allt gekk eins og í sögu, vel ígrundað, skipulagt og skemmtilegt. Þau voru alltaf með vellíðan og öryggi okkar í huga og maður fann það sterkt. Það besta við ferðina með þeim var hversu fróð þau voru um staðhætti og sögu staðarins, sögðu skemmtilega frá og kynntu fyrir manni matsölustaði innfæddra, leyndar perlur eyjarinnar og náttúruna.“
Eva Rós og Jóhannes, kennaraferð til Tenerife júní 2023
,,Ég fór í ferð til Egyptalands í fyrra, þar sem Trausti og Rún voru fararstjórar í ferðinni. Ég mæli heilshugar með þeim. Traust, skemmtileg og hlý eru lýsingarorð sem koma til mín þegar ég hugsa til þeirra.”
Martha Ernstdóttir, ferð til Egyptalands í mars 2023
,,Þetta var virkilega góð ferð. Allt skipulag uppá 10. Æfinga- og lyftingaaðstaðan alveg til fyrirmyndar. Hótelið gott þar sem stutt var í allt, maturinn góður og bærinn skemmtilegur. Ég er bara virkilega ánægður og mæli hiklaust með því að lið komi hingað í æfingaferðir.”
Patrekur Jóhannesson, þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta hjá Stjörnunni
,,Ég mæli 100% með þessari ferð.”
Helen Sif Halldórsdóttir, ferð til Grænlands 2024
,,Takk, takk elsku Rún og Trausti, þið stóðuð ykkur frábærlega! Ég hef nokkrum sinnum komið til Tenerife en aldrei kynnst eyjunni eins og ég gerði í þessari ferð með ykkur. Ég fór í frábærar ferðir, þar sem allt skipulag var til fyrirmyndar og á meðan ekið var um eyjuna fengum við allskonar skemmtilegan fróðleik, sem notalegt var að hlusta á. Takk kærlega fyrir mig, pottþéttir fararstjórar sem ég mæli með. Hlakka til að fara með ykkur aftur í ferð! “
Magnea Guðný Hjálmarsdóttir, kennaraferð til Tenerife í júní 2023.
,,Dásamleg ferð sem lengi verður lifað á.“”
Margrét Jónsdóttir, heilsuferð til Tenerife 2024
,,Ferðin var mjög góð, æfingaaðstaða til fyrirmyndar, hótelið frábært, maturinn fínn, bærinn hentar vel fyrir æfingaferð eins og þessa, lyftingaaðstaðan góð og svo var þjónusta Tíu þúsund feta upp á tíu, frábær og mælum við hiklaust með fyrir þá sem vilja koma í sólina og æfa.”
Eyþór Lárusson, þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta hjá Selfoss
,,Við hjónin viljum þakka Rún & Trausta fyrir leiðsögnina um hinar forn-egypsku slóðir með miklum glæsibrag. Á þessum tíma brutust út átök á milli Hamas og Ísrael og var mikil öryggisgæsla, sem krafðist mikils af fararstjórum okkar m.a. í ýmsum samskiptum við löggæslu og staðarleiðsögumenn, sem þau leystu af lipurð. Þau eiga þakkir skilið fyrir hve vel þau héldu utan um hópinn og gerðu alla upplifun af ferðinni ánægjulegri. En þar sem þetta er ekki fyrsta ferð okkar, þar sem þau Rún og Trausti eru við fararstjórn, kom það okkur ekki á óvart hversu ágætir fararstjórar þau eru. Takk fyrir okkur.”
Óli og Sigrún, ferð til Egyptalands í október 2023
,,Vorið 2023 fór ég í námsferð til Tenerife ásamt hópi fólks. Ferðin var mjög vel skipulögð og allar áætlanir stóðust eins og kostur var. Fararstjórnin einkenndist af léttu andrúmslofti, mikilli þekkingu á staðháttum, gleði, öryggi og góðri þjónustulund. Kærar þakkir fyrir mig.”
Svava Aðalbjörg Kristjánsdóttir, kennaraferð til Tenerife í júní 2023.
,,Ferðin til austurstrandar Grænlands var í senn mjög svo áhugaverð og skemmtileg og skipuögð í þaula. Allt gekk eins og í sögu undir styrkri stjórn Rúnar og Trausta. Við gengum yfir og undir jökul, veiddum þorsk og fræddumst um lífið á Grænlandi, sem er allt annað en auðvelt. Ferð sem ekki má missa af. Frábær ferð, bæði áhugaverð og skemmtileg og þið eruð 100% meðetta!”
Pálmi V. Jónsson, Grænlandsferð 2024.
,,Allt upp á 10,5! Allt skipulag stóðst 100%. Við vorum mjög sátt, frábærar aðstæður!“
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val
,,Frábært skipulag í virkilega góðri æfingferð. Æfingasalurinn sá besti sem ég hef æft í. Við vorum mjög sátt, frábærar aðstæður og bærinn virkilega hentugur fyrir svona hópa. Þetta er líklega besta æfingaferð sem við höfum farið í, hún var algjörlega uppá 10…þúsund fet!“
Einar Jónsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram
,,Þetta var frábær ferð. Höllin er algjörlega til fyrirmyndar, lyftisalurinn mjög fínn og hótelið frábært. Öll aðstaðan var til fyrirmyndar og við vorum hrikalega ánægð með allt og mælum heilshugar með ferðinni!”
Sólveig Lára Kjærnested, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR
,,Takk kærlega fyrir samveruna. Þetta er geymt ekki gleymt. Það er eiginlega ekki til orð til að lýsa upplifuninni sem þið buðuð upp á .“
Kristín S. Þórðardóttir, ferð til Senegal & Gambíu
,,Frábær og ævintýraleg ferð. Vel skipulögð og góð fararstjórn, og yndislega skemmtilegir ferðafélagar. Ógleymanlegt. Takk fyrir okkur.“
Lilja Berg, ferð til Senegal & Gambíu
,,Þessi æfingaferð var frábær! Höllin og lyftingaaðstaðan frábær. Trausti og Rún hjá Tíu þúsund fetum voru mjög liðtæk við að hjálpa okkur eða að aðstoða okkur þegar það þurfti að gera einhverjar breytingar. Okkar upplifun var virkilega góð og allir rosalega ánægðir!“
Jón Brynjar Björnsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu
,,Hvílíkt ævintýri! Mig langar aftur til Grænlands! Nú lét ég verða af því að fara þangað, var alltaf á leiðinni. Þegar bauðst ferð með ferðaskrifstofunni tíu þúsund fetum sló ég til og varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Allt stóðst eins og stafur á bók frá fararstjórum og þegar við vorum veðurteppt í einn dag var öllu reddað. Náttúrufegurð Grænlands er ólýsanleg, jöklar og há fjöll hvert sem augað eigir, gömul notaleg hús og blátt hafið og himinn. Skriðjökullinn var einstaklega flottur. Í ferðinni var farið í veiðiferð og aflinn eldaður og borðaður á steini! Við fórum í íshelli, skoðuðum gamalt þorp sem í búa aðeins örfáir einstaklingar, skoðuðum safn um vinnubrögð fyrr og nú, hittu sleðahunda, fórum í Blómadalinn, sigldum innan um ísjaka og fleira og fleira. Ferðafélagar ljúfir, þéttur hópur. Bara geðveikt gaman. Takk fyrir mig!“
Ása H. Ragnarsdóttir, Grænlandsferð 2024
,,Hótelið var frábært og allt skipulag stóðst uppá 10. Frábær æfingaaðstaða og bærinn hentar mjög vel með allt í göngufæri. Takk kærlega fyrir okkur!”
Sigurjón Friðbjörn Björnsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu
Mér fannst þetta virkilega vel heppnuð ferð, með frábærum farastjórum, sem höfðu kynnt sér land og sögu vel og áttu einstaklega auðvelt með að koma þeim fróðleik til skila”
Haraldur Arngrímsson, Grænlandsferð 2024.
,,Takk kærlega fyrir mig. Þetta er búið að vera algjörlega guðdómlegt ævintýri.“
Jónína Sigurðardóttir, ferð til Senegal & Gambíu
,,Kærar þakkir fyrir frábæra daga. Við sjáumst pottþétt að ári.“
Sólveig Hallgrímsdóttir, heilsuferð á Tenerife 2024
,,Stórkostleg ferð í alla staði og frábærar gönguleiðir sem komu svo sannarlega á óvart. Yndislegir fararstjórar sem kunna sitt fag og halda vel utanum hópinn. Takk kærlega fyrir mig.“
Sigurlaug Margrét Bragadóttir, gönguferð á Tenerife
,,Ég sé ekki eftir því að hafa leitað til Rún og Trausta við skipulag árshátíðar okkar. Ég mæli hiklaust með Tíuþúsund fetum fyrir fyrirtæki og hópa sem vilja fá vandaða, áreiðanlega og persónulega þjónustu í ferðaplönum.”
Alda Þórunn Jónsdóttir, árshátíð Kóða í Prag 2025
,,Takk kærleg fyrir okkur, frábær ferð og ferðafélagar. Við komum pottþétt með aftur. ”
Fjóla Lýðsdóttir, hringferð um Marokkó 2025.
,,Takk kærlega fyrir mig. Þetta var frábær ferð.”
Ásdís Sigrún Ingadóttir, heilsuferð á Tenerife 2024
,,Frábær ferð. Hver dagur var nýtt ævintýri með ótrúlega skemmtilegum og jákvæðum farastjórum og göngugörpum. Farastjórarnir stóðu sig einstaklega vel og gerðu ferðina ógleymanlega með frábæri þekkingu, húmor og fagmennsku. Hlakka til næstu ferðar og tíu þúsund þakkir fyrir mig“
Andrea Vikarsdóttir, gönguferð á Tenerife
Hvílíkt ævintýri! Mig langar aftur til Grænlands! Nú lét ég verða af því að fara þangað, var alltaf á leiðinni. Þegar bauðst ferð með ferðaskrifstofunni tíu þúsund fetum sló ég til og varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Allt stóðst eins og stafur á bók frá fararstjórum og þegar við vorum veðurteppt í einn dag var öllu reddað. Náttúrufegurð Grænlands er ólýsanleg, jöklar og há fjöll hvert sem augað eigir, gömul notaleg hús og blátt hafið og himinn. Skriðjökullinn var einstaklega flottur. Í ferðinni var farið í veiðiferð og aflinn eldaður og borðaður á steini! Við fórum í íshelli, skoðuðum gamalt þorp sem í búa aðeins örfáir einstaklingar, skoðuðum safn um vinnubrögð fyrr og nú, hittu sleðahunda, fórum í Blómadalinn, sigldum innan um ísjaka og fleira og fleira. Ferðafélagar ljúfir, þéttur hópur. Bara geðveikt gaman. Takk fyrir mig!”
Ása H. Proppé Ragnarsdóttir, Grænlandsferð 2024
,,Takk fyrir frábæra ferð! Mæli svo sannarlega með 10.000 ferðum – allt skipulag, þjónusta og upplifun til fyrirmyndar. Sérstakar þakkir fyrir að halda svona vel um hópinn – algjörlega ógleymanleg ferð.”
Kolbrún Vídalín, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu 2025
,,Innilegar þakkir fyrir okkur. Ferðin var æði og þið frábærir fararstjórar. Uppfull af fróðleik og skemmtilegheitum. Við eigum sko eftir að fara með ykkur í fleiri ferðir og mælum með ykkur við vini og vandamenn.”
Jóhanna Erla Birgisdóttir, hringferð um Marokkó 2025
,,Þessi ferð var dásamleg, gleði og gaman út í eitt. Fullt af frábærum og skemmtilegum konum sem höfðu engar áhyggjur þó Play hætti rétt eftir að við komum út. Enda voru Rún og Trausti búin að redda okkur fari heim á núll einni. Mæli % með Tíu þúsund fet. .Væri svo til í að fara í aðra svona ferð.”
Ingibjörg Erla Björnsdóttir, Búbblur & bling með Siggu Kling 2025
„Takk fyrir þessa ferð til Grænlands. Þvílík upplifun. Fróleikur um menninguna og sõguna mikill. Yndislegur kærleikur hjá fararstjórnum og fólkið sem var með mér í ferðinni var svo yndislegt.“
Ragnar Guðjónsson, ferð til Grænlands 2025
„Hjartans þakkir fyrir frábæra ferð. Við fengum að sjá svo marga stórkostlega staði og fræðast um fólk og atburði löngu liðanna tíma. Ógleymanlegt ferðalag. Takk Rún, Trausti og Illugi.Við Styrmir mælum svo sannarlega með Tíu þúsund fetum.”
Helga María Jónsdóttir, Sagan öll með Illuga á S-Ítalíu 2025
,,Frábær ferð í alla staði og mikil fagmennska í öllu. Engin vandamál bara lausnir. Þakkir skulu þið hafa fyrir. Mæli 10.000% með.“
Guðrún Ásdís Eysteinsdóttir, gönguferð á Tenerife