Alvöru PEPPARAR hafa séð meira en þeir muna og muna minna en þeir hafa séð

Ert þú PEPPARI?

Alvöru ferðaklúbbur fyrir alvöru flakkara!

FLAKKARINN er óhagnaðardrifinn ferðaklúbbur í okkar umsjón með það að markmiði að hjálpa sem flestum við að láta skemmtileg og ævintýraleg ferðalög út í heim rætast. Í hverjum mánuði fá meðlimir sendar allar bestu ferðirnar til útlanda, öll bestu tilboðin og ýmsar hagnýtar upplýsingar sem tengjast upplifunum og öryggi á ferðalögum.

Hvers vegna að gerast PEPPARI?

Stórskemmtilegur glaðningur!

Eigendur og fararstjórar Tíu þúsund feta, Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson, hafa starfað við margs konar ferðaþjónustu um víða veröld í 25 ár.

Magnaðir afslættir!

Við leggjum mikla áherslu á jákvæð samskipti við heimafólk til að sýna ykkur áfangastaðinn í sinni skýrustu mynd og til að tryggja að heimafólk fái jafn mikið út úr ferðinni þinni og það gefur af sér til þín.

Bestu tilboðin!

Í öllum ferðum eru reynslumiklir íslenskir fararstjórar með mikla þekkingu á öllu sem viðkemur ferðamennsku.

Villtu finna milljón?

Þegar þú bókar ferð með Tíu þúsund fetum rennur hluti af verði ferðarinnar til skógræktar á Íslandi.

Auglýsingar

Við höfum ekki fundið neina ferð sem samsvarar viðmiðunum þínum

Ótrúlegur ávinningur! Bestu tilboðin!

Fyrstu 1000 meðlimirnir fá óvæntan glaðning fyrir jólin!
Viltu finna milljón? Ef þú pantar ferð hjá Flakkara gæti þú fundið eina milljón króna á hótelherberginu þínu þegar út er komið!

Afslættir hjá ferðaskrifstofum
Langbesta ferðagreiðslukortið sem í boði er hér á landi.
Mánaðarlega ferðaávísun til nota hjá Icelandair og Play flugfélögunum
Happíáer öll síðdegi á virkum dögum
Tækifæri til að snúa lukkuhjólinu á föstudögum með fjölda ferðavinninga í boði
Fyrir hverja ferð sem þau pantar hjá Flakkaranum gróðursetjum við tré fyrir þig á Íslandi!
Öll bestu tilboðin og nýju ferðirnar sem í boði eru á markaðnum
Góða afslætti á öllu mögulega sem tengist ferðalögum innanland og utan.
Aðgang að ferðatímariti Flakkarans
Allskonar fróðlegar og hagnýtar upplýsingar sem tengjast ferðalögum
Möguleika á því að við pössum hundinn fyrir þig, vökvum blómin, vöktum húsið eða þrífum heimilið áður en þú kemur heim aftur.

Ótrúleg tilboð!

Öll ferðatilboðin á einum stað.
 
 

Auglýsingar

Við höfum ekki fundið neina ferð sem samsvarar viðmiðunum þínum

Ferðirnar okkar

Frábært verð
Við höfum ekki fundið neina ferð sem samsvarar viðmiðunum þínum
 
  • ,,Ég get sagt það að ég hef farið á fjölda staða á mínum ferli, bæði sem leikmaður og þjálfari, og þetta er með því betra sem ég hef upplifað. Æfingasvæðið er alveg uppá tíu. Vellirnir eru frábærir og öll aðstaðan til fyrirmyndar. Hægt að fara í heitt og kalt, sauna og ýmislegt annað. Hótelið var mjög gott líka með fyrirmyndar aðstöðu og maturinn fínn. Svo ef það var eitthvert vesen þá gátum við bara hringt í töfranúmerið 888 2929 og hlutunum var reddað strax.“

    Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari meistarflokks karla í fótbolta hjá Keflavík

  • ,,Vorið 2023  fór ég í námsferð til Tenerife ásamt hópi fólks.  Ferðin var mjög vel skipulögð og allar áætlanir stóðust eins og kostur var. Fararstjórnin einkenndist af léttu andrúmslofti, mikilli þekkingu á staðháttum, gleði, öryggi og góðri þjónustulund. Kærar þakkir fyrir mig."

    Svava Aðalbjörg Kristjánsdóttir, kennaraferð til Tenerife í júní 2023
  • ,,Allt upp á 10,5! Allt skipulag stóðst 100%. Við vorum mjög sáttir, frábærar aðstæður!“

    Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Val í handbolta

  • ,,Þessi ferð var bara tíu stig. Eða jafnvel tíu þúsund stig. Hér var bara allt upp á tíu, maturinn, hótelið og staðsetningin. Æfingasvæðið eitt af því betra sem maður hefur æft á og öll aðstaða og þjónusta góð. Svo var þjónustan hjá okkar mönnum hjá Tíu þúsund fetum alveg stórkostleg. Við vorum hrikalega ánægðir með þetta og komum pottþétt til með að koma aftur að ári.„

    Hermann Hreiðarsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá HK

  • ,,Frábært skipulag í virkilega góðri æfingferð. Æfingasalurinn sá besti sem ég hef æft í. Við vorum mjög sátt, frábærar aðstæður og bærinn virkilega hentugur fyrir svona hópa. Þetta er líklega besta æfingaferð sem við höfum farið í, hún var algjörlega uppá 10…þúsund fet!“

    Einar Jónsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram

  • ,,Þetta er með betri stöðum sem við höfum farið á í æfingaferð. Æfingaaðstaðan er frábær og hótelið er ótrúlega flott. Fararstjórnin var geggjuð. Við mælum hiklaust með og munum örugglega koma aftur.“

    Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Keflavík

  • ,,Þetta var virkilega góð ferð og allt skipulag uppá 10. Bæði æfinga- og lyftingaaðstaðan alveg til fyrirmyndar. Hótelið er gott og maturinn góður. Stutt í allt. Ég er bara virkilega ánægður og mæli með því að liðin komi í þessa æfingaferð.”

    Partrekur Jóhannesson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni

  • ,,Við erum búin að vera hér á Tenerife síðustu vikuna með Tíu þúsund fetum og allt upp á tíu. Æfingaaðstaða frábær, öll áætlun gekk upp, rútur voru tímanlegar, hótelaðstaðan góð og maturinn flottur. Í raun allt upp á tíu!“

    Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni

  • ,,Ég mæli hiklaust með þessari ferð. Hér er glæsileg aðstaða og allt til fyrirmyndar. Hótelið virkilega gott. Stutt frá hótelinu í höllina og lyftingaraðstöðuna. Stutt í bæinn og algjörlega bíllaus ferð sem er mjög þægilegt. Trausti er búinn að sjá mjög vel um okkur í ferðinni.”

    Róbert Gunnarsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Val

  • ,,Við hjónin viljum þakka Rún & Trausta fyrir leiðsögnina um hinar forn-egypsku slóðir með miklum glæsibrag. Þau eiga þakkir skilið fyrir hve vel þau héldu utan um hópinn og gerðu alla upplifun af ferðinni ánægjulegri. En þar sem þetta er ekki fyrsta ferð okkar, þar sem þau Rún og Trausti eru við fararstjórn, kom það okkur ekki á óvart hversu ágætir fararstjórar þau eru. Takk fyrir okkur.”

    Óli og Sigrún, sérferð til Egyptalands í október 2023
  • ,,Takk, takk elsku Rún og Trausti, þið stóðuð ykkur frábærlega! Ég hef nokkrum sinnum komið til Tenerife en aldrei kynnst eyjunni eins og ég gerði í þessari ferð með ykkur. Ég fór í frábærar ferðir, þar sem allt skipulag var til fyrirmyndar og á meðan ekið var um eyjuna fengum við allskonar skemmtilegan fróðleik, sem notalegt var að hlusta á. Takk kærlega fyrir mig, pottþéttir fararstjórar sem ég mæli með. Hlakka til að fara með ykkur aftur í ferð! “

    Magnea Guðný Hjálmarsdóttir, kennaraferð til Tenerife í júní 2023.
  • ,,Ég fór í ferð til Egyptalands í fyrra, þar sem Trausti og Rún voru fararstjórar í ferðinni. Ég mæli heilshugar með þeim. Traust, skemmtileg og hlý eru lýsingarorð sem koma til mín þegar ég hugsa til þeirra.”

    Martha Ernstdóttir, skoðunarferð til Egyptalands í mars 2023
  • ,,Þegar leiðin liggur til framandi menningarheima er ómissandi að fararstjórarnir séu starfi sínu vaxnir. Við fórum til Egyptalands í fyrra með Trausta og Rún. Þau stóðu sig óaðfinnanlega og leystu úr hvers manns vanda hratt og örugglega, enda fagfólk með áratuga reynslu. Við hlökkum til að ferðast með þeim í framtíðinni.”

    Elín Albertsdóttir og Ásgeir Tómasson, ferð til Egyptalands í mars 2023
  • ,,Við hjónin mælum heilshugar með fararstjórn Rúnar og Trausta. Við ferðuðumst um eyjuna m.a. í rútu, á bíl og fótgangandi og allt gekk eins og í sögu, vel ígrundað, skipulagt og skemmtilegt. Þau voru alltaf með vellíðan og öryggi okkar í huga og maður fann það sterkt. Það besta við ferðina með þeim var hversu fróð þau voru um staðhætti og sögu staðarins, sögðu skemmtilega frá og kynntu matsölustaði innfæddra, leyndar perlur eyjarinnar og náttúruna."

    Eva Rós og Jóhannes, kennaraferð til Tenerife í júní 2023
  • „Einstaklega góð blanda af fræðslu, slökun, skemmtun og mat.”

    Sigríður, ummæli af samfélagsmiðlum
 

Hvað er að frétta?

Auglýsingar

Við höfum ekki fundið neina ferð sem samsvarar viðmiðunum þínum